Fréttatíminn - 13.02.2015, Page 60
Í takt við tÍmann Ása Berglind HjÁlmarsdóttir
Stüssy unglingurinn sem varð kjólakona
Ása Berglind Hjálmarsdóttir er þrítug Þorlákshafnarmær sem búsett er í Vesturbæ Reykjavíkur með
kærasta sínum og tveimur dætrum. Ása Berglind er markað- og verkefnastjóri hins endurnýjaða Gamla
bíós og stjórnar kór eldri borgara í Þorlákshöfn svo fátt eitt sé talið.
Staðalbúnaður
Ég er algjör kjólakona og hef verið það síðan ég jafnaði mig á því að
vera Stüssy-unglingur. Þeir sem þekkja mig yrðu hissa ef þeir
sæju mig í buxum. Ég á eitthvað um sextíu kjóla og þá kaupi ég
í vintage- og second hand-búðum.
Hugbúnaður
Mér finnst afskaplega gaman að fara á tónleika og ég fer
einstaka sinnum í bíó. Við kærustuparið erum miklir
matgæðingar og finnst bæði gaman að elda heima og fara
út að borða. Þegar ég fer á bar panta ég mér oftast hvítvín-
sglas. Ég spila í Lúðrasveit Þorlákshafnar og með Jónasi
Sig og Ritvélum framtíðarinnar. Ég myndi ekki láta grípa
mig inni í líkamsræktarstöð, mér finnst betra að fara í
sund eða vera úti í fersku lofti og draga í mig andlega orku
úr vindinum.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone 5 og svo einhvern tölvugarm. En ég er að
„secret-a“ Mac-tölvu. Ég nota tölvupóstinn í símanum mikið í
tengslum við vinnuna, myndavélina og svo samfélagsmiðla eins og
Facebook og Snapchat. Ég er nokkuð dugleg sjálf á samfélagsmiðl-
unum en undanfarið hefur fólk aðeins fengið að finna fyrir því að
ég er að kynna Gamla bíó. Mér finnst samt gaman að pósta
einstaka myndum og leyfa fólki að fylgjast með því sem
ég er að gera.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Aukabúnaður
Ég fæ æði fyrir veitingastöðum og þessa dagana finnst mér
frábært að fara í hádegismat á Noodle Station og á Gló. Þegar
við viljum gera vel við okkur förum við til dæmis á Tapas-
barinn, Forréttabarinn eða fáum okkur sushi. Heima finnst
okkur gaman að elda eitthvað sem við höfum ekki gert
áður, að gera tilraunir með framandi og góð hráefni.
Skemmtilegast er að gera það í góðum félagsskap. Ég
ferðast aðallega um fótgangandi því ég bý í göngufæri
frá vinnunni. Ég á samt gamlan Volvo sem nýtist vel
þegar ég fer á lúðrasveitaræfingar. Hann hefur staðið
fyrir sínu og dró til dæmis tjaldvagn í heilan mánuð
síðasta sumar. Þá ferðaðist ég ásamt kærasta mínum
og vini okkar um landið og spiluðum á öllum hjúkr-
unar- og dvalarheimilum landsins. Þetta voru alls 66
tónleikar á 30 dögum. Það er einstaklega gaman og
gefandi að syngja með gamla fólkinu og okkur langar að
gera þetta aftur næsta sumar. Þá leggjum við samt ekki af
stað án þess að vera búin að fjármagna ferðina. Við eigum
svo mikið af fallegum stöðum hér á Íslandi að það er erfitt að
velja einn uppáhaldsstað. Mér þykir samt alltaf voða vænt um
Selvoginn. Við eigum sumarbústað þar sem er hvorki
með rafmagni né rennandi vatni. Það er svona
ættaróðalið sem maður fer á til að slappa af.
Dansarinn Sigga
Soffía hvetur alla,
taktfasta sem takt-
lausa, að dansa fyrir
réttlæti í Hörpunni
í dag. Fylgist með á
samfélagsmiðlum:
#milljardurris og
#fokkofbeldi. Ljós-
mynd/Hari
dans milljarður rÍs
Feminísk flóð-
bylgja í Hörpu
Bylting fer um heim allan
í dag, föstudag, þar sem
milljarður fólks kemur
saman til að dansa fyrir
réttlæti og fyrir heimi
þar sem konur og stúlkur
þurfa ekki að óttast
ofbeldi, heldur heimi
þar sem þær njóta sömu
tækifæra og karlmenn og
strákar.
UN Women stendur
fyrir viðburðinum hér
á landi sem fram fer í
Hörpu og er haldinn í
samstarfi við tónlistarhá-
tíðina Sónar Reykjavík og
RVK Lunch Beat. Sigga
Soffía Níelsdóttir dansari
hefur tekið virkan þátt
í skipulagningu bylt-
ingarinnar. „Katla Rós
Völudóttir, sem sér um
herferðina „Fokk ofbeldi“
hafði samband við mig.
Hugmyndin var að tengja
þessar tvær herferðir
með því að nota dansinn.“ Sigga Soffía fékk til
liðs við sig tvo aðra dansara og saman mynd-
uðu þau mennska stafi, sem voru svo notaðir til
að mynda nafn herferðarinnar: Fokk ofbeldi.
„Saga Sig sá um að taka myndirnar og úr varð
skemmtilegt en á sama tíma mjög krefjandi verk-
efni, þetta er auðvitað grafalvarlegt mál sem taka
þarf á,“ segir Sigga Soffía, en hún segir jafnframt
að það sé magnað að geta notað listina til að veita
alvarlegu málefni jákvæða athygli.
UN Women hvetur alla til að taka þátt og mæta
með Fokk ofbeldi-armband á Milljarður rís og
bera það með stolti á meðan dansinn dunar.
Sigga Soffía segir að það skipti ekki máli hvort
fólk kunni að dansa eða ekki, það eigi allir erindi
í Hörpuna í dag. „Þegar maður dansar fyrir
heiminn skiptir ekki máli hvernig þú hreyfir þig,
þetta snýst um að sýna stuðning.“ Armböndin
fást í Lyfju, Heilsuhúsinu og Apótekinu og kosta
2.000 krónur. -emmELDSMIDJAN.IS 562 3838 BRAGAGATA 38 A LAUGAVEGUR 81 SUÐURLANDSBRAUT 12
60 dægurmál Helgin 13.-15. febrúar 2015