Frjáls verslun - 01.10.2011, Side 51
FRJÁLS VERSLUN 10. TBL. 2011 51
Hagnýt jólagjöf sem hentar öllum vel
– Jólagjafakörfurnar frá Kjarnafæði vinsælar hjá fyrirtækjum
ólagjafakörfunar eru
eitt af því sem einkenn
ir aðventuna hjá starfs
fólki Kjarnafæðis, en æ
algengara er að fyrir
tæki gefi starfsfólki sínu
slíkar körfur í jólagjöf –
sem og viðskiptavinum.
Lögð er áhersla á fjölbreytt
úrval og eru körfurnar til í alls
tíu útgáfum. Gunnlaugur Eiðs
son segir að einnig komi margir
viðskiptavinir með séróskir um
innihald og við því sé orðið.
„Þannig að útgáfurnar eru
margar og mismunandi,“ segir
hann. „Kjarnafæði sendir jóla
gjafakörfur sínar hvert á land
sem er og engin sending er of
stór eða lítil.“
Í körfunum er að finna kjöt
meti af ýmsu tagi, hamborgar
hrygg og/eða hangikjöt auk
þess sem góðgæti af margvís
legu tagi fylgir með, kryddpyls
ur, graflax, ostar, konfekt og
meðlæti ýmiskonar.
„Frá því við byrjuðum að bjóða
upp á jólagjafakörfur hefur verið
stöðug aukning, það er greini
legt að starfsfólk kann að meta
það að fá hagnýta jólagjöf frá
fyrirtæki sínu. Þetta er gjöf sem
nýtist öllum og ekki síst þegar
þröngt er í búi, þá er gjöf af
þessu tagi veruleg búbót,“ segir
Gunnlaugur.
Afurðir úr reyktu og sölt
uðu kjöti sérgrein Kjarna
fæðis
„Undirbúningur fyrir jólatörn
ina og jólagjafakörfurnar byrjar
strax á haustin og stigmagnast
eftir því sem á líður,“ segir
Gunn laugur. „Jólahlaðborð
veit ingahúsanna hefjast gjarnan
um miðjan nóvember og mörg
þeirra eru stórir viðskiptavinir
Kjarna fæðis.“
Þá nefnir hann að kjötvörur af
ýmsu tagi séu gjarnan á tilboðs
verði í nóvember og æ fleiri
nýti sér að gera hagstæð kaup á
þeim tíma.
Framleiðsla fyrirtækisins er
afar fjölbreytt en segja má að af
urðir úr reyktu og söltuðu kjöti
séu sérgrein þess. Vöruvöndun,
gæði og hollusta matvæla er í
fyrirrúmi við framleiðsluna auk
þess sem það leggur áherslu á
skjóta og góða þjónustu.
Húskarlahangikjötið einn
ig komið í áleggsbréf
Sala á hangikjöti hefur stór auk
ist, segir Gunnlaugur, en rík
hefð er fyrir því hjá þjóðinni
að borða hangikjöt á jólum.
Kofareykt hangikjöt hefur mjög
sótt í sig veðrið á liðnum árum,
Íslendingum finnst það ekta og
það minnir þá á gömlu góðu
dagana.
„Við leggjum áherslu á að reykja
kjöt með gömlum aðferð um og
fyrir vikið fáum við bragðmikið,
léttsaltað kjöt sem landsmönnum
virðist falla einkar vel í geð,“ seg
ir Gunn laugur. Þá nefnir hann
að sú stefna að mæta kröfum
neytenda um hollustu matvæla
eigi ekki síður upp á pallborðið
hjá viðskiptavinum.
Húskarlahangikjötið, sem
Kjarnafæði hefur framleitt í ríf
lega áratug, verður æ vinsælla
eftir því sem árin líða og hefur
á mörgum heimilum skapast sú
hefð að hafa slíkt læri hangandi
uppi á aðventunni og bjóða
heim ilismönnum og gestum að
bragða á góðgætinu.
Húskarlahangikjötið er borið
fram hrátt, en er fullverkað og
þess neytt á svipaðan hátt og
hráskinku. „Vinsældir húskarla
hangikjötsins hafa vaxið mjög
með árunum og fyrir þess jól
bjóðum við það niðurskorið í
bréfum.“
„Lögð er áhersla á
fjölbreytt úrval, körf
urnar eru til í alls tíu
útgáfum en Gunn laug
ur segir að einn ig komi
margir viðskipta vinir
með sér óskir um inni
hald og við því
sé orðið.“