Fréttatíminn - 13.03.2015, Síða 42
42 crossfit Helgin 13.-15. mars 2015
Þ egar fólk byrjar að hugsa um hreyf-ingu og heilbrigðan lífsstíl á það til að skunda af stað í líkamsræktarstöðv-
arnar af miklum móð og ætla að sigra heim-
inn og sjálft sig í leiðinni á nokkrum vikum.
Margir vilja hins vegar gleyma að hollt mat-
aræði er ekki síður mikilvægt og lykillinn að
góðum árangri er að ná góðu jafnvægi þarna
á milli.
Hágæðaprótein úr íslenskri mjólk
Hleðsla er íþróttadrykkur sem inniheldur pró-
tein og kolvetni til hleðslu. Björn S. Gunnars-
son, vöruþróunarstjóri MS, segir að við þróun
á drykknum hafi verið lögð mikil áhersla á að
þróa hollan en jafnframt bragðgóðan drykk.
„Það er ekki sjálfgefið að ná góðu bragði í
svona próteinríkum vörum, en ég tel að okk-
ar hafi tekist ágætlega upp í Hleðslu,“ segir
Björn, en Hleðsla hefur nú verið á markaði í
fimm ár, og gengið vel. „Hleðsla inniheldur
eingöngu hágæðaprótein úr íslenskri mjólk,
en í hverri fernu eða dós eru 22 g af próteinum
sem eru mikilvæg til vöðvauppbyggingar og
viðhalds,“ bætir Björn við. „Hleðsla er bæði
fitulítil og kalkrík og reyndar er Hleðsla í
fernu með kalkríkari mjólkurvörum, litla fern-
an gefur meira en helming af ráðlögðum dag-
skammti af kalki. Fernuvaran er einnig með
klofnum mjólkursykri og getur því hentað
þeim vel sem hafa mjólkursykuróþol,“ segir
Björn.
Mikilvægir orkugjafar
Prótein í fæðunni eru samansett úr 20 amínó-
sýrum, þar af eru 9 lífsnauðsynlegar. Þessar
amínósýrur gegna mörgum mikilvægum hlut-
verkum í líkamanum. Þær eru til dæmis grunn-
einingar líkamspróteinanna sem eru meðal
annars byggingarefni vöðva og beina. Til að
líkaminn nái að nýta próteinin sem best er
mikilvægt að neyta Hleðslu eða annarra pró-
teingjafa eins nálægt æfingu og mögulegt er
og skiptir þá einu hvort það sé fyrir eða eftir
æfingu, aðalatriðið er að ekki líði langur tími
þarna á milli. Kolvetni eru mikilvægasti orku-
gjafi líkamans. Þau eru geymd í líkamanum í
formi glýkógens sem er forðabúr fyrir kolvetni
og er meðal annars að finna í vöðvum og lifur.
Til marks um mikilvægi þeirra sem orkugjafa
má benda á að heilinn nýtir aðeins kolvetni
sem orkugjafa, en ekki prótein eða fitu.
Fimm ljúffengar bragðtegundir
Hleðsla hefur á síðustu misserum fengið mjög
góðar viðtökur meðal íþróttafólks og annarra
neytenda. Hleðsla fæst í fimm ljúffengum
bragðtegundum; súkkulaði, kókos og súkk-
ulaði, vanillu, jarðarberja og loks brómberja,
svo neytendur ættu ekki að vera í miklum erf-
iðleikum með að finna sitt uppáhaldsbragð.
„Nýjasta Hleðslan er kælivara en hún er með
súkkulaðibragði og er pakkað í 330 ml fernur
með tappa. 250 ml fernurnar með röri inni-
halda líka Hleðslu með súkkulaðibragði en
þær geymast utan kælis,“ segir Björn. Hinar
bragðtegundirnar fást í hentugum drykkjar-
dósum og eru kælivörur. Hleðslan hentar vel
fólki sem er á ferðinni, hvort sem það er á leið
í ræktina, út að hlaupa, í golf eða í fjallgöngur
eða þeim sem eru í vinnu og skóla og leita
eftir hollri millimáltíð. „Hérna er því drykkur
sem er bæði hollur og handhægur, og ekki
skemmir fyrir hversu bragðgóður hann er,“
segir Björn.
