Fréttatíminn - 13.03.2015, Qupperneq 66
Valli sport
hefur tekið að
sér að skóla
Maríu Ólafs og
StopWaitGo-
strákana í
Eurovision-
fræðunum.
Hann verður
fjölmiðlafulltrúi
hópsins þegar
þau fara til
Vínar.
Lilja Margrét Riedel syngur í óper-
unni Sæmundi fróða sem frumsýnd
verður í Iðnó á sunnudag. La Scala
bíður. Ljósmynd/Hari
TónlisT María ólafs og félagar fruMsýna Myndband við unbroken
Valli sport kominn í Eurovision-teymið
Myndband við framlag
okkar til Söngvakeppni
evrópskra sjónvarps-
stöðva, Unbroken,
verður frumsýnt í dag,
föstudag, í Laugarásbíói.
Myndbandið var fram-
leitt af kvikmyndafyrir-
tækinu Iris, sem nokkrir
ungir drengir í Versl-
unarskólanum reka.
Hluti myndbandsins við
Unbroken var tekinn í
Sementsverksmiðjunni
á Akranesi og var um 8
gráðu frost inni í verk-
smiðjunni.
Valgeir Magnússon
á Pipar, eða Valli sport
eins flestir þekkja hann,
hefur tekið að sér starf
fjölmiðlafulltrúa hópsins
og yfir-reddara. Valli er
reynslubolti mikill þegar
kemur að Eurovision
og hefur undanfarin ár
verið viðriðinn sigurat-
riðin og fylgt þeim eftir
í lokakeppnina. Hann
er því hvalreki fyrir
hópinn sem býr ekki yfir
mikilli reynslu af þessari
keppni.
Í vikunni bárust þær
fréttir að dansararnir
sem voru með í undan-
keppninni fara ekki með
til Vínar og ekki hefur
endanleg ákvörðun verið
tekin um hvort eða hver
muni bætast við hópinn.
Leyfilegt er að hafa sex
manns á sviðinu svo
það eru tvö laus pláss í
hópnum. -hf
66 dægurmál Helgin 13.-15. mars 2015
TónlisT upprennandi söngkona í nýrri íslenskri óperu
Metropolitan
og La Scala bíða
Lilja Margrét Riedel
er ung og upprenn-
andi söngkona og
á sunnudaginn
tekur hún þátt í
uppfærslu á nýrri
íslenskri óperu sem
frumsýnd verður
í Iðnó. Hún er að
klára framhalds-
próf í söng og var
harðákveðin í því að
leggja sönginn fyrir
sig eftir að hafa
lagt stund á nátt-
úrufræði í mennta-
skóla og prófað
myndlistarnám. Hún
á þýskan föður og
kláraði nýlega BA
próf í þýsku frá Há-
skóla Íslands.
ó peran Sæ-mundur fróði eftir Þórunni
Guðmundsdóttur,
sem einnig leikstýrir
verður frumsýnd á
sunnudaginn í Iðnó og
er uppfærslan sam-
vinnuverkefni leik-
félagsins Hugleiks
og Tónlistarskólans í
Reykjavík. Lilja Mar-
grét Riedel fer með eitt
aðalhlutverkanna og
segir frábært tækifæri
að taka þátt í uppfærslu
á verki sem ekki hefur
verið flutt áður. „Það
er búið að ganga alveg
rosalega vel og óperan
er mjög skemmtileg,“
segir Lilja Margrét.
„Hún er mjög aðgengi-
leg, mundi ég segja,
og býður upp á mörg
stílbrot.“
Lilja Margrét lýkur
framhaldsprófi í söng
í vor en segist ætla að
bíða aðeins með að fara
út og freista gæfunnar.
