Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 40
40 crossfit Helgin 13.-15. mars 2015
Ný kynslóð af liðvernd
www.regenovex.isFæst í apótekum
Regenovex inniheldur samsetningu
tveggja náttúrulegra efna sem draga
úr sársauka og byggja upp liði
Systurnar Birna Dís, Kristín Erla og Íris Ósk Ólafsdætur stunda allar Crossfit af
kappi. Móðir þeirra, Sigríður Einarsdóttir, er einnig byrjuð að æfa í Crossfit Hafnar-
firði, auk þess sem Sara Mist, dóttir Írisar, mætir á sérstakar krakkaæfingar. Mynd/
Hari.
Þrír ættliðir stunda
Crossfit af kappi
V ið byrjuðum allar á sitt hverjum tíma og erum með mismunandi bakgrunn af
íþróttaiðkun. Við systurnar próf-
uðum hinar ýmsu íþróttir á okkar
yngri árum en við vorum allar í
fimleikum sem hefur reynst okkur
mjög vel í Crossfit,“ segir Birna Dís.
Íris kynntist Crossfit fyrst en það
var vinkona hennar sem dró hana
á grunnámskeið svo hún ákvað að
slá til. „Ég byrjaði nokkrum mán-
uðum síðar þar sem ég var komin
með leið á að fara alltaf í ræktina og
gera bara eitthvað,“ segir Birna Dís.
Kristín varð svo fyrir smá pressu frá
systrunum og lét undan og ákvað að
byrja. En þar var ekki staðar numið.
„Í byrjun árs náðum við systurnar
að plata mömmu okkar til að byrja
í Crossfit eftir margra mánaða tuð
í okkur þar sem hún hélt að Cross-
fit væri ekki fyrir sinn aldursflokk.
Hún breytti þó fljótt um skoðun
þegar hún byrjaði,“ segir Birna
Dís. Þær mæðgur vissu ekki alveg
út á hvað Crossfit gekk áður en þær
byrjuðu en fannst greinin spenn-
andi og ákváðu því að prófa. „Við
sjáum sko ekki eftir því.“
Crossfit Kids fyrir 6-9 ára
Crossfit æðið hefur einnig náð til
yngstu fjölskyldumeðlimanna en
Sara Mist, dóttir Írisar, byrjaði að
æfa Crossfit fyrir tveimur árum,
þá einungis 7 ára gömul. „Hún æfir
reyndar ekki með okkur. Það eru sér-
stakar æfingar fyrir börn og unglinga
og æfir Sara Mist með Crossfit Kids
tvisvar í viku og byrjaði hún árið 2013.
Henni finnst æfingarnar skemmtileg-
ar og þjálfarinn frábær,“ segir Íris.
Félagsskapurinn og bætingar
skipta máli
Systurnar segja að félagsskapur-
inn skipti miklu máli í Crossfit.
„Æfingarnar eru einnig fjölbreytt-
ar og skemmtilegar og það er fátt
skemmtilegara en að bæta sig í æf-
ingum og maður sér árangur mjög
fljótt og getur fylgst marktækt með
árangrinum,“ segir Birna Dís. En
er Crossfit lífsstíll? „Já, það mætti
segja það. Crossfit er svo miklu
meira en bara að mæta á æfingu.
Félagsskapurinn spilar mjög stór-
an þátt í þessu öllu saman,“ segir
Birna Dís.
Bara pabbinn eftir
Aðspurðar um ástæðu þess hvers
vegna bara kvenleggur fjölskyld-
unnar sé að æfa Crossfit segir
Birna: „Það vill þannig til að það eru
ekki margir karlmenn í fjölskyld-
unni. Við erum að reyna að draga
pabba með okkur í Crossfit en það
gengur erfiðlega. Við vonumst til
að það takist að lokum. Hann er nú
samt duglegur að fara í fjallgöngur
með mömmu.“ Yngri karlmeðlimir
fjölskyldunnar hafa þó sýnt mikinn
áhuga. „Sonur minn, sem er 5 ára
og æfir fótbolta, getur ekki beðið
eftir að byrja í Crossfit en Crossfit
Kids er fyrir krakka á aldrinum 6-12
ára svo það styttist í að hann geti
byrjað,“ segir Íris.
Crossfit er fyrir alla
Systurnar vilja að lokum benda á að
það skiptir engu máli hvort fólk sé
í góðu formi eða ekki, hversu gam-
alt það er eða hvort það hafi verið í
íþróttum áður. „Það geta allir byrjað
í Crossfit og haft gaman af. Þess má
geta að hver og einn aðlagar æfing-
arnar eftir sinni getu. Fyrsta skref-
ið er bara að þora að prófa og það
mun koma þér á óvart hversu fljótt
þú sérð árangur,“ segir Birna Dís.
Allar frekari upplýsingar um Cross-
fit Hafnarfirði má nálgast á heima-
síðunni www.cfh.is og fyrirspurnir
má senda á netfangið cfh@cfh.is.
Næstu grunnnámskeið hefjast strax
eftir páska.
Unnið í samstarfi við
Crossfit Hafnarfirði
Systurnar Birna Dís, Kristín Erla og Íris Ósk Ólafsdætur stunda allar Crossfit hjá Crossfit Hafnar-
firði. Nýlega tókst þeim að smita móður sína, Sigríði Einarsdóttur, af Crossfit bakteríunni, auk
þess sem Sara Mist, dóttir Írisar, mætir á æfingar hjá Crossfit Kids á sömu stöð.