Unnið í samstarfi við
MS
WWW.WODBUD. IS
SUNDABORG 9
S : 690 6431
VERSLUN SUNDABORG ER OPIN:
ÞRI-FÖS : 14:00 – 18:00
LAU : 12:00 – 15:00
Nitric Oxide
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt
Meiri vöðvasnerpa, orka, þrek, úthald og súrefnisupptaka.
Betra blóðflæði - allt að 30% æðaútvíkkun
Af hverju er BEETELITE sá eini sem þorir að bjóða Nitric Oxide
próf með sinni vöru. Því BEETELITE einfaldlega virkar.
WE BEET
THE COMPETITION
1 skot 30 mín. fyrir æfingar, keppnir
blandað í 100 - 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum.
Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka
30 mín. eftir inntöku.
Fæst í apótekum, heilsubúðum
www.vitex.is
Hleðsla – hollur
og handhægur
drykkur
Matur sem
leiðir til
árangurs
Rétt val á fæðu
skiptir gríðar-
legu miklu máli í
tengslum við vel-
líðan og heilsufar
og þá sérstaklega
til að líkaminn nái
að starfa með fullri
getu. Það er eitt-
hvað sem íþrótta-
fólk og fólk sem
stundar Crossfit
sækist eftir til að
ná sem mestum
árangri. Hér er
listi yfir mat sem
leiðir til árangurs í
ræktinni.
Avókadó
Avókadó, eða lárpera eins og það heitir á íslensku, er uppfullt af
hollri fitu sem aðstoðar líkamann að viðhalda góðu kólesteról-
jafnvægi. Avókadó getur einnig slegið á matarlystina og þannig
forðað fólki frá því að detta í snakkpokann þegar hungrið sækir
að. Auk þess inniheldur það trefjar, kalíum, og C og K vítamín.
Dökkt súkkulaði
Til að fullnægja sætuþörfinni er
ágætt að nasla á dökku súkkul-
aði. Það inniheldur andoxunar-
efni sem styrkja hjartað með því
að lækka blóðþrýstinginn. Ein-
ungis þarf að tryggja að dökka
súkkulaðið innihaldi að minnsta
kosti 60 prósent af kakói.
Lax
Stútfullur af Omega-3 fitusýrum sem kemur í veg fyrir ýmsa
sjúkdóma, eins og hjartasjúkdóma, krabbamein og þung-
lyndi. Rannsóknir hafa sýnt að fitusýrur í laxi geta dregið úr
harðsperrum og jafnvel stutt við vöxt vöðva. Auk þess má
finna prótein, D-vítamín og B12 vítamín í laxi.
Grænkál
Grænkál lá lengi óhreyft í grænmetis-
deildinni en þykir nú eitt heitasta græn-
metið. Enda þarf ekki nema einn bolla af
grænkáli til að mæta dagsþörf fyrir A-, C-
og K-vítamín. Auk þess sem það inniheldur
ákveðin andoxunarefni sem bæta sjónina.
Rauðrófur
Blóðrautt grænmeti hefur
verið að auka vinsældir sínar
upp á síðkastið og þá fyrst og
fremst vegna þessu hversu
trefja- og næringarríkt það
er. Rannsókn sem gerð var á
síðasta ári og birt var í tíma-
ritinu Nutrients bendir til að
neysla á rauðrófum get aukið
árangur líkamsæfinga þar
sem þær innihalda næringar-
efni sem hjálpar vöðvunum
að nýta súrefni betur við
áreynslu, sem getur aukið út-
hald til dæmis við kraftmiklar
æfingar eins og að hoppa upp
á kassa. Þar að auki innihalda
rauðrófur andoxunarefni.