Fréttatíminn - 13.02.2015, Blaðsíða 71
Úr öskustónni á Óskarinn
Christine Vachon fjallar um fjárhagshliðar óháðrar kvikmyndagerðar
S tockfish hyggur á samstarf með MIDPOINT, hand-ritamiðstöð Mið-Evrópu,
og tékkneska kvikmyndaskólan-
um FAMU í Prag en hann er einn
frægasti kvikmyndaskóli heims og
þaðan hafa útskrifast leikstjórar
á borð við Miloš Forman, Ag-
nieszka Holland, Emir Kusturica,
Vera Chytilová, Jirí Menzel, Goran
Paskaljevic og Jan Hrebejk – og
íslenskir kvikmyndagerðarmenn
á borð við Grím Hákonarson, Börk
Gunnarsson, Hauk Má Helgason,
Hjálmar Einarsson og Þorgeir Þor-
geirsson heitinn.
Pavel Jech, skólameistari FAMU
og yfirmaður MIDPOINT, verður
bæði með vinnustofu og masterc-
lass á hátíðinni – en þegar Grímur
Hákonarson nam kvikmyndir við
FAMU kenndi Jech honum hand-
ritagerð og ber Grímur honum
vel söguna. „Við unnum mjög vel
saman og vorum á svipaðri bylgju-
lengd. Hann hafði einnig mjög
gaman að okkur Íslendingunum,
sem drukkum mest og unnum
mest. Hann bjó til frasann: „Nú
skuluð þig skrifa eins og Íslend-
ingar.“ Ég veit ekki hvort hann er
notaður enn.“
En samnemendurnir skipta ekki
minna máli í svona námi. „Þetta
var frábært umhverfi og ég kynnt-
ist fullt af hæfileikaríku fólki frá
ýmsum löndum, t.d. tökumanni
frá Eistlandi sem ég gerði „Slavek
the Shit“ með. Slavek var síðan
valin inn á Cannes og gerði það
mjög gott á kvikmyndahátíðum,“
segir Grímur sem þessir mundir
er að klára eftirvinnslu á Hrútum,
sem frumsýnd verður seinna á
árinu.
Pavel Jech mun halda mast-
erclass í Bíó Paradís föstudaginn
20. febrúar kl. 20 og ber hann
yfirskriftina „Tíu brandarar sem
munu kenna þér allt sem þú þarft
að vita um handritaskrif.“
Samstarf leikstjóra og leikkonu
– masterclass
Þau Rachid Bouchareb og Brenda
Blethyn hafa unnið saman í tveim-
ur myndum á síðasta áratug. Í
bæði skiptin var hann leikstjóri og
hún aðalleikkona. Þau ræða það
samstarf og hvað þarf til þess að
það virki í masterclass á hátíðinni.
Bíó Paradís, 23. febrúar kl 16:00
– 17:30.
Gagnrýnendamálstofa
Hver er staða kvikmyndagagnrýni
í dag? Er internetið bölvun eða
blessun? Við fáum nokkra valin-
kunna gagnrýnendur til að ræða
þau mál – innlenda sem og er-
lenda – og fáum bæði innsýn inn
í störf reyndra kvikmyndarýna á
borð við Peter van Bueren sem og
ungra gagnrýnenda sem eru að
byrja, en Simran Hans kemur fyrir
hönd Nisi masa, samtaka sem sjá
um að hjálpa ungum gagnrýnend-
um og ungum kvikmyndagerðar-
mönnum að koma sér á framfæri.
Bíó Paradís, 24. febrúar kl 12:00.
Evrópa fjárfestir í íslenskri
kvikmyndagerð
Í janúar síðastliðnum voru liðin
25 ár síðan Íslendingar byrjuðu
að taka þátt í Eurimages, kvik-
myndasjóði Evrópuráðsins. Auk
þess hefur Media-áætlun Evrópu-
sambandsins verið hornsteinn í
fjármögnun, þróun og dreifingu
íslenskra kvikmynda og komið
að stuðningi við framleiðslu á ís-
lensku leiknu sjónvarpsefni.
Af því tilefni verður haldinn fyrir-
lestur þar sem Hilmar Sigurðs-
son, formaður ÍKSA, fer yfir sögu
evrópsks fjármagns í íslensku
kvikmyndaefni og hvernig Crea-
tive Europe áætlunin nýtist ís-
lenskum kvikmyndaframleið-
endum í fjármögnun sinna verka.
Bíó Paradís, 27. febrúar kl 12:15.
Uppgötvun úr fortíðinni: Nico
á Íslandi
Hin ljóðræna kvikmynd Sárið inní
okkur (The Inner Scar) var tekin
upp í eyðimörkum hér og þar um
heimin fyrir rúmum 40 árum síðan
– þar á meðal á Íslandi. Það sem
meira er – hin goðsagnakennda
rokkdíva Nico er þar í aðalhlut-
verki. Uppgötvanir úr fortíðina
verða fastur liður á hátíðinni svo
lengi sem fjársjóðskortin okkar
leiða okkur á rétta braut.
Bíó Paradís, 25. febrúar kl 20:30
og 1. mars kl 18:00.
Bíóklassík: Sigurður Sverrir
Pálsson heiðraður
Íslenski kvikmyndatökumaðurinn
Sigurður Sverrir verður í brenni-
depli í flokknum Bíóklassík – en
þrjár myndir hans verða sýndar
á hátíðinni; Land og synir, Tár
úr steini og Kaldaljós. Sigurður
Sverrir mun sjálfur ræða ferilinn
og svara spurningum í lok hverrar
sýningar og mun Ásgrímur Sverris-
son stjórna umræðum.
