Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 10
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Aðalfundur VR
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf,
innborgun í VR varasjóð, lagabreytingar og
ný reglugerð Vinnudeilusjóðs VR.
Dagskráin og allar nánari upplýsingar á vr.is.
Taktu þátt í baráttunni fyrir
réttindum þínum!
Miðvikudaginn 25. mars kl. 19:30
á Hilton Nordica
Drauma-
samfélag
ef karlar
hegðuðu
sér eins
og konur
Konur fremja að jafnaði aðeins um 10-35% af öllum afbrotum en hlutfallið er breytilegt eftir brota-
flokkum. Á Íslandi eru um 4-6 konur að jafnaði í fangelsi á móti 160 körlum og hlutföllin eru ekki
ósvipuð erlendis. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir það
fyrst og fremst vera félagsmótun og gamlar hugmyndir um kynjahlutverkin sem skýri þennan mikla
mun og hann veltir því fyrir sér hvort kvennasamfélag væri kannski draumasamfélag.
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, spyr sig
hvort samfélag þar sem allir hegðuðu sér eins og konur væri ekki draumasamfélag.
Ljósmynd/Hari
Tilefni fangavisTar árið 2013
Karlar Konur
Manndráp/tilraun til manndráps 22 3
Auðgunarbrot/skjalafals 78 4
Umferðarlagabrot/nytjataka 25 2
Fíkniefnabrot 105 9
Kynferðisbrot 52 0
Ofbeldisbrot 48 3
Brenna 4 0
Annað 16 2
Samtals 350 23
Hlutfall 93,8% 6,2%
s kýringarnar eru margþætt-ar,“ segir Helgi Gunnlaugs-son, afbrotafræðingur og pró-
fessor við HÍ, aðspurður um hinn
mikla mun milli kynjanna þegar
kemur að afbrotum. „Í raun er ekk-
ert því til fyrirstöðu að konur fremji
afbrot eins og karlar. Konur geta
beitt hnífum og skotvopnum eins og
karlar en gera það síður. Konur geta
stolið eins og karlar en gera minna
af því. Konur geta kitlað bensín-
pinnann eins og karlar en eru yfir-
leitt varkárari í umferðinni en þeir.
Konur geta framið kynferðisbrot en
karlar gera meira af því. Jafnrétt-
isumræðan mótast yfirleitt af því
að það halli á konur en karlar eru
svo sannarlega í meiri vanda þegar
kemur að afbrotum.“
Eru konur þá hlýðnari en
karlar?
„Fræðimenn telja almennt að félags-
mótun skýri muninn meira en líf-
fræðilegir þættir þó enginn útiloki
skýringar af því tagi. Félagslegir,
sálrænir og menningarlegir þættir
varpa skýru ljósi á hvers vegna karl-
ar eru ráðandi í afbrotaheiminum.
Gamlar hugmyndir um kynhlutverk
eru lífseigar og konur læra að halda
aftur af sér á meðan karlar fá meira
leyfi til að rasa út en konur. Sjálfs-
mynd kvenna tengist meira umönn-
unar- og móðurhlutverki sem leiðir
til þess að siðferðiskennd þeirra
verður önnur en karla. Því má segja
að konur séu meira yfirfélagsmót-
aðar á meðan karlar eru vanfélags-
mótaðir og þessi mikli munur birt-
ist meðal annars í heimi afbrota.
Viðbrögð við afbrotum kynjanna
eru líka stundum ólík. Ef kona er
dæmd í fangelsi eru áhyggjur stund-
um áberandi varðandi tengsl henn-
ar við börn sín en minna rætt um
föðurskyldur karla sem lenda í fang-
elsi. Á móti eru konur stundum for-
dæmdar harðar af samfélaginu fyrir
brot sín en karlar fyrir sömu brot.“
„Glæpsamlegt athæfi kvenna
tengist yfirleitt minni háttar auðg-
unarbrotum eins og hnupli og
þjófnaði, skjalafalsi eða brotum án
þolenda, eins og vændi eða fíkni-
efnaneyslu. Karlar fremja alvarlegri
brot og ofbeldisfyllri. Karlar eru
gerendur í 90% manndrápa á Íslandi
og drepa mestmegnis aðra karla.
Flóknari efnahagsbrot eru svo yfir-
ráðasvæði karla frekar en kvenna
og ólíkur aðgangur kynjanna að
þeim heimi skýrir muninn líka að
talsverðu leyti.“
Konur virðast þá fremja brot
sem skaða síður aðra en þær
sjálfar?
„Já, konur fremja miklu frekar of-
beldisbrot gagnvart einhverjum
sem þær þekkja vel og þær verða
líka meira fyrir ofbeldi af hálfu
þeirra sem þær þekkja og eru í til-
finningasambandi við. Karlar bæði
fremja og verða meira fyrir ofbeldi
en konur og tengslin þarna á milli
eru oft lítil. Karlar þurfa því að ótt-
ast ofbeldi af hálfu ókunnugra mun
meira en konur. Karlar kæra líka
meira ofbeldi sem þeir verða fyrir
meðan konur gera það síður, lík-
legast vegna tengsla þar sem konur
þekkja gerandann en karlar síður.“
Fræðimenn spáðu því á áttunda
áratugnum að staða kynjanna í af-
brotum yrði jöfn í kjölfar jafnrar
stöðu kynjanna í samfélaginu.
„Staða kynjanna í dag er langt
frá því að vera jöfn. Hvort jöfnuð-
ur milli kynjanna leiði til meiri af-
brota kvenna er aftur á móti alls
ekki sjálfgefið. Að jöfnuður milli
kynjanna leiði til færri afbrota er
mun líklegri niðurstaða. Væri það
samt ekki draumasamfélag ef karl-
ar myndu hegða sér eins og konur
þegar kemur að afbrotum? Það yrði
allavega lítil þörf fyrir fangelsi. En
ef konur færu nú að hegða sér eins
og karlar værum við þá ekki komin
í villta vestrið?
Stefnum við þá á draumasam-
félag án fangelsa með auknu
jafnrétti kynjanna?
„Afbrotum hefur almennt verið að
fækka á Vesturlöndum á síðustu
árum, líka á Íslandi. Athyglisvert
er að þegar við skoðum fækkunina
eftir kyni þá er munurinn milli
kynjanna að minnka. Yngri karlar
fremja færri afbrot en áður meðan
tíðni afbrota meðal kvenna hefur
ekki minnkað að sama skapi. Hvers
vegna? Karlar eru kannski farnir að
hegða sér meira eins og konur.
Umhverfi ungs fólks hefur líka
mikið breyst á síðustu árum. Lífs-
stílsbreytingar hafa skapað nýja
afþreyingu eins og netið og tölv-
ur, eitthvað sem ungmenni hafa
ánægju af og heldur þeim upptekn-
um. Eins eru foreldrar í miklu nán-
ari tengslum við börnin sín en áður
og lengur fram eftir aldri. Áður voru
börnin eiginlega orðin fullorðin í
fyrsta bekk menntó. Í raun eru börn
og ungmenni almennt mun meira
til fyrirmyndar í dag en þau voru
fyrr á tíð. Við getum samt alltaf gert
betur og við megum ekki gleyma
foreldrum og börnum í vanda. Úr-
eltum kynjahugmyndum verður líka
að útrýma en skaðleg áhrif þeirra
sjáum við til dæmis i hefndarklám-
inu, „þær geta bara kennt sjálfum
sér um“, og í netáreiti sem stúlkur
verða oft fyrir.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
10 fréttaviðtal Helgin 13.-15. mars 2015