Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Forsíðu grein
Hverjir eignast
Ísland?
Fyrrum eigendur
fyrirtækjanna
Flestum finnst það siðferðilega rangt að eigendur
fyrirtækja fái skuldir sínar afskrifaðar hjá bönkum
en haldi engu að síður fyrirtækjunum. Svo ekki
sé talað um ef þeir eru orðnir fyrrverandi eig-
endur fyrirtækjanna, þ.e. bankarnir hafa tekið
fyrirtækin yfir. Ekki er nokkur vafi á því að eftir
að Arion banki ákvað að setja Haga í skráning-
arferli í Kauphöllinni og gefa Bónusfjölskyldunni
kost á að stýra fyrirtækinu áfram og kaupa sig
inn í það aftur má búast við að fleiri vilji fá sömu
úrræði. Að jafnt skuli yfir alla ganga. Að bankinn
afskrifi skuldir og gefi fyrrverandi eigendum og
frumkvöðlum, sem settu fyrirtækin á laggirnar,
kost á að kaupa þau aftur eftir að skuldavandi
þeirra hefur verið leystur og skuldir afskrifaðar.
Almenningur er að vísu ekki hlynntur þessu.
gömlu
viðskiptablokkirnar
Gömlu viðskiptablokkirnar eru verulega lask-
aðar en þær eru ekki alveg dauðar úr öllum
æðum þótt þær hafi tapað bönkunum og stóru
eignarhaldsfélögum sínum. Þær koma ennþá
að nokkrum stórfélögum í íslensku viðskiptalífi
eins og Actavis Group, CCP, Novator, Nova, Verne
Holding, Alfesca, Samskip, Iceland Express,
365, Lyf og heilsa, Bakkavör Group og þá mun
Bónusfjölskyldan stýra áfram Högum og öllum
þeim fjölda verslana sem þar heyra undir.
Spurningin er þessi: Mun gömlu viðskiptablokk-
unum vaxa fiskur um hrygg á næstu tveimur
árum og þær hefja fjárfestingar í íslensku
atvinnulífi að nýju og kaupa fyrirtæki sem núna
eru í eigu banka og kröfuhafa. Það er hægur
vandi fyrir gömlu viðskiptablokkirnar að braggast
þegar hjólin taka aftur að snúast.
lífeyrissjóðirnir
Það hefur verið mikið rætt um að íslenskir
lífeyrissjóðir láti að sér kveða við kaup á fyr-
irtækjum sem hafa lent hjá bönkunum. Þeir
hafa eyrnamerkt 30 milljarða í þetta verkefni.
Varla kaupa lífeyrissjóðir í öðrum fyrirtækjum
en þeim sem eru skráð í Kauphöllinni. Fyrir
áramót stofnuðu sextán lífeyrissjóðir svonefndan
Framtakssjóð Íslands sem er fjárfestingarfélag
sem er ætlað að taka þátt í og móta fjárhags-
lega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnu-
lífs í kjölfar falls fjármálakerfisins. Stofnendur
sjóðsins ráða yfir um 64% af heildareignum
lífeyrissjóða á Íslandi. Þeir hafa skuldbundið sig
til að leggja nýja fjárfestingarsjóðnum til um 30
milljarða króna í hlutafé. Enn er opið fyrir skrán-
ingu hlutafjár í Framtakssjóðinn.
tExtI: JÓN G. HAUKSSoN