Fréttatíminn - 17.04.2015, Blaðsíða 60
Hafnfirðingar kveðja veturinn og
bjóða fólki heim til sín í tónleika-
veislu síðasta vetrardag, næstkom-
andi miðvikudag, 22. apríl.
Tónlistarhátíðin HEIMA verður
haldin í annað sinn, síðasta vetr-
ardag, og markar upphaf Bjartra
daga í Hafnarfirði. Markmiðið er að
kveðja þennan grimma vetur, fagna
komandi sumri, hafa gaman af líf-
inu, njóta samvista og heimsækja
hvert annað.
Hugmyndin að tónlistarhátíðinni
HEIMA er fengin frá Færeyjum og
byggist hún á því að stuttir tónleikar
eru haldnir í heimahúsum miðsvæð-
is í bæ eins og Hafnarfirði. Miðan-
um, sem fólk kaupir á www.midi.is,
er skipt út fyrir armband á tónleika-
dag og síðan er rölt af stað.
Vel er mögulegt að ná allt að
þrennum til fernum tónleikum yfir
kvöldið.
Frábær hópur listamanna hefur
staðfest komu sína á HEIMA: Eivör
Pálsdóttir ásamt hljómsveit, KK,
Lúðrasveit Þorlákshafnar ásamt
leynigesti, Berndsen, Jóhanna
Guðrún og Davíð Sigurgeirsson,
Dimma, Herbert Guðmundsson
og Hjörtur Howser, Jens Hansson,
Janis Carol, Langi Seli og Skugg-
arnir, Jón Jónsson og Friðrik Dór,
Margrét Eir og Thin Jim, Emmsjé
Gauti & Agent Fresco, Ragga Gísla
& Helgi Svavar og Kiriyama Family.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina má finna á Facebook síðunni
Heima 2015.
TónlisT Heima í Hafnarfirði í annað sinn
Tónlist úr hafn-
firskum húsum
Ragga Gísla kemur fram á Heima 2015.
Ljósmynd/Hari
s tofufangelsi er sýnt í leikrými leik-félags MH, sem er í skólanum sjálfum, og gekk frumsýningin mjög
vel. Jóhanna Rakel Jónasdóttir, oddviti leik-
félagsins, segir starfið mjög skemmtilegt.
„Það er búið að vera margt í gangi
og margt sem þarf að hugsa um,“ segir
Jóhanna. „Við sömdum þetta í sameiningu
og allir leikararnir eru í rauninni höfundar.
Við komum öll með tillögur og unnum svo
úr þeim,“ segir Jóhanna. „Það var ekki
erfitt að bakka með sínar hugmyndir ef
aðrar voru betri. Það var mikil virðing fyrir
öllum hugmyndunum og allar voru teknar
til greina,“ segir Jóhanna.
Félagar leikfélagsins sjá um alla vinnu
í kringum sýninguna sjálfir svo þetta er
mikið samvinnuverkefni. „Verkið er fyndið,
erfitt, spennandi og rómantískt,“ segir
Jóhanna. „Það fjallar um hvernig það er
að vera unglingur í dag og er á einhvern
máta sjálfsskoðun. Allir komu með sína
reynslu að verkinu og þetta tengist mjög
lífinu í Menntaskólanum við Hamrahlíð,“
segir hún. Leikfélagið fékk grínistann
Dóra DNA til þess að vera leikstjóra sýn-
ingarinnar. „Hann vann þetta með okkur
og lagði ákveðnar línur í ferlinu hjá okkur.
Annars er þetta bara okkar verk,“ segir
Jóhanna sem er í fyrsta sinn að vinna með
leikfélagi skólans, og í það síðasta þar sem
hún útskrifast í vor. „Ég hef oft verið með
puttana í ýmsu hjá leikfélaginu og fylgst
vel með, en þetta er í fyrsta sinn sem ég
tek þátt af alvöru,“ segir Jóhanna. „Ég er
ekkert búin að ákveða hvað ég geri næsta
haust. Ég var að trúlofa mig og ætla til
Kúbu í sumar, segir hún. „Kannski verð ég
bara áfram þar, hver veit. Ég er ekki með
neitt plan, annað en að lifa lífinu.“
Í verkinu Stofufangelsi eru 24 leikarar
og er uppselt á allar næstkomandi sýning-
ar. „Við erum að vinna að því að bæta við
sýningum og mér sýnist við þurfa þess,“
segir Jóhanna Rakel Jónasdóttir.
Allar upplýsingar um Stofufangelsi má
finna á Facebooksíðu Leikfélags MH.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
leiklisT leikfélag mH frumsýnir sTofufangelsi
Nýtrúlofuð og
á leið til Kúbu
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýndi í síðustu viku leikritið Stofufangelsi. Leikritið
er samið af aðstandendum sýningarinnar og nutu þau leikstjórnar Dóra DNA við uppfærsluna.
Oddviti leikfélagsins, Jóhanna Rakel Jónasdóttir, segir verkið fjalla um líf ungs fólks í dag og
í MH. Hún leikur einnig lítið hlutverk í sýningunni en segir ekki tíma fyrir mikið annað en að
skipuleggja starfið í kringum sýninguna.
Jóhanna Rakel Jónasdóttir er oddviti leikfélag MH sem frumsýnd leikritið Stofufangelsi á dögunum. Hún er að útskrifast í haust
og segir að eina plan sitt sé að lifa lífinu. Ljósmynd/Hari
Það var
mikil
virðing
fyrir öllum
hugmynd-
unum og
allar voru
teknar til
greina.
60 menning Helgin 17.-19. apríl 2015
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN
Inntöku
próf
30. apr
íl
Vorhátíð skólans í Borgarleikhúsinu
mánudaginn 27. apríl kl. 18:00
WWW.BALLET.IS
Grensásvegi 14 & Álfabakka 14a s: 534 9030 mail: info@ballet.is
Inntökupróf fer fram á
Grensásvegi 14 fimmtudag 30. apríl
nemendur 13 ára og eldri mæti kl.18:00
Miðasala hefst 20. apríl á www.borgarleikhus.is
Skráning fyrir nýja nemendur
fyrir haustönn 2015 er hafin á
Opnað verður
fyrir umsóknir
í Myndlistarsjóð
18.apríl
Myndlistarsjóður
Veittir verða
Undirbúningsstyrkir og styrkir
til minni sýningar verkefna allt
að 500.000 kr.
Styrkir til stærri sýningar
verkefna, útgáfu/rannsóknar
styrkir og aðrir styrkir allt að
2.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er 1.júní 2015
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar
reglur og leiðbeiningar er að finna
á vefsíðu myndlistarráðs
www.myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í júlí