Norskir kvikmyndagerðarmenn
í kastljósi
Þrír norskir leikstjórar, Bent Ha-
mer, Eskil Vogt og Unni Straume
verða sérstakir gestir hátíðar og
sýnd verður ein mynd eftir hvert
þeirra á hátíðinni auk þess sem
þau verða sjálf viðstödd sýningar
mynda sinna og svara spurningum
áhorfenda eftir sýningar. Sýnd-
ar verða myndirnar 1001 Grams
eftir Bent Hamer, Blind eftir Es-
kil Vogt og REMAKE.me eftir Unni
Straume.
Frá Íslandi til Palestínu
Þjófsaugu er palestínsk mynd – með ríka Íslandstengingu
F ahad Falur Jabali er Íslend-ingur. Najwa Najjar er banda-rísk. Bæði eiga þau ættir að
rekja til Palestínu (Fahad á íslenska
móður og palestínskan föður sem
flutti hingað fyrir um hálfri öld) og
hafa þau nú unnið saman að tveimur
kvikmyndum í Palestínu. Hún sem
leikstjóri og hann sem meðframleið-
andi. Sú seinni heitir Þjófsaugu (Eyes
of a Thief) og verður sýnd á Stock-
fish og bæði eru þau sérstakir gestir
hátíðarinnar.
„Ég kynntist Najwa og mann-
inum hennar, framleiðandanaum
Hani Kort, þegar ég vann að fyrstu
myndinni hennar, Granatepli og
myrra (Pomegranates and Myrrh).
Ég hélt sambandi við þau eftir það
og tók þátt í þróun handritsins að
þessari mynd og framleiðslu.“
Fleiri Íslendingar komu að mynd-
inni fyrir tilstilli Fahads. Bróðir
hans Ómar Jabali var aðstoðark-
vikmyndatökumaður, Árni Þorbjörn
Gústafsson sá um hljóðupptöku,
Eggert Ketilsson sá um brellur og
Jonny Devaney, Breti sem hefur
unnið á Íslandi í tæp tuttugu ár, var
ljósameistari. Það reyndist merki-
lega líkt að taka upp bíómyndir í Pal-
estínu og á Íslandi. „Það er ofsalegur
kraftur í fólki þar þegar kemur að
listsköpun. Allir vilja leggja hönd á
plóginn. En það vofir alltaf yfir skuggi
hernámsins sem er ekki hér á Íslandi
og maður finnur fyrir því alltaf og
alls staðar. Maður getur alltaf lent
í því að þurfa að bíða í langan tíma
á eftirlitsstöð eða hreint og beint
staðið frammi fyrir því að komast
ekki leiðar sinnar þann daginn.“
Þjófsaugu fjallar um Tarek sem
snýr aftur eftir áratugslanga fang-
elsisdvöl og reynir að leita uppi
dóttur sína, sem var barnung þegar
hann var settur á bak við lás og slá.
Sögusviðið er dalur þjófanna – þar
sem stigamenn hafa rænt fólk um
aldir.
Stockfish þakkar:
C hristine Vachon hef-ur áralanga reynslu af því að framleiða óháð-
ar bandarískar kvikmyndir sem
margar hafa sópað til sín verð-
launum. Hún mun flytja fyrir-
lesturinn „From Shoestrings to
the Oscars“ í Bíó Paradís laugar-
daginn 28. febrúar klukkan 15.
Þar fjallar hún um þær hindr-
anir sem framleiðendur óháðra
mynda þurfa að yfirstíga í kvik-
myndalandslagi nútímans. Hvern-
ig er hægt að fjármagna myndir
án aðstoðar stórra kvikmynda-
fyrirtækja eða ríkisstyrkja? Hvaða
leiðir eru færar aðrar í fjármögn-
un fyrir framleiðendur óháðra
mynda í dag? Hvernig er best að
ná til áhorfenda nú þegar dreif-
ingarleiðir kvikmynda breytast
ört?
Vachon hefur framleitt myndir
sem hafa unnið Óskarsverðlaun
sem og verðlaun á kvikmyndahá-
tíðum á borð við Cannes og Sund-
ance. Nýjasta mynd hennar er
Nasty Baby sem keppir á Sund-
ance í ár og þá framleiddi hún
Still Alice – en Julianne Moore
er tilnefnd til Óskarsverðlauna
sem besta leikkona fyrir leik sinn
í myndinni. Meðal annarra mynda
sem hún hefur framleitt eru Far
From Heaven, Boys Don’t Cry, Po-
ison, One Hour Photo, Hed-
wig and the Angry Inch, Happ-
iness, Velvet Goldmine, I Shot
Andy Warhol, Go Fish, Swoon, I’m
Not There og Safe – en sú síðast-
nefnda verður sýnd í Bíó Paradís
strax á eftir fyrirlestrinum.
Fyrirlestur Christine Vachon er
í boði bandaríska sendiráðsins.
„Nú skuluð þig skrifa eins og Íslendingar“
Stockfish verður í samstarfi við MIDPOINT og FAMU í Prag
Fyrirlestrar og viðburðir á Stockfish:
Reykjavík
Embassy of the
United States of America
Sendiráð Bandaríkjanna
In cooperation with
Goethe-Institut Danemark
7