Frjáls verslun - 01.10.2011, Page 29
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 29
KoníaK frá Martell
Martell VSOP: rafgullið. Þurrt, mjúkt, þurrkaðir
ávextir, eik, vanilla, púðursykur.
Martell Cordon Bleu: rafbrúnt. sætuvottur, mjúk
fylling. vanilla, kara mella, mandarínur. Milt, langt
eftirbragð.
Martell XO: Þurrkaðir ávextir og hunang,
smáleður í nefi. rúnnað og ávaxtaríkt á tungu,
mjög fínlegt og mjúkt. (Flaskan er ekki til í
vínbúðunum um þessar mundir en hægt er að
sérpanta, tekur þrjá til fjóra daga.)
Blandað visKí frá
Ballantines
Ballantines Finest: Gullið. Þurrt, meðalfylling.
Mór, malt, korn. Heitt eftirbragð.
Ballantines 12 ára: Gullið. Þurrt, meðalfylling,
malt, korn, leður, kryddaður mókeimur og
ávaxtatónar.
Ballantines 17 ára: rafgullið. Meðalfylling, ósætt.
leður, reykur, korn, ristaðir tónar.
Bragðað var á þessum tegundum
klúbburinn t.d. eigin vínsmökkunarglös sem eru
sérmerkt. Á síðasta ári var ákveðið að útvíkka
starfsemi Eaux de Vie með því að taka jafnframt
fyrir aðrar gerðir víns á fundum klúbbsins. Í
tengslum við það var ákveðið að breyta nafninu
yfir í Eaux de Vie –vínklúbbur, en áður nefndi
klúbburinn sig alltaf koníaksklúbb.
Vínkynningar
Starfsemi Eaux de Vie – vínklúbbs er með því
sniði að haldnar eru reglulega vínkynningar
fyrir klúbbmeðlimi, þar sem gjarnan mæta full
trúar innflytjenda og kynna vörur sínar, líkt og
Mekka gerir hér á Holtinu í kvöld. Á þess um
kynningum er farið yfir ákveðið ferli við smökk
un á viðkomandi tegundum og hverri gerð gefin
einkunn. Þessir fundir eru að meðaltali þrír til
fimm á ári.
Auk þess hittast félagsmenn mánaðarlega á
hádegisfundum. Við höldum einnig árlega árs
hátíð og við það tækifæri er mökum boðið með.
Félagsmenn fóru í heimsókn til Cognac í
Frakklandi árið 2000 og í ferðinni voru tólf
góðir menn. Við heimsóttum nokkra af stærri
framleiðendum koníaks. Klúbburinn stefnir á að
fara aftur í sambærilega ferð haustið 2012.“
Martell VSOP hafði vinninginn
Klúbbfélagar voru ánægðir með vínsmökkunar
kvöldið á Holti í boði Mekka og sögðu glaðir
í bragði að þeir væru sammála um að Martell
VSOP væri besta koníakið í þessari smökkun,
sérstaklega miðað við verð.
Ýmsan fróðleik bar á góma á kynningarkvöld inu, m.a. að Ballantines Finest hefur verið kjörið besta óaldurstilgreinda
skoska viskíið hjá Jim Murry í ritinu Whisky
Bible. Fram kom einnig að Ballantines 17 ára er
mest verðlaunaða viskí ársins 2011 og var það
auk þess valið besta viskí í heimi af Jim Murry í
fyrrgreindri Whisky Bible. Til gamans má geta
þess að þar á bæ voru smakk aðar 4.500 tegundir
á árinu!
Í keppninni IWSC (International Wine & Spirit
Competiton) trónaði einnig Ballantines 17 ára á
toppnum sem besta viskí heims.
„Starfsemi Eaux de Vie –
vínklúbbs er með því sniði
að haldnar eru reglu lega
vínkynningar fyrir klúbb
meðlimi.“