Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 58
HARPA norðurljós
Mánudag 16. febrúar kl. 20:00
Miðaverð kr. 3.800 / 2.800
stóRsveit
ReykjAvíkuR
Styrkt af
Miðar á midi.is s harpa.is s í miðasölu Hörpu
flytur Ellu og BasiE!
Flutt verður öll tónlistin af hinni rómuðu plötu ella and Basie!
frá árinu 1963 en á henni syngur Ella Fitzgerald með stórsveit
Count Basie útsetningar efitr Quincy Jones.
Einsöngvari
kristjana stefánsdóttir
stjórnandi
Daniel Nolgård
Árlegir Bergþórutónleika verða
haldir á Rósenberg í kvöld, föstu-
daginn 13. febrúar. Að þessu sinni
verða tónleikarnir í formi vísna-
tónleika, þar sem áherslan er á
einfaldleika í flutningi lags og
ljóðs. Svavar Knútur hefur kallað
til nokkra listamenn með sér. Þar
má nefna Ragnheiði Gröndal og
Guðmund Pétursson, Myrru Rós
Þrastardóttur, Skúla mennska,
Inga Gunnar Jóhannsson og Gísla
Helgason.
Að vanda verða flutt mörg af
þekktustu lögum Bergþóru, sem
ganga þó í endurnýjun lífdaga
með ferskum útsetningum. Að
þessu sinni verða sett í spilun tvö
lög eftir Bergþóru, Þjóðarblómið
í flutningi og útsetningu Svavars
Knúts og lagið Segðu aftur, sem
frumflutt var í útsetningu Ragn-
heiðar Gröndal á tónleikunum í
fyrra.
Minningarsjóður Bergþóru
Árnadóttur stendur að tónleikn-
unum, en hann var stofnaður vor-
ið 2008. Tilgangur sjóðsins er að
stuðla að því að tónlist Bergþóru
og minning lifi meðal þjóðarinnar.
Bergþóra Árnadóttir (1948-2007)
var einn af frumkvöðlum vísna-
tónlistar á Íslandi og lengi vel at-
kvæðamesta konan í hópi söngva-
skálda. Hún samdi gjarna lög við
ljóð þekktra skálda, þ.á.m. Steins
Steinarrs, Tómasar Guðmunds-
sonar og Jóhannesar úr Kötlum. Á
ferli sínum sendi hún frá sér marg-
ar hljómplötur og hélt fjölda tón-
leika hérlendis og í Skandinavíu.
Hægt er að panta borð og láta
taka frá miða í síma 551 2442.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
Miðaverð 2.500 kr.
Bergþórutónleikar einfaldleiki í flutningi lags og ljóðs
Vísnakvöld á Café Rósenberg
Bergþóra Árnadóttir.
friðarhátíð feðgar standa í ströngu
Reykjavík verði friðar-
höfuðborg heimsins
þ eir feðgar, Ýmir Arthúrsson og Arthúr Björgvin Bollason, segja undirbún-ing að Reykjavík Peace festival hafa
gengið vonum framar og finna fyrir miklum
áhuga hjá öllum sem hyggjast tengjast verk-
efninu á næstu árum. „Ég vinn sem leið-
sögumaður og fyrir þremur árum var ég
með hressan kór frá Lofoten í heimsókn og
sem leiðsögumaður vinnur maður við það
að gleðja fólk,“ segir Ýmir. „Það var mjög
auðvelt með þennan kór því hann brast í
söng hvar sem þau voru stödd. Þá fékk ég
þá hugmynd að vera með kórahátíð. Ég
vildi tengja þá hugmynd við friðinn, því það
er umtalað meðal ferðamanna sem hingað
koma hvað við séum friðelskandi þjóð. Við
erum ekki með byssur og tökum ekki þátt í
stríði og ferðamönnum finnst það heillandi,“
segir Ýmir.
„Fólk tengir Ísland mjög auðveldlega við
frið,“ segir Arthúr Björgvin Bollason. „Jón
Gnarr hefur verið einn helsti talsmaður þess.
