Fréttatíminn - 13.03.2015, Side 77
tískaHelgin 13.-15 mars 2015 9
Lipurtá býður upp á alla almenna snyrtistofuþjónustu ásamt fótaaðgerðum,
nuddi og tattoo. Stofan var stofnuð 1987 og við höfum sérhæft okkur í
varanlegri förðun - tattoo í 17 ár.
Microblading tattoo er aðferð sem er nýjasta tæknin í varanlegri förðun á
augabrúnir og felst í því að gera örfínar hárlínur á milli ekta háranna í
augabrúnum til að móta og gera augabrúnirnar þykkari eða í stað hára
sem ekki eru til staðar. Hægt er að velja um marga liti og mismunandi lag á
brúnum. Einnig er hægt að fá Microblading tattoo yr eldra tattoo
sem er orðið upplitað.
Hrund og Þórhalla snyrtifræðimeistarar á Lipurtá sjá um þessa nýju tækni og
hefur Þórhalla einnig kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands.
Lipurtá fótaaðgerða • nudd og snyrtistofa • Staðarbergi 2-4, Hafnarrði
sími 565-3331 • www.lipurta.is
www.lipurta.is
V ið höfum unnið við varan-lega förðun í 17 ár en nú hefur sérstök nýjung bæst
við í þeirri grein,“ segja þær Hrund
Rafnsdóttir og Þórhalla Ágústsdótt-
ir snyrtifræðimeistarar hjá Lipurtá
snyrtistofu í Hafnarfirði. Aðferðin
kallast Microblading Tattoo og hef-
ur hún í för með sér algjöra byltingu
þegar kemur að augabrúnum. „Í
gegnum árin höfum við alltaf notað
rafmagnstæki eins venjan er með
tattú, en þetta er órafmögnuð aðferð
þar sem notast er við lítið handstykki
sem sett er í nál með 14 örfínum nál-
aroddum. Aðferðin felst í því að gera
örfínar hárlínur á milli ekta háranna
í augabrúnum til að móta og gera
augabrúnirnar þykkari eða í stað
hára sem ekki eru til staðar. „Með
Microblading aðferðinni erum við að
ná fram miklu nákvæmari hárlínum
og þar af leiðandi eðlilegri útkomu.
Við höfum betra vald á því sem verið
er að gera og munurinn er mjög sýni-
legur,“ bætir Hrund við.
Tækni upprunin í Serbíu
Maðurinn á bak við þessa sérstöku
aðferð er Branko Babic frá Serbíu
og er hann talinn einn af fremstu
sérfræðingum á sviði Microblading
í heiminum í dag. „Við ákváðum í
kjölfarið að drífa okkur til Belgrad í
Serbíu og læra þetta sérstaka hand-
verk sem hann er að kenna. Við fór-
um fyrst í október 2014 og sátum
einkanámskeið hjá Babic í Micro-
blading Academy og svo fórum við
aftur núna í janúar og kláruðum þá
Masterclass námskeið hjá honum í
sömu aðferð,“ segir Þórhalla. Nám-
ið er mjög faglegt en skírteini fæst
ekki fyrr en viðkomandi hefur sýnt
fram færni sína með myndum sem
sýna að fullri kunnáttu hafi verið
náð. Þórhalla og Hrund hafa báðar
hlotið slíkt skírteini.
Sérhannað mælitæki og app
„Það sem gerir þessa aðferð sér-
staka er að Branko Babic hefur
hannað mælitæki sem gerir okkur
kleift að mæla upp brúnirnar ná-
kvæmlega út frá augum, munni
og nefi hjá hverjum einstaklingi
og vinnum við með allar mælingar
fyrir augabrúnirnar og andlitsfall
í gegnum myndavél með sérstöku
appi sem er eingöngu til notkunar
hjá þeim sem hafa útskrifast hjá
Branko Babic Microblading Aka-
demy,“ segir Þórhalla.
Einstök meðferð
Þessa sérstöku meðferð er ein-
göngu hægt að fá hjá þeim Þórhöllu
og Hrund á Lipurtá snyrtistofu í
Staðarberginu í Hafnarfirði. Þær
starfa þó reglulega á Snyrtistof-
unni Öldu á Egilsstöðum og Abaco
heilsulind á Akureyri með þessa
aðferð. Lipurtá er einnig viður-
kenndur meðferðaraðili hjá Sjúkra-
tryggingum Íslands en stofnunin
tekur þátt í að niðurgreiða þessa
meðferð fyrir krabbameinssjúk-
linga. „Rétt er að geta þess að
hægt er að fá Microblading tattoo
á nokkrum stofum hérlendis en við
erum þær einu sem höfum þessa
sérstöku aðferð og erum lærðar frá
Branko Babic Microblading Aca-
demy,“ bæta þær við. Þórhalla og
Hrund hafa nú stofnað sitt eigið
HH Microblading Academy og
deila nú þekkingu sinni með þeim
snyrtifræðingum sem áhuga hafa
á að læra þessa einstöku aðferð og
hefur Þórhalla einnig fagkennslu-
réttindi frá Kennaraháskóla Ís-
lands.
Unnið í samstarfi við
Lipurtá
Tattú á augabrúnir með nýrri tækni
Snyrtistofan Lipurtá býður
upp á tattú á augabrúnir
með svokallaðri Microblading
tækni
Hrund Rafnsdóttir, snyrtifræðimeistari og Þórhalla Ágústsdóttir, snyrtifræðimeistari og eigandi Lipurtá hafa báðar sérhæft sig í Micro-
blading tattú tækni á augabrúnum, en aðferðina lærðu þær í Serbíu. Mynd / Hari.