Fréttatíminn - 17.04.2015, Qupperneq 52
52 matur & vín Helgin 17.-19. apríl 2015
Spænsk eggjakaka
Handa 4-6 sem forréttur
Til eru ýmsar gerðir af eggjakökum: hin
klassíska franska er fölgul, vindilslaga
og stundum með einfaldri fyllingu; sú
bandaríska er gullinbrúnn hálfmáni með
vænni fyllingu og sú ítalska er þykk,
nokkuð frauðkennd og hún kláruð inn
í ofni.
Sú spænska er mjög lík þeirri ítölsku
nema hvað að hún er þéttari í sér
og elduð allan tímann á eldavélinni.
Venjulega er hún að löguð með
pönnusteiktum þunnskornum kartöflum
og lauk en ég nýti mér þá staðreynd að
oft eru til soðnar kartöflur inn í ísskáp
eftir kvöldmáltíð gærkvöldsins. Í raun er
hægt að nýta hvað eina úr ísskápnum:
afgangs ofnbakað grænmeti, frosnar
grænar ertur eða bita af bragðgóðri
pylsu – svo fátt eitt sé nefnt.
Innihald
1 kíló kaldar soðnar kartöflur, skornar
langsum í tvennt og svo í þykkar sneiðar
1 stór laukur, flysjaður, skorinn til
helminga og sneiddur þunnt
4 matskeiðar jómfrúarolía
½ teskeið salt
¼ teskeið nýmalaður pipar
5 stór egg
Leiðbeiningar
1. Hitið 2 matskeiðar af jómfrúarolíu
við miðlungshita, á pönnu sem er 25
sentímetrar í þvermál og með nokkuð
háum kanti. Best er að nota viðloðun-
arfría pönnu eða góða steypujárns-
pönnu. Blandið saman kartöflum, lauk,
ólífuolíu, helmingnum af saltinu og öllum
piparnum í stórri skál. Hellið kartöflu-
blöndunni á heita pönnuna og eldið hana
undir loki þar til laukurinn er mjúkur í
gegn, 10-15 mínútur. Hrærið reglulega í
blöndunni til að koma í veg fyrir að hún
brenni við.
2. Sláið eggin saman í sömu skál ásamt
¼ teskeið af salti. Blandið kartöflu-
blöndunni vel saman við eggin. Hitið 2
matskeiðar af jómfrúarolíu í sömu pönnu
á miðlungsháum hita og hellið allri
blöndunni á pönnuna. Hristið hana til
og hrærið í miðjunni með sleikju á sama
tíma þar til barmar eggjakökunnar hafa
stífnað, í um hálfa mínútu.
3. Lækkið undir pönnunni og eldið eggja-
kökuna við miðlungslágan hita. Setjið
lok á pönnuna og hristið hana af og til á
meðan eggjakakan eldast. Eftir um 10
mínútur ætti botninn að vera gullinbrúnn
og eggin að mestu leyti elduð í gegn.
4. Verið viss um að eggjakakan sé laus
í pönnunni og hvolfið henni þá á disk.
Rennið henni aftur í pönnuna og eldið
hana í um 5 mínútur til viðbótar eða þar
til eggin eru elduð í gegn.
5. Færið eggjakökuna yfir á skurðar-
bretti og leyfið henni að kólna í um
10 mínútur áður en hún er skorin í
geira. Hún er fullkomin heimagerðum
rjómaosti og graslauk.
Spænsk
eggjakaka
af Hinu
blómlega búi
Þriðja þáttaröðin af hinu Hinu blómlega búi fer í loftið á Stöð
2 á sunnudagskvöld. Sem fyrr er það Árni Ólafur Jónsson sem
stjórnar þessum huggulegu matarþáttum. Við fengum Árna til
að leggja okkur til uppskrift úr fyrsta þættinum.
Þ essi þáttaröð verður með svipuðu sniði og hinar tvær. Lífið í Árdal gengur sinn
vanagang, matjurtagarðurinn held-
ur áfram að gefa af sér og það bæt-
ast svo við nokkrar skepnur. Við
víkkum aðeins sögusviðið í nokkr-
um þáttum og ferðumst út fyrir
Borgarfjörðinn en höldum okkur
á Vesturlandi,“ segir Árni Ólafur
Jónsson matreiðslumaður.