Ýmir hefur séð um framkvæmdahliðina á
þessu og ég hef verið honum innan handar
með ráðgjöf og ég hef unnið að því að fá fólk
erlendis frá, en það er framtíðarsýnin. Fá er-
lenda kóra hingað til þess að fagna friðnum
með okkur,“ segir Arthúr. „Áhuginn er fyrir
hendi, en það þarf tilhlaup. Icelandair og
Reykjavíkurborg höfðu trú á þessu og eru
því komin á fullt í þetta með okkur, tímasetn-
ingin er góð því þann 18. febrúar er afmælis-
dagur Yoko Ono, og þá ætlum við að kveikja
á friðarsúlunni í einn dag.“
Yoko Ono valdi Love
Yoko Ono tók mjög vel í þessa hugmynd og
valdi lag hátíðarinnar sem nú er búið að út-
setja fyrir kór og verður flutt á opnunarhátíð-
inni. „Þetta byrjar á mánudaginn og þá munu
yfir hundrað íslenskir kórar koma í Hörpu og
flytja nýja útgáfu af laginu Love, eftir John
Lennon,“ segir Ýmir. „Yoko var hörð á því að
velja þetta lag, því það er í miklu uppáhaldi
hjá henni. Það sem er merkilegt við það er að
sá sem útsetti lagið er maður sem heitir Ben
Parry. Parry þessi er eitt af stóru nöfnunum í
kóraheiminum og er stjórnandi London Voi-
ces sem er einn besti kór heims um þessar
mundir,“ segir Ýmir.
„Framtíðarhugmyndin er svo sú að allir
kórar heims syngi sama lagið á sama tíma
um allan heim. Að hafa Yoko Ono og Ben
Parry með okkur í liði segir okkur það að
þetta verður að veruleika, ekki í ár, en á
næstu árum,“ segir Ýmir. „Þegar erlendir
aðilar sjá hvað þetta verður glæsilegt í ár,
verður auðveldara að sannfæra þá um að
koma að ári,“ segir Arthúr.
„Það er slegist um Ben Parry um allan
heim, svo það er gríðarlegur fengur fyrir
okkur að fá hann hingað,“ segir Ýmir.
Mörg hundruð raddir
Feðgarnir eru nú þegar byrjaðir að undirbúa
hátíðina að ári og segja þetta verða árlegan
viðburð í Reykjavík í febrúar. „Þetta verður
alltaf á milli Vetrarhátíðar Reykjavíkur-
borgar og Food & Fun, sem er mjög hentugt
þar sem það hittir á afmælisdaginn hennar
Yoko,“ segir Arthúr. „Það eru orð að sönnu
að um leið og hátíðinni lýkur í ár, hefst undir-
búningur að þeirri næstu.“
„Öll næsta vika verður undirlögð af söng,“
segir Ýmir. „Sem endar svo með mörg
hundruð manna söngveislu þann 22. febrúar
í Hörpu þar sem Ben Parry mun stýra fjölda-
söng. Þetta verður fyrir alla og ætlast er til
þess að allir syngi með,“ segir Ýmir Arthúrs-
son.
Allar nánari upplýsingar um hátíðina
ásamt nótum af laginu Love, má finna á
www.reykjavikpeacefestival.com
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Reykjavík Peace festival fer fram í fyrsta sinn í næstu viku. Leiðsögumaðurinn Ýmir Arthúrs-
son fékk hugmynd að hátíðinni þegar hann ferðaðist með erlendan kór um landið fyrir
nokkrum árum. Nú hefur hann ásamt föður sínum, Arthúri Björgvin Bollasyni, unnið að
skipulagningu í allnokkurn tíma og segja þeir feðgar undirbúning fyrir næstu hátíð nú þegar
hafinn. Icelandair og Reykjavíkurborg stukku á verkefnið og vilja gera Reykjavík að friðarhöf-
uðborg heimsins.
Ýmir Arthúrs-
son og Arthúr
Björgvin Bolla-
son standa að
Reykjavík Peace
Festival. Ljós-
mynd/Hari
58 menning Helgin 13.-15. febrúar 2015