„Kennarinn minn, hún
Alina Dubik, er svo
frábær að ég tími ekki
að fara frá henni alveg
strax,“ segir Lilja Mar-
grét sem skellti sér í
sönginn eftir að hafa
farið í myndlist eftir
menntaskóla. „Ég var á
náttúrufræðibraut í
Fjölbrautaskólanum
á Snæfellsnesi og
skellti mér í fornám
í myndlist eftir
stúdentspróf. Það
er bara svo mikill
lífskraftur sem
felst í því að syngja
og standa á sviði
að ég mig langaði
að gera það,“ segir
Lilja Margrét sem
bjó sín unglingsár í
Stykkishólmi.
Lilja Margrét
ætlar að elta draum-
inn til útlanda þegar
hún er tilbúin. „Já,
já ekki spurning,“
segir hún. „La Scala
og Metropolitan
bíða. Ef draumarnir
hræða mann ekki
þá eru þeir ekki
nógu stórir.“ Lilja
Margrét verður 24
ára þann 20. apríl
og ætlar að halda
tónleika af því til-
efni í Laugarnes-
kirkju.
Nánari upplýs-
ingar um óperuna
Sæmund fróða má
finna á Miði.is.
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Kennarinn minn, hún Al-
ina Dubik, er svo frábær
að ég tími ekki að fara frá
henni alveg strax.
– N Ú Á T I L B O Ð I –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
Eins og kom fram í viðtali Fréttatímans við
Sölku Sól í síðustu viku, hættir hún sem
einn þriggja umsjónarmanna Popplandsins
á Rás 2 í apríl. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort þátturinn verði bara
í umsjá Óla Palla og Matta eins og áður,
eða það muni bætast við þriðji umsjónar-
maðurinn. RÚV hefur ekki auglýst stöðuna
en heyrst hefur að fjöllistakonan Margrét
Erla Maack sé áhugasöm um starfið. Mar-
grét starfaði á Rás 2 fyrir nokkrum árum
og er því öllum hnútum kunnug innan
Efstaleitisins.
Ný bók frá Villa í vor
Bókaútgáfa hefur
verið óvenju blómleg
þessa fyrstu mánuði
ársins. Venju
samkvæmt eru
spennusögur í kilju
fyrirferðarmiklar
í útgáfunni en inni
á milli eru nýjar
íslenskar bækur. Með vorinu er til að
mynda von á nýrri bók frá Vilhelm Antoni
Jónssyni, eða Vísinda-Villa eins og hann
er kallaður eftir að hafa gefið út tvær
vinsælar bækur um vísindi fyrir krakka.
Nýja bókin er um skutlugerð og er hugsuð
fyrir börn og unglinga en mikið æði gengur
nú yfir í gerð ýmissa tegunda skutla.
Unnur Ösp leikstýrir
Mamma Mia
Borgarleikhúsið
ætlar að halda áfram
að setja á svið stykki
sem fylla leikhúsið.
Næsta vetur er fyrir-
hugað að setja upp
söngleikinn Mamma
Mia sem sýndur
hefur verið í mörg ár,
bæði í London og New York. Heyrst hefur
að leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir muni
leikstýra þessum söngleik sem mun líklega
taka við af metsölusýningunni Billy Elliot,
en ekki er séð fyrir endann á því hvenær
hún fer af stóra sviðinu.
Heiða í þætti á BBC
Leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir fer
með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Poldark
sem nú eru sýndir á BBC1 í Bretlandi. Mikið
hefur verið fjallað um þættina í breskum
fjölmiðlum en leikurum hefur meðal
annars verið legið á hálsi að tala ekki með
réttum hreim. Sagan gerist í Cornwall og
hreimurinn þar um slóðir er afar sérstakur.
Í breskum miðlum kemur fram að ein-
hverjir leikaranna hafi fremur kosið að tala
skýrt en að reyna að ná hreimnum. Við
Íslendingar þurfum enn að bíða eftir að fá
að sjá Heiðu okkar í þáttunum því engin
sjónvarpsstöð hefur auglýst sýningar
á þeim. Einhver bið verður því á að við
getum dæmt um Cornwall-hreim Heiðu.
Nýtt andlit í
Popplandinu?