Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
v i ð t A l
Ýmislegt hefur gengið hægar fyrir sig en talið var í fyrstu og verk-efnið er flóknara en menn héldu,“ segir Ásmundur Stefánsson, hag-
fræðingur og fyrrum forseti ASÍ og fyrrum
ríkissáttasemjari og nú bankastjóri Lands-
bankans – NBI hf. um ástæðu þess að hann
er þar enn við stjórnvölinn meira en ári eftir
að hann kom fyrst að rekstri bankans, sem
formaður nýs bankaráðs og svo bankastjóri.
Og Ásmundur er eins og hinir banka-
stjórar „nýju“ bankanna umdeildur, sér-
staklega vegna þess að bankinn verður stöð-
ugt meira áberandi í atvinnulífinu. Umsvif
bankans hafa ekki aukist en skuldsetning
fyrirtækja hefur aukist og verkefnin eru því
önnur og annars konar en þau voru.
Vestia, eignarhaldsfélag bankans, á nú
að fullu eða stóran hlut í sjö félögum. Að
auki er bankinn stór lánardrottinn annarra
skuldsettra fyrirtækja. Þetta er staðan nú í
upphafi annars ár eftir Hrun. Það eru uppi
spurningar um hvernig bankar ráðstafa þeim
eignum sem þeir taka upp í skuld – og taka
ekki upp í skuld.
Einnig er spurt um hvenær þeirri bráða-
birgðaráðstöfun ljúki að Ásmundur stýri
bankanum. Staðan hefur aldrei verið auglýst.
Hann segir sjálfur að nú sé þess ekki langt að
bíða að hann láti af störfum. Nýtt bankaráð
verði væntanlega skipað á vordögum og þá
verði auglýst eftir bankastjóra.
Erfitt uppgjör
Allt er þetta þó seinna en ráð var fyrir
gert og uppgjör Landsbanka erfiðara en
hinna bankanna, meðal annars vegna þess
að innistæðueigendur eru stórir kröfuhafar
og þeirra kröfur eru nú eign ríkissjóða í
Bretlandi og Hollandi.
„Það hefur legið fyrir að áhugi þessara
kröfuhafa á að eignast banka á Íslandi er
lítill og raunar enginn. Kröfuhafar hinna
bankanna eru að stórum hluta erlendir
skuldabréfasjóðir og þeir hafa fallist á að verja
hagsmuni sína með því að eignast bankana,“
segir Ásmundur.
Ásmundur kom fyrst að eftirmálum
bankahrunsins sem ráðgjafi ríkisstjórnarinnar
í október árið 2008 – tíu dögum eftir Hrun.
Í framhaldi af því varð hann formaður
bankaráðs Nýja Landsbanka og bankastjóri
þar 1. mars 2009 eftir að Elín Sigfúsdóttir
sagði upp. Í upphafi var gert ráð fyrir því að
ráðningin væri til 3-6 mánaða en nú er ljóst
að hann mun sitja í meira en ár.
„Ég vil ekki hlaupast frá verkum mínum,
er ekki vanur því,“ segir Ásmundur og
vísar til þess að enn sé mikið ógert við end-
urreisn bankans og endurskipulag fjármála
viðskiptavina hans.
,,Meðal annars að ákveða hver þeirra
félaga sem skuldsettust eru verði endurreist
með sama eigendahópi, hver verði gjaldþrota
seld og hver verði í höndum dótturfélaga
bankans í einhvern tíma,“ segir Ásmundur.
„Hrollvekjufullyrðingar um krumlur
bankanna sem gleypi fyrirtæki af hreinni
valdagræðgi eru hins vegar settar fram af
fólki sem ekki hefur haft fyrir því að kynna
sér málin. Bankinn hefur ekki heldur farið
fram af tillitsleysi. Bankarnir hafa ekki vaðið
fram eins og fílar í postulínsbúð og brotið
allt og bramlað. Þeirra hlutverk er að ná
hámarksendurheimtum fyrir kröfuhafa og
eigendur, jafnframt því að taka tillit til
samkeppnisaðstæðna og samfélagslegra áhrifa
ákvarðananna.
safnar ekki efni í eftirmæli
Það eru ákvarðanir stjórnenda bankana
um framtíð einstakra fyrirtækja sem orka
tvímælis hverju sinni og valda ádeilum á
bankastjóra eins og Ásmund Stefánsson.
ÁSmUNdUR StEFÁNSSON, BANKAStJÓRI LANdSBANKANS – NBI HF.
FÉKK ErFiðAstA
BAnKAnn
Í lífi heillar kynslóðar á Íslandi hefur Ásmundur Stefánsson alltaf verið í fréttunum.
Og hann er enn í eldlínunni, nú sem bankastjóri Landsbankans. Sjálfskipaður segja sumir,
óumdeilanlega áhrifamikill og situr enn, löngu eftir að hann ætlaði að hætta.
tExtI: gísli kristjánsson • myNdIR: geir ólafsson