Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 8
8 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
PricewaterhouseCoopers er alþjóðlegt
þjónustufyrirtæki sem er stærst sinnar teg-
undar í heiminum. Í krafti stærðar sinnar
getur PwC boðið viðskiptavinum sínum
þjónustu hæfustu sérfræðinga á sviði end-
urskoðunar, skattaréttar og
ráðgjafarþjónustu víðsvegar
um heiminn. Skatta- og
lögfræðisvið PwC býður
viðskiptavinum sínum
margvíslega þjónustu á sviði
skattaréttar og almennrar
lögfræði. Starfsmenn sviðs-
ins búa yfir mikilli reynslu
og hafa yfirgripsmikla þekk-
ingu á þessu sviði. Skatta-
og lögfræðisvið stendur
einnig fyrir útgáfu á efni
um skattarétt og tengd
mál. Skattavaktin er mán-
aðarlegt fréttabréf þar sem
sérfræðingar PwC skrifa
um skattaleg málefni og
það sem efst er á baugi þá stundina. Einnig
er gefinn út Skattabæklingur á hverju ári,
bæði á rafrænu formi og prentuðu, þar sem
dregnar eru saman ýmsar skattaupplýsingar
og tölur á aðgengilegu formi.
Starfsemi skatta- og lögfræðisviðs
fyrirtækisins hefur farið vaxandi á und-
anförnum árum. Að mestu hefur þjónustan
falist í aðstoð við fyrirtæki og einstaklinga í
alþjóðlegum skattamálum. Á sviðinu starfa
átta lögfræðingar, einn endurskoðandi og
einn verkefnaráðinn lögfræðingur, samtals
tíu manns, auk þess sem viðskiptafræðingar
og endurskoðendur fyrirtækisins vinna
einnig að þessum málum. Sviðsstjóri skatta-
og lögfræðisviðs er Elín Árnadóttir.
Skattavaktin
Í desemberútgáfu Skatta-
vaktarinnar er ítarleg
umfjöllun um þær breyt-
ingar sem voru gerðar á
skattalögum á síðasta ári
og í byrjun árs 2010, en
veigamiklar breytingar hafa
verið gerðar sem hafa bæði
áhrif á einstaklinga og lög-
aðila, innlenda sem erlenda.
Þessar breytingar og fyr-
irhugaðar breytingar á þessu
ári gera það að verkum
að erfitt getur verið fyrir
fyrirtæki og einstaklinga
að vinna í sínum málum
nema með aðstoð sérfræðinga sem hafa
kynnt sér málið í öllum atriðum. Að sögn
sérfræðinga á skatta- og lögfræðisviði PwC
hefðu þeir viljað að farið hefði verið aðeins
hægar í breytingarnar og að pakkinn hefði
verið heilsteyptari þegar hann var settur
fram. Ljóst er að mikil vinna er framundan
hjá sérfræðingum PwC í skattamálum.
Fyrir þá sem vilja kynna sér breytingarnar
á skattalögunum er bent á Skattavaktina á
vefsíðu PwC.
Skiptir sköpum að huga
vel að skattamálum
Stór hluti viðskiptavina PwC eru alþjóðleg
fyrirtæki með starfsemi í ólíkum löndum.
Þá getur skipt sköpum að huga vel að
skattamálum við skipulagningu starfsem-
innar þar sem skattskipulagning einstakra
viðskipta getur haft mikil áhrif á hagnað
fyrirtækja. Þau atriði sem horft er til lúta
að fjármögnun, félagsformi, eignarhaldi,
verðlagningu og gjaldfærslum, svo dæmi séu
tekin.
Þar sem skattkerfið er eitt mikilvægasta
tæki réttarríkisins er meðferð skattamála
mjög vandmeðfarið verkefni. Afar brýnt er
að réttlætis sé gætt og fólki ekki mismunað
því reynslan virðist sýna að undanskot
og skattsvik aukist ef fólki finnst kerfið
ósanngjarnt. Síðast en ekki síst verður að
hafa í huga að nýta má skattareglur til að
ýta undir nýsköpun og ýmiss konar frum-
kvöðla- og þróunarstarf.
Skatta- og lögfræðisvið
Reynsla
og þekking
á skattamálum
Hluti af starfsfólki á skatta- og lögfræðisviði
PwC, talið frá vinstri Friðgeir Sigurðsson,
Elín Árnadóttir, Elísabet Guðbjörnsdóttir,
Jón Ingi Ingibergsson, Halla Ýr Albertsdóttir,
Ásta Kristjánsdóttir og Bryndís Gunnlaugs-
dóttir.
Skattavaktin er mánaðarrit
sem PwC gefur út á Netinu
Hægt er að sækja um áskrift á
www.pwc.is.