Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Forsíðu grein
Gylfi Magnússon á Alþingi:
enginn vill framselja
dómsvald til
bankamanna
Menn saklausir þar til sekt er sönnuð, segir Gylfi.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði nýlega á Alþingi í umræðum um
verklagsreglur bankanna að regluverkið yrði að vera skýrt en sú vinna yrði
aldrei þannig að öllum líki.
Gylfi sagði ennfremur að við vinnu bankanna þyfti að halda í heiðri nokkur
sjónarmið, fyrst og fremst reglur réttarríkisins; að menn væru saklausir þar til
sekt væri sönnuð.
Gylfi sagði ennfremur að það væri dómskerfisins að refsa mönnum en ekki
bankakerfisins og enginn vildi framselja það vald til bankamanna. Hann
sagði að ekki yrði farið út fyrir ramma réttarríkisins en sagðist
skilja það vel að mönnum þætti súrt að sjá menn,
sem gengið hefðu freklega gegn þjóðinni,
endurreisa sín viðskiptaveldi.
Reiðin mikil:
Finnur harðlega
gagnrýndur
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, hefur mátt þola harða
gagnrýni í fjölmiðlum vegna Haga og Samskipa.
Bónusfjölskyldan mun stýra Högum áfram og bankinn treystir henni
best til að reka fyrirtækið og afla því vinsælda sem fjárfestingarkosti í Kaup-
höllinni á meðal almennings og fagfjárfesta.
Finnur hefur sagt í fjölmiðlum að stjórn bankans taki allar meiriháttar
ákvarðanir og hann ætli ekki að gefa út siðgæðislista um hverjir megi kaupa
fyrirtæki og hverjir ekki. Það sé ekki hans mál að gera það.
Hann segir að stjórn bankans standi frammi fyrir hluthöfum sem séu
almenningur á Íslandi og kröfuhafar gamla Kaupþings og þurfi að réttlæta
og útskýra ákvarðanir sem gætu kostað bankann milljarða króna.
Finnur segir m.a. í athyglisverðu viðtali við Morgunblaðið að bankinn
hafi ekki fundið fyrir því að undanförnu að fólk flytti viðskipti sín.
Hann segir í viðtalinu að bankinn leiti alltaf lausna með stjórnendum
og eigendum, hverra sem eiga í hlut hverju sinni. „Það gildir það sama um
Bílaverkstæði Badda, Jón bónda og Haga. Við vorum í þessu ferli með fyrr-
verandi eigendum 1998 sl. haust. Jóhannes Jónsson gerði bankanum tilboð
um að kaupa félagið í haust og það varð til þess að við urðum bæði að meta
það og aðra kosti, sem komu til greina.“
Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra.
Hann bætir því við að til greina hafi komið varðandi Haga
að brjóta upp félagið og selja einstakar einingar eða selja félagið
í gegnum Kauphöllina. „Niðurstaða bankans varð sú að við
ættum að selja félagið í opnu útboði og skrá það í Kauphöll
Íslands.“
Í viðtalinu í Morgunblaðinu segir Finnur að bankinn hafi
ekki verið leiðandi og ráðið ferðinni í máli Samskipa heldur hol-
lensk-belgíski bankinn Fortis. Arion banki hafi aldrei ráðið yfir
hlutabréfum Samskipa eins og bankinn gerði í tilviki Haga.
Finnur segir að ákvarðanir geti ekki verið öllum aðgengilegar
vegna trúnaðar við viðskiptavini og hagsmuni viðkomandi fyr-
irtæja. „Hins vegar eru allar ákvarðanir rökstuddar, skráðar og
skjalaðar og því geta viðeigandi eftirlitsaðilar gengið úr skugga
um hvort þær séu réttmætar.“
Finnur Sveinbjörnsson.