Árni stjórnar hinum skemmtilegu
sjónvarpsþáttum Hið blómlega bú á
Stöð 2 en þriðja þáttaröðin fer í loft-
ið á sunnudagskvöld klukkan 19.45.
Í þáttunum er fylgst með Árna við
leik og störf í Árdal í Borgarfirði.
Þar kom hann sér fyrir eftir að hafa
starfað sem matreiðslumaður í New
York og í þáttunum reynir hann að
nýta sér það sem landið og sveitin
hefur upp á að bjóða. Fyrsta þátta-
röðin fór í loftið sumarið 2013 og
vakti mikla lukku. Henni var svo
fylgt eftir með annarri þáttaröð þá
um veturinn þar sem Árni einbeitti
sér að vetrar-verkunum í sveitinni.
Þessi þriðja þáttaröð var tekin upp
síðasta sumar og hefur Árni og sam-
starfsfólk hans einbeitt sér að eftir-
vinnslu þáttanna í vetur.
Hvað verður til umfjöllunar í
fyrsta þætti?
„Í fyrsta þættinum tökum við
meðal annars fyrir kúamjólk,
hænuegg og hinn algenga túnfífil.
Ég laga heimagerðan rjómaost, geri
spænska eggjaköku og bý til fíflasal-
at,“ segir Árni sem féllst á að færa
lesendum brakandi ferska uppskrift
úr fyrsta þættinum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin
í verslun RV og
sjáið úrval af
glæsilegum
hágæða
borðbúnaði
Árni Ólafur Jónsson snýr aftur á Stöð 2 með þriðju þáttaröðina af Hinu blómlega búi um helgina. Í þáttaröðinni víkkar hann út sögusviðið
og fer út fyrir Borgarfjörðinn til að leita fanga.
S ex bjórar frá hinu kynngi-magnaða brugghúsi Three Floyds verða í boði á krana
á barnum Mikkeller & Friends við
Hverfisgötu í dag, föstudag. Tilefnið
er opnun Warpigs bruggpöbbsins í
Kaupmannahöfn á dögunum. Sá bar
er samstarfsverkefni hins danska
Mikkeller og Three Floyds í Muns-
ter í Indiana.
Three Floyds hefur um árabil
verið eitt virtasta brugghús Banda-
ríkjanna, sér í lagi í hinum sístækk-
andi heimi handverksbjóra. Hefur
Three Floyds verið talið eitt af fimm
bestu brugghúsum heims síðasta
áratuginn á Ratebeer.com. Afar erf-
itt er að nálgast bjórinn utan Illinois
og Indiana.
Three Floyds var stofnað árið
1996 af Nick Floyd. Hann fékk
föður sinn og bróður með í slaginn
og þaðan er nafnið komið. Floyd
hefur tekist að brugga bragðmikla
bjóra frá upphafi. Flestir bjórarn-
ir eru með einhverskonar tilvísun
í heimsendi og flöskurnar skarta
skrautlegum miðum. Einu sinni á
ári brugga þeir sótsvartan Imperial
Stout, Dark Lord, sem nýtur gríðar-
legra vinsælda. Frægasti bjórinn er
þó sennilega Zombie Dust sem er
besti Pale Ale í heimi, samkvæmt
Ratebeer.com og BeerAdvocate.
com. Zombie Dust verður einmitt
í boði á Mikkeller-barnum í dag.
Auk þess verður hægt að smakka á
Alpha King sem einnig er Pale Ale,
Gumballhead sem er humlaður
hveitibjór, Anicca sem er IPA-bjór
sem framleiddur er í samstarfi við
Half Acre, Blot Out The Sun sem er
Imperial Stout og Permanent Fune-
ral sem er tvöfaldur IPA. Auk þess
verður takmarkað magn af bjór á
flöskum.
Mikkeller & Friends verður opn-
aður klukkan 14 í dag, föstudag.
Bjór Góðir GeStir á Mikkeller & FriendS
Sex gæðabjórar frá
Three Floyds á krana
Andrew og Kyle eru yfirkokkur og
yfirbruggari á Warpigs í Kaupmanna-
höfn. Þeir eru vel stemmdir fyrir Three
Floyds-veisluna á Mikkeller-barnum við
Hverfisgötu í dag, föstudag.