Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Qupperneq 27

Frjáls verslun - 01.01.2010, Qupperneq 27
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 27 Hvað eiga vÍkingarnir núna? Pálmi Haraldsson Pálmi í Fons fjárfesti mjög náið með Jóni ásgeiri Jóhannessyni í FL Group og Big Food Group sem átti meðal annars matvörukeðjuna Iceland en í henni var Pálmi stjórnarformaður eftir kaupin. Þá urðu fræg tengsl Pálma og Jóns ásgeirs þegar Pálmi seldi FL Group flugfélagið Sterling á uppsprengdu verði. Ennfremur lágu leiðir þeirra saman í Landic Property. Pálmi á núna í gegnum fjárfesting- arfélag sitt Feng flugfélagið Iceland Express og Ferðaskrifstofu Íslands. Fons er hins vegar farinn á höfuðið. Ólafur Ólafsson í Samskipum Helstu eignir Ólafs Ólafssonar í Samskipum eru Samskip og Alfesca. Bæði þessi fyr- irtæki eru fyrst og fremst með umsvif erlendis, á alþjóðlegum vettvangi. Hollensk- belgíski bankinn Fortis hefur ráðið ferð- inni í endurfjármögnun nýs móðurfélags Samskipa. Arion banki hefur setið þar í aftursætinu og lítið haft um málið að segja. Arion banki tók aldrei yfir hlutabréfin í Samskipum. Ólafur var helsti eigandi fjárfestingarfélagsins Kjalars sem átti yfir 10% hlut í Kaupþingi og stærstan hluta í Samskipum. Hlutaféð í Kaupþingi er glatað og þar með gjörbreyttist staða félagsins á einni nóttu. Veð fuku. Kjalar hefur hins vegar gert 146 milljarða kröfu á gamla Kaupþing vegna gjaldmiðilsskiptasamninga. Wernersbræður Þeir eiga Lyf og heilsu. Karl Wernersson á þar 60% hlut á móti 40% hlut Steingríms bróður síns. Þá á Karl Hljóðfærahúsið við Síðumúla og hrossaræktarbú fyrir austan fjall. umsvif þeirra bræðra voru mikil um tíma í kringum Milestone en það félag kom að Glitni, Askar Capital, Sjóvá, Carnegie og Moderna í Svíþjóð. Fram hefur komið í fjöl- miðlum að félag bræðranna, sem heitir Aurláki ehf., keypti Lyf og heilsu út úr Milestone-samsteypunni fyrir um 3,4 milljarða króna fyrir um einu ári, en um 2,5 milljarðar af kaupverðinu voru greiddir með yfirtöku skulda. Í úttekt Ernst & young á viðskiptum Milestone við tengda aðila kemur hins vegar fram að 896 milljónir króna hafi verið „viðskiptafærðar og skulu greiðast við fyrstu hentugleika samkvæmt samningi“. Björgólfsfeðgar Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota. Björgólfur thor er hins vegar aðaleigandi Actavis Group. Fyrirtæki hans Novator á um 37% í tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Það á einnig í hlut í Verne Holding gagnaverinu. átti fyrst tæplega 40% en stjórnmálamenn hafa viljað útvatna þann hlut og virðist hann ætla að verða um 20%. Björgólfur thor á einnig síma- fyrirtækið Nova.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.