Fréttatíminn - 17.04.2015, Síða 14
Í
Í huga okkar eru Spánn, Ítalía og Frakk-
land meðal helstu ferðamannalanda, fjöl-
menn lönd sem laða árlega að sér milljónir
ferðamanna. Miðað við aukinn áhuga er-
lendra ferðamanna síðustu ár á Íslandi er
óhætt að setja það í hóp ferðamannalanda.
Stöðugt aukinn straumur ferðamanna
kemur hingað ár hvert og árið í ár er engin
undantekning. Nýjar tölur Hagstofunnar
sýna að gistinóttum á hótel-
um fjölgaði um 21% í febrúar
miðað við metárið í fyrra.
Gistinætur erlendra gesta
voru 87% af heildarf jölda
gistinátta í mánuðinum.
Athyglisvert er í þessu
sambandi að skoða hlut-
fall erlendra ferðamanna af
heildar íbúafjölda. Miðað við
fjölda ferðamanna og meðal
dvalartíma jafngildir það því
að hér séu um 26 þúsund er-
lendir ferðamenn á hverjum degi allt árið.
Þetta hlutfall hefur, að því er fram kemur í
nýrri skýrslu Greiningar Íslandsbanka um
íslenska ferðaþjónustu, verið notað sem vís-
bending um það hversu stór ferðamanna-
þjónusta er í hinum ýmsu löndum. Í fjöl-
mennu ferðamannalöndunum sem nefnd
voru er þetta hlutfall 2,2% á Spáni, 2% í
Frakklandi og 1,3% á Ítalíu. Hlutfallið á Ís-
landi er 7,2%. Vegna árstíðarsveiflu í fjölda
ferðamanna er hlutfallið mun hærra yfir
sumarmánuðina en í skýrslunni er áætlað
að í sumar verði ferðamenn að meðaltali
ríflega 16% þeirra sem eru hér á landi.
Ísland er í sjöunda sæti ríkja þegar borið
er saman hlutfall heimamanna og erlendra
gesta, á milli Mónakó og Möltu. Efst á þeim
lista tróna smáríkin Vatíkanið og Andorra.
Bahamaeyjar eru í fimmta sæti. Af smærri
ríkjum má nefna að hlutfallið er 4% í Eist-
landi, 3,8% í Austurríki, 3,7% á Írlandi og
2,5% í Danmörku.
Af þessu hlutfalli má ráða hve miklu
ferðaþjónustan skiptir okkur. Breyting-
arnar hafa verið hraðar. Árið 2009 aflaði
ferðaþjónustan 19,8% gjaldeyristekna af út-
flutningi vöru og þjónustu. Árið 2012 var
þetta hlutfall komið í 23,8% og í ár áætlar
Greining Íslandsbanka að hlutfallið verði
28,9%.
Sá mikli vöxtur sem verið hefur í ferða-
þjónustunni síðustu ár skýrir stóran hluta
af þeim hagvexti sem mælst hefur síðan
hagkerfið fór að taka við sér árið 2010.
Greiningin áætlar að þriðjung hagvaxtar-
ins á þessum tíma, að minnsta kosti, megi
rekja til ferðaþjónustunnar. Þessi atvinnu-
grein hefur því átt drjúgan þátt í endur-
reisninni. Í skýrslunni kemur fram að í
heild hafi störfum í hagkerfinu fjölgað um
10.300 á tímabilinu en af þeim má rekja um
45% til ferðaþjónustunnar, eða um 4.600
störf. Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur því
átt ríkan þátt í að ná niður atvinnuleysi sem
jókst mjög í kjölfar efnahagshrunsins 2008.
Því er spáð að fjöldi ferðamanna á yfir-
standandi ári, í gegnum Leifsstöð, verði um
1.191 þúsund, sem er aukning um tæplega
23% á milli ára, en að heildarfjöldi ferða-
manna á árinu verði um 1.350 þúsund, eða
rúmlega fjórfaldur fólksfjöldi. Fátítt er að
hlutfall ferðamanna í samanburði við íbúa-
fjölda sé svo hátt.
Vitaskuld reynir á við svo öra fjölgun
ferðamanna. Velgengni á þessu sviði fylgja
óhjákvæmilega vaxtarverkir. Okkur veitir
ekki af tekjunum sem greinin skapar en
um leið verður að gæta að þoli vinsælustu
ferðamannastaða. Ólíklegt er að umdeilt
frumvarp ferðamálaráðherra um náttúru-
passa nái fram að ganga en aðgerðir þola
ekki bið. Ráðherrann hefur sagt að þá verði
gripið til „plans-B“, sem þýðir væntanlega
að fjármunir úr ríkissjóði fari til fram-
kvæmda og viðhalds. Ferðamönnum verður
að beina á göngustíga svo þeir traðki ekki
niður viðkvæm svæði og salernisaðstaða
verður að vera boðleg. Þá þarf að benda
gestum okkar á að fleira er matur en feitt
kjöt, fleiri staði er fýsilegt að heimsækja en
Þingvelli, Gullfoss og Geysi, auk Mývatns
og nágrennis, svo nefndir séu ásetnustu
ferðamannastaðirnir, sem að óbreyttu eru
komnir að þolmörkum.
Ferðamannalandið Ísland
Óhjákvæmilegir vaxtarverkir
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORÍUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Síðumúla 21
S: 537-5101
snuran.is
Keramik frá Finnsdottir verð frá 8.200 kr.
Cubebot vélmenni - 1.690 kr. og 2.900 kr.
Fuss púðar verð frá 12.990 kr.
OYOY Living Design - rúmteppi 31.900 kr.
14 viðhorf Helgin 17.-19. apríl 2015