Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 13.03.2015, Blaðsíða 64
 Í takt við tÍmann kristÍn Lea sigrÍðardóttir Klæði mig eins og eskimói Kristín Lea Sigríðardóttir er 27 ára Suðurnesjamær sem býr nú í Hafnarfirði með kærasta og tveimur börnum. Kristín Lea er útskrifuð leikkona úr Kvikmyndaskólanum og vakti mikla eftirtekt fyrir hlutverk sitt í Vonarstræti í fyrra. Staðalbúnaður Ég er með frekar dömuleg- an smekk en er mikið fyrir þægindi. Ég spóka mig því oftast í íþróttafötum og svo er ég svo mikil kulda- skræfa að ef það er kalt úti þá klæði ég mig eins og eskimói. Hugbúnaður Ég hef mikinn áhuga á bíó- myndum og horfi mikið á myndir. Lord of the Rings serían er í uppáhaldi. Ég Lj ós m yn d/ H ar i horfi líka á sjónvarpsþætti, til dæmis Game of Thrones og Breaking Bad. Ég fer stundum á kaffihús til að vinna. Þá fer ég oftast hér niður í bæ í Hafnarfirði, á Pallett eða Súfistann. Við vinkonurnar hitt- umst oftast heima hjá einhverri og höfum það kósí. Ég stunda líkams- rækt í Hress í Hafnarfirði og fer í fjallgöngur þegar það er gott veður. Ég elska líka að fara út að ganga í alls konar veðri – það er eiginlega best í brjáluðu veðri. Vélbúnaður Ég er bara Apple út í gegn. Tölvan er vinnu- tækið, bæði til að skipuleggja mig og til að skrifa handrit og klippa. Ég er frekar „húkkt“ á þessum samfélagsmiðlum, Facebook, Instagram og Twitter þó ég sé nokkuð prívat þarna. Aukabúnaður Ég hef mjög einfaldan matarsmekk og hef alltaf haft. Ég get alveg eldað ef ég legg mig svakalega vel fram og eftir að ég eignaðist börn fór að ég að vera aðeins duglegri við það. Uppáhalds skyndibitinn minn er Serrano með fullt af ostasósu. Áhugamálin mín snúa aðal- lega að því að skapa og búa eitthvað til. Ég get gleymt mér tímunum saman við að smíða eitthvað eða búa til myndir. Svo elska ég að fara að veiða. Ég byrjaði að veiða á flugu fyrir þremur árum og hef gaman af, þetta er skemmtilegt fjöl- skyldusport. Mér finnst rosa skemmti- legt að ferðast um landið og við ætlum að gera meira af því á næstu árum þegar strákarnir eru orðnir aðeins eldri. Uppá- halds staðurinn minn er Vík í Mýrdal. Tengdafjölskylda mín er þaðan og við förum oft þangað. Þar er mjög fallegt. Uppþvottavélar Helluborð Ofnar Háfar Kæliskápar Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15 friform.is Viftur SANNKALLAÐ PÁSKAVERÐ Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höfum ViÐ ÁKVEÐiÐ AÐ bjóÐA oKKAR ALbEStA VERÐ Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 AFSLÁTTUR 30% AF ÖLLUM INNRÉTTINGUMTIL PÁSKA VÖNDUÐ RAFTÆKI Á VÆGU VERÐI Glimrandi dómar í erlendum blöðum  tónList muck með útgáfutónLeika Í kvöLd Þungarokkssveitin Muck heldur útgáfutónleika á Húrra í kvöld, föstudagskvöld. Muck gáfu nýverið út plötuna Your Joyous Future og kom hún út um allan heim þann 24. febrúar síðastliðinn. Platan hefur fengið frábæra dóma í erlendum blöðum að undanförnu, þar á meðal í tímaritunum Kerrang og Metal Hammer. Ási Þórðarson, trommuleikari sveitarinnar, segir tónleikahald á erlendri grundu fyrirhugað í haust. „Það er stefnan að fara til Banda- ríkjanna og Evrópu í haust og það er allt í vinnslu,“ segir Ási. „Við höfum farið nokkrum sinnum út og það hefur gengið mjög vel, við erum að fá góð viðbrögð á þessa plötu. Markmiðið er alltaf að kom- ast á stærri markað og við stefnum að því.“ Á tónleikunum á Húrra koma einnig fram sveitirnar Pink Street Boys og Oyama. „Þetta eru svona uppáhaldssveitirnar okkar í þessari senu og þetta verður bara gott kvöld,“ segir Ási. Platan Your Joyous Future fæst í öllum helstu plötu- og bókabúðum landsins. Húrra opnar klukkan 21 í kvöld og er aðgangseyrir 2000 krónur. -hf 64 dægurmál Helgin 13.-15. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.