Fréttatíminn - 17.04.2015, Side 35
Grímur Hákonarson, leikstjóri Hrúta.
KviKmyndir Heiður fyrir Grím HáKonarson
Hrútar á Cannes
H rútar, nýjasta kvikmynd Gríms Hákonarsonar, hef-ur verið valin til þátttöku í
Un Certain Regard keppni Cannes
kvikmyndahátíðarinnar í maí næst-
komandi. Þetta var tilkynnt á blaða-
mannafundi í París í vikunni þar sem
kynntar voru þær myndir sem eru
hluti af Cannes Official Selection í ár.
Cannes kvikmyndahátíðin er
ein allra stærsta og virtasta kvik-
myndahátíð heims, svokölluð „A“
hátíð, og því er um gífurlegan heiður
að ræða fyrir aðstandendur mynd-
arinnar. Um er að ræða heimsfrum-
sýningu myndarinnar. Af um fjög-
ur þúsund myndum sem sóttu um
komust aðeins 20 að og munu keppa
um aðalverðlaunin „Prix Un Certain
Regard.“
Hrútar fjallar um tvo sauðfjár-
bændur á sjötugsaldri, bræðurna
Gumma og Kidda, sem búa hlið
við hlið í afskekktum dal á Norð-
urlandi. Fjárstofn þeirra bræðra
þykir einn sá besti á landinu og
eru þeir margverðlaunaðir fyrir
hrútana sína. Þrátt fyrir að deila
sama landi og lífsviðurværi þá hafa
bræðurnir ekki talast við í fjóra
áratugi. Þegar riðuveiki kemur
upp í dalnum grípur um sig mikil
örvænting á meðal bændanna þar.
Yfirvöld ákveða að skera niður allt
sauðfé til þess að sporna við út-
breiðslu sjúkdómsins. Bræðurnir
standa frammi fyrir því að missa
það sem er þeim kærast og grípa
til sinna ráða. Grímur Hákonarson
leikstýrir og skrifar handritið að
Hrútum og með aðalhlutverkin
fara þeir Sigurður Sigurjónsson og
Theodór Júlíusson. Myndin verður
frumsýnd hér á landi í sumar. -hf
KEA skyr - próteinríkt og fitusnautt
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
7
17
42
0
3/
15
HÁRLITUR SEM ENDIST LENGUR
ENDINGABETRI, LÍFLEGRI OG FALLEGRI HÁRLITUR
Íslenskar leiðbeiningar
Helgin 17.-19. apríl 2015