Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 49
Helgin 13.-15. febrúar 2015 sprengidagur 49
Bolla bolla!
B olludagur er mánudagurinn í sjö-undu viku fyrir páska og getur borið upp á tímabilinu 2. febrú-
ar til 8. mars. Bolludagurinn dregur
nafn sitt af bolluátinu sem einkennir
hann og barst hingað seint á nítjándu
öld ásamt þeim sið að vekja menn með
flengingum þennan mánudag. Sumir
hafa því tekið upp á því að kalla bollu-
daginn einfaldlega flengingardaginn.
Flengingarnar eiga sér líklega kaþ-
ólska fyrirmynd í táknrænum hirting-
um á öskudag. Sumir telja hýðingarnar
þó eiga rætur sínar að rekja til frjósem-
isgaldurs og með þeim eigi að vekja alla
náttúruna til lífs og starfa þegar vorið
er í nánd.
Í kringum bolludaginn hefur myndast
sú hefð að föndra skrautlega bolluvendi,
oftast úr litríkum pappírsræmum sem
límdar eru á prik. Börn flengja svo for-
eldra sína með vendinum og hrópa: „Bolla!
Bolla!“. Þessi siður er talinn hafa borist
til Danmerkur frá mótmælendasvæðum
í norðanverðu Þýskalandi og síðan til Ís-
lands með dönskum kaupmönnum á 19.
öld. Í upphafi taldist flenging ekki gild
nema flengjarinn væri alveg klæddur
og fórnarlambið óklætt, og því ekki óal-
gengt að börn vöknuðu snemma til að geta
„bollað“ foreldra sína í rúminu. Sá sem er
flengdur getur losnað undan þjáningunum
með því að gefa bollu í staðinn, og fyrir
hvert högg átti barnið að fá eina bollu.
Föndraðu
þinn eigin
bolluvönd
Þ að er einfalt og skemmtilegt að föndra sinn eigin bollu-vönd. Í verkið þarf pappad-
iska, krepappírsræmur, málningu,
tréprik og heftara.
Hugmynd 1: Málið mynd að eigin
vali á bakhlið tveggja pappadiska.
Þegar málningin hefur þornað eru
diskarnir festir saman með því að
hefta allan hringinn. Hægt er að
hefta krepappírsræmur (eins og
notað er í músastiga) á milli til að
skreyta vöndinn enn meira. Einnig
er hægt að setja nokkrar baunir
á milli diskanna, en þá myndast
skemmtilegt hljóð þegar vöndurinn
er hristur. Annars er gott að fylla
á milli diskanna með dagblöðum.
Að lokum er priki, ca. 40-50 cm
löngu, vafið með krepappírs-
ræmum. Prikinu er svo stungið á
milli pappadiskanna og fest vel
með heftara.
Hugmynd 2: Teiknið tvær stórar
hendur á stíft karton og klippið út.
Ágætt er að byrja á að teikna aðra
höndina og nota hana síðan sem
skapalón fyrir hina til að þær séu
eins. Málið hendurnar í skrautleg-
um litum. Heftið hendurnar saman
og festar við prikið með sömu
aðferð og lýst var hér að ofan.
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 150462
M e ð
í s len
sku
m rj
óma
G A M A L D A G S
B ragð i ð sem kal l ar f ram dýrmætar minningar
um gaml a gó ð a hei magerð a ís inn
sem al l i r e l ska .