Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 21
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 21
tíma fjölskyldunni kost á að stýra fyrirtækinu áfram
– halda um stjórnvölinn.
Þá hafa málefni Samskipa verið í brennidepli
en fjárfestingafélagið Kjalar, sem var m.a. stærsti
eigandi Samskipa, á í miklum erfiðleikum. Nýja
félagið, Samskip Management Team Partners,
SMT, eignast 90% í Samskipum. Fjárhagsleg end-
urskipulagning Samskipa var gerð í samráði við
stærstu viðskiptabanka fyrirtækisins, hollensk-belg-
íska bankann Fortis og Arion-banka. Fram til þessa
hefur Kjalar, félags Ólafs Ólafssonar, verið stærsti
eigandi Samskipa. Félagið er skuldum hlaðið og
rekstur þess liggur niðri. Hlutur þess í SMT verður
innan við 5%. Stjórnendur Samskipa verða stærstu
hluthafarnir í SMT og mun Ólafur Ólafsson eiga
stærstan hlut.
Stóra spurningin er auðvitað: hverjir eiga fé til
að kaupa fyrirtæki sem bankarnir hafa tekið yfir?
Hverjir hafa áhuga? Verða lífeyrissjóðirnir tilbúnir
til að gera sig gildandi? Hvað með þá Íslendinga
sem eiga um 1.700 milljarða í tryggðum inn-
stæðum í bönkunum eftir að hafa hoppað út úr
útlánabólunni á heppilegasta tíma með stórgróða
og lagt féð inn í banka?
Bankarnir eru ósnertanlegir og mörgum finnst
ríkisstjórnin frekar áhorfandi en gerandi. Banka-
leyndin um tugmilljarða afskriftir er yfirþyrmandi.
Eru bankarnir t.d. búnir að afskrifa lán bankamann-
anna sjálfra til hlutabréfakaupa á meðan fólki finnst
lítið gerast í sínum málum innan bankanna?
Hverjir eignast
Ísland?
HVERJIR EIGNAST ÍSLAND?
Fyrrum eigendur
fyrirtækjanna?
Lífeyrissjóðirnir?
Gömlu
viðskiptablokkirnar?
Erlend
stórfyrirtæki?
Erlendir
fjárfestar?
Eignaumsýslufélög
bankanna?
Smáir fjárfestar
í gegnum
Kauphöllina?
Innlend
stórfyrirtæki?
Innlánseigendur
sem hoppuðu út
úr bólunni á
réttum tíma?
Ríki og
sveitarfélög?
Erlendir eigendur
bankanna?