Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 41
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 41
v i ð t A l
Eiginlega var hann um það bil að setjast í
helgan stein þegar Hrunið varð. Hafði sagt
upp stöðu sinni sem ríkissáttasemjari og átti
að hætta 1. nóvember 2008 og hugðist snúa
sér að lífi pensjónistans eftir nærri 40 ár í
sviðsljósinu.
Óttast hann ekki að umdeildar ákvarðanir
í bankanum varpi skugga á annars farsælan
feril?
„Því fer víðs fjarri að ég hafi verið
óumdeildur á mínum ferli. Það væri
trúlega nær sanni að segja að ferill minn
samanstandi af umdeildum ákvörðunum,“
svarar Ásmundur.
„Ég hef aldrei unnið til þess eins að safna
efni í eftirmæli og hef engin áform um að
skrifa endurminningar mínar. Ég hugsa nú
eins og alltaf um að leysa verkefnin sem
mér eru falin, en ekki hvað gæti staðið í
einhverri minningargrein,“ segir Ásmundur
en viðurkennir að stundum finnist honum
gagnrýnin óréttlát og ekki alltaf á þekkingu
og traustum rökum reist.
tökum helst ekki fyrirtæki
„Við vinnum eftir föstum reglum um með-
ferð skuldugra félaga,“ segir Ásmundur.
„Meginreglan er að komast hjá því að taka
yfir fyrirtæki. Bankinn hefur alla jafna ekki
áhuga á að standa í atvinnurekstri. Öll vinna
miðar að því að halda fyrirtækjunum í rekstri
án yfirtöku. Hitt er neyðarúrræði.“
Niðurfellingu á kröfum segir Ásmundur
koma til greina ef nýtt fé kemur inn í fyr-
irtækið. Og þarna er umdeilt matsatriði
hvort fyrri eigendur geti haldið fyrirtækjum
og fengið felldar niður skuldir gegn því að
leggja fram nýtt eigið fé.
„Ef við neyðumst engu að síður til að taka
fyrirtækið yfir verður að meta hvort er betra
að halda því og sjá hvort hægt er að selja
það síðar eða óska eftir gjaldþrotaskiptum,“
heldur Ásmundur áfram.
„Ef við finnum kaupendur þá seljum við,“
segir hann. „En bankinn getur líka setið
uppi með fyrirtæki og ekki náð að selja það.
Markaðurinn er mjög þungur núna og við
vitum vel hvað efnahagslífið er viðkvæmt.
Enn sem komið er hefur bankinn ekki tekið
yfir mörg fyrirtæki og stefnir eins og áður
sagði að því að þau verði sem fæst.“
óréttmæt gagnrýni
Bankastjórinn Ásmundur telur líka að
gagnrýnin á bankana og meinta hörku þeirra
sé óréttmæt.
„Það kemur mörgum á óvart að þrátt
fyrir hrunið á Íslandi er atvinnuleysi hér
umtalsvert lægra en í Evrópusambandinu
og Bandaríkjunum,“ segir Ásmundur. „Þar
skiptir gengisskráningin miklu en ég fullyrði
að skynsamlegt verklag bankanna skiptir
einnig miklu. Vegna hófsamrar framgöngu
bankanna er atvinnuleysi að mínu mati
minnst 2-3% lægra en ella væri.“
Ásmundur segir að bankarnir hafi gefið
fyrirtækjum svigrúm til endurskipulagningar
þar sem það er unnt án þess að breyta
eignarhaldi eða afskrifa lán. Bankarnir
hafi afskrifað lán gegn því að eigendur eða
einhverjir á þeirra vegum komi með nýtt fé
inn í fyrirtækin til að treysta fjárhag þeirra og
fyrirtæki hafa líka farið beint í söluferli.
„Örfá dæmi eru um að bankarnir taki
yfir fyrirtæki og það er alltaf neyðarúrræði
og aldrei gert nema að vel yfirveguðu ráði.
Þá þarf alltaf að taka tillit til fleiri atriða
Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans – NBI hf.
„Bankinn getur ekki látið
stjórnast af orðrómi eða
gróusögum og við höfum
ekki tíma til að bíða eftir
niðurstöðu hugsanlegra
dómsmála.“