Fréttatíminn - 17.04.2015, Page 57
Ég sogast alltaf inn í sjónvarpsheiminn þegar
myndefni frá heimstyrjöldinni seinni, eða
númer tvö eins og allir aðrir en Íslendingar kalla
þessa klikkuðu tíma, rúllar yfir skjáinn.
Á RÚV á miðvikudaginn var sýndur þáttur,
Helförin með augum Hitchcock. Þáttur um gerð
heimildarmyndar sem setti ljós á stríðsglæpina
sem Þjóðverjar frömdu í útrýmingarbúðunum
og frelsun eftirlifenda. Þessi heimildarmynd var
hins vegar aldrei kláruð. Aðallega vegna þess
að stríðinu lauk rétt í þann mund sem leggja átti
lokahönd á verkið og þá þóttu Bandamönnum,
og þá Bretum sérstaklega, óþægilegt og óþarfi
að núa Þjóðverjum upp úr fortíðinni og vildu
einbeita sér að uppbyggingu. Því varð úr að öllu
sem tengdist þessari mynd var
pakkað vandlega niður í kassa og
sett í geymslu. Áratugum seinna
fundust svo filmurnar og nákvæm
handrit um hvernig planið var að
klára myndina.
Þátturinn var ljómandi enda
myndefnið þannig að það var ein-
faldlega ekki hægt annað en að
sökkva inn í þessa klikkun sem
útrýmingarbúðirnar voru. En alltaf þegar ég
sé meðferð Þjóðverjanna á gyðingunum get ég
ekki annað en hugsað til þeirra í dag. Hvernig
taflið hefur snúist við. Því nú eru það gyðing-
arnir sem pína Palestínumenn að gaddavírsgirð-
ingum og reisa múra á landi sem
tekið var ófrjálsri hendi. Það er í
raun alveg með ólíkindum að þeir
sjái þetta ekki sjálfir, gyðingarnir.
Kannski þarf önnur sextíu ár til
þess. Því alveg eins og Þjóðverj-
arnir sem bjuggu í nágrenni við
útrýmingar-og fangabúðirnar –
og nýttu jafnvel margir sem ódýrt
vinnuafl, sögðu lítið og gerðu
minna. Horfum við hin nú þegjandi á ofbeldið.
Við getum þó því miður ekki skýlt okkur bak
við það að heimildarmyndinni hafi verið pakkað
ofan í kassa. Hún er nefnilega í beinni.
Haraldur Jónasson
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Barnatími Stöðvar 2
12:00 Nágrannar
13:45 Krækiberjablús
14:40 Fókus (9/12)
15:10 Margra barna mæður (7/7)
15:40 Matargleði Evu (5/12)
16:05 ET Weekend (31/53)
16:50 60 mínútur (28/53)
17:35 Eyjan (30/35)
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (86/100)
19:10 Sjálfstætt fólk (22/25)
19:45 Hið blómlega bú 3 (1/8) Á
20:15 Britain’s Got Talent (1/18)
21:20 Mad Men (9/14)
22:10 Better Call Saul (5/10)
23:00 60 mínútur (29/53)
23:45 Eyjan (30/35)
00:30 Brestir (3/5) Önnur
þáttarröð þessa fréttaskýringa-
þáttar sem rýnir í bresti sam-
félagsins. Forvitnir þáttastjórn-
endur gægjast undir yfirborðið
og fylgjast með því sem fram fer
fyrir luktum dyrum.
01:00 Game Of Thrones (2/10)
01:55 Vice (5/14)
02:25 Daily Show: Global Edition
02:50 Transparent (10/10)
03:15 Backstrom (5/13)
04:00 One Fine Day
05:45 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:00 Barein
09:25 Barcelona - Valencia
11:10 Real Madrid - Malaga
12:55 Centers of the Universe
13:20 FA Cup - Preview Show 2015
13:50 Aston Villa - Liverpool Beint
16:00 Reading - Arsenal
17:40 Evrópudeildarmörkin
18:30 Meistaradeild Evrópu
19:00 Moto GP - Ástralía Beint
20:00 Formúla 1 2015 - Barein Beint
22:20 Aston Villa - Liverpool
00:00 Haukar - Keflavík
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:30 Premier League World 2014/
09:00 Crystal Palace - WBA
10:40 Leicester - Swansea
12:20 Man. City - West Ham Beint
14:50 Newcastle - Tottenham Beint
17:00 Man. City - West Ham
18:40 Newcastle - Tottenham
20:20 Chelsea - Man. Utd.
22:00 Stoke - Southampton
23:40 Everton - Burnley
SkjárSport
09:15 Augsburg - Stuttgart
11:05/21:05 Hoffenheim - B. München
12:55 Bundesliga Preview Show
13:25/17:25 W. Bremen - Hamburger
15:25/19:15 Wolfsburg - Schalke
19. apríl
sjónvarp 57Helgin 17.-19. apríl 2015
Í sjónvarpinu Helförin á rÚv
Hvað á að gera við gyðingana?
Mánudagur 17. ágúst 2015
Eldborgarsal Hörpu
Miðasala hefst á morgun kl 10:00
Harpa.is - midi.is og í síma 528 50 50
Patti Smith
ásamt hljómsveit
flytja Horses
Horses 1975-2015
Tónleikur kynnir