Frjáls verslun - 01.10.2011, Qupperneq 21
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 21
Í Stuttu máli
Stjórn Samfylkingarinnar í
Þingeyjar sýslu er óglatt yfir
því að Ögmundur Jón a sson
innanríkisráðherra skuli ekki
hafa veitt Kínverjanum Huang
Nubo undan þágu til að kaupa
jörðina Grímsstaði á Fjöllum. Ögmundur
fór að lögum en íbúum utan evrópska
efnahagssvæðisins er óheimilt að kaupa
jarðir á Íslandi þótt hægt sé að veita þeim
undanþágu.
Í ályktun stjórnarinnar segir: Stjórnin lýsir
ógleði sinni yfir því að atvinnuupp bygging
í Þingeyjarsýslu skuli vera orðin fórnarpeð í
valdatafli Vinstri grænna.
Óglatt vegna Höfn-
unar ögmundar
atHugaSemd
frá birni val
Björn Valur Gíslason alþingismaður gerir
at hugasemdir við frétt Frjálsrar verslunar
um að hann og Mörður hafi í umræðum á
Alþingi fagnað því að Alcoa hafi hætt við að
reisa álver á Bakka. Björn hafnar því að hafa
fagnað ákvörðun Alcoa og að ekki sé hægt
að finna þeim fögnuði stað í ræðu hans.
Ekki vill Frjáls verslun hafa Björn fyrir rangri
sök frekar en nokkurn annan og biður hann
afsökunar á að hafa rangtúlkað orð hans á
Alþingi.
Orðrétt sagði Björn í umræðunum á Alþingi:
„Hitt er í sjálfu sér áhugavert að Alcoa telur
sig ekki vera samkeppnishæft um verð á
orkunni sem þegar er til og kann að finnast
á orkusvæðum í Þingeyj arsýslum. Það segir
okkur að einhverjir aðrir eru tilbúnir að koma
að nýtingu orkunnar á svæðinu og greiða
fyrir hana viðunandi verð. Það eru góðar frétti r
og gefa fyrirheit um atvinnuuppbyggingu á
Norðurlandi byggða á raunhæfum kostum í
stað þeirra skýjaborga sem reistar hafa verið
á undanförnum árum.“
24 undanþágur vegna Jarðakaupa
1. Íslandsbanki hf. 21,04%
2. Framtakssjóður Íslands 19,01%
3. Lífeyrissjóður verslunarmanna 14,36%
4. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 7,40%
5. Glitnir banki hf. 3,64%
6. Stefnir – ÍS-5 2,99%
7. Stefnir – ÍS-15 2,75%
8. Stafir lífeyrissjóður 2,27%
9. Úrvalsbréf Landsbankans 2,13%
10. Sameinaði lífeyrissjóðurinn 2,06%
11. SPB hf. 1,87%
12. MP banki hf. 1,40%
13. Akkur SI 1,06%
14. Gildi lífeyrissjóður 1,05%
15. Íslandssjóðir 0,86%
16. GAMMA: EQ1 0,83%
17. Eftirlaunasj. atvinnuflugmanna 0,74%
18. Alnus ehf. 0,66%
19. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 0,65%
20. Stefnir – Samval 0,64%
SelJa
SJálfum Sér
Framtakssjóðurinn, sem er í eigu sextán líf eyris sjóða og Landsbankans, seldi nýlega 10% hlut í Icelandair Group fyrir 2,7
millj arða króna og hagnaðist nokkuð á þess um
viðskiptum. Nokkra athygli vakti að nokkrir
líf eyr is sjóðir, sem eiga í Fram taks sjóðnum, voru
umsvifa mikl ir í kaupunum og keyptu um 7%
hlut af 10% hlutn um sem Fram takssjóðurinn
seldi. Haft hefur verið á orði að það mætti líkja
þessu við að sjóðirnir hefðu byrjað á að selja
sjálfum sér með miklum hagnaði og notað síðan
peningana sem sjálf stæðir lífeyris sjóðir til að
bæta við hlut sinn í Icelandair.
Hér má sjá listann yfir 20 stærstu hluthafa Icelandair Group:
þOrkell Svarar ariOn banka
Valdatafl:
Nokkuð merkilegar umræður urðu á dögunum um völd Framtakssjóðs
í viðskipta lífi nu. Þetta byrjaði
á því að grein ingar deild Arion
banka sagði í Markaðspunktum
að sjóðurinn væri efnahagslegt
stórveldi á íslenskan mælikvarðá
með 54 milljarða hluta fjárloforð.
Greiningardeildin sagði enn
frem ur: „Með smá ýkjum (og
gírun) mætti segja að fyrir svona
mikið eigið fé mætti kaupa flest öll
fyrirtæki landsins og fer Fram
taks sjóðurinn því með mikil
völd, sem gætu kannski verið
vand meðfarin.“ Greiningardeildin
spurði sig síð an að því – í ljósi sölu
Fram takssjóðsins á 10% hlut í
Icelandair – hvort ein staka líf
eyrissjóðir hefðu ekki getað keypt
milli liðalaust t.d. í Iceland air
Group á sínum tíma.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnar
for maður Framtakssjóðs Íslands,
sendi þegar frá sér yfirlýsingu og
gagnrýndi harðlega umfjöllun
greiningardeildar Arion banka
um sjóðinn og sagði að með því
að benda á völd Fram taks sjóðsins
væri bankinn að draga athygli
frá þeim völdum og ábyrgð sem
bankinn og eigendur hans hefðu í
atvinnulífinu.
„Staðreyndin sé sú að nú þegar
hafi sjóðurinn fjárfest fyrir sem
nemi um 60% af sinni fjár fest
ingargetu, sem sé í heild um 54
milljarðar króna, og muni ekki
skuldsetja sig við hluta bréfakaup.“
Með öðrum orðum:
Engin gírun þegar kemur að
Framtakssjóðnum.
Þorkell Sigurlaugsson.
Fram kom á Eyjunni á dög unum að alls hefðu 24 undan
þágur verið veittar vegna jarða
eða fast eignakaupa erlendra
aðila utan evrópska efnahags
svæði sins síð ast liðin fjögur ár,
sam kvæmt upp lýs ingum frá
innanríkis ráðuneyt inu. Af
þeim undanþágum sem gefnar
hafa verið frá árinu 2007 er þó
í langflestum tilfellum um að
ræða kaup á fasteignum en ekki
jörðum. Aðeins ein undanþága
hefur verið veitt vegna kaupa á
fimm tán hektara jörð á þessum
tíma auk tveggja undanþága
vegna kaupa á sumarhúsalóðum.
Eru það Bandaríkjamenn sem
oftast hafa fengið slíka undan
þágu eða alls tíu sinnum.
Helsta dæmið um umsvifa mik
il jarðakaup manns utan EES
svæðisins hér á landi var árið
2003 þegar Sviss lendingurinn
Rud olf Lamprecht keypti jörðina
Engi garð í Heiðardal.