Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 42

Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 v i ð t A l en skuldaendurheimtu bankans,“ segir Ásmundur. Þarna bendir hann á Húsasmiðjuna sem dæmi. Gjaldþrot hennar hefði leitt til þess að atvinna 600 manns hefði komist í uppnám og birgjar hefðu tapað kröfum upp á tvo milljarða, sem aftur hefði haft keðjuverkandi áhrif um allt þjóðfélagið. svartur listi En hvað með samstarf við fyrri stjórnendur og eigendur – menn sem jafnvel keyrðu félögin í þrot? „Það verður að meta hverju sinni hvaða máli reynsla og þekking fyrri stjórnenda skiptir. Þetta á sérstaklega við ef eigendur voru stjórnendur líka,“ segir Ásmundur. „Í stærri fyrirtækjum ræður eigandinn sjaldan öllu um framgang fyrirtækisins. Þar sjá atvinnustjórnendur almennt um reksturinn. Í minni fyrirtækjum eru eigendurnir oft hjarta fyrirtækisins vegna sérþekkingar, reynslu og tengsla.“ Og það jafnvel þótt almenningur gruni þessa menn um misferli og jafnvel lögbrot? „Ég man ekki eftir slíku máli á mínu borði en við ákvarðanatöku horfir bankinn bæði til viðskipta- og samskiptasögu eigenda og stjórnenda,“ segir Ásmundur. „Bankinn getur hins vegar ekki látið stjórnast af orðrómi eða gróusögum og við höfum ekki tíma til að bíða eftir niðurstöðu hugsanlegra dómsmála.“ Ásmundur segir að þá yrði að búa til svartan lista og setja á hann menn sem bankar mega ekki skipta við. „Það er ekki mitt að gera það og í reynd hefur enginn umboð til þess. En við afskrifum ekki kröfur nema að fullreynt sé um innheimtu þeirra,“ segir Ásmundur. Bankamenn fyrir bilun Ásmundur er einn úr hópi þriggja manna sem tóku við formennsku í bankaráðum nýju bankanna eftir Hrun. Hinir eru Valur Valsson og Magnús Gunnarsson. Það var áhugi á að fá til starfa menn sem höfðu reynslu af bankarekstri en „fyrir bilun“ eins og Ásmundur orðar það. Núna liggur fyrir að finna endurreistum Landsbankanum nýjan bankastjóra og einnig Arion banka. Verður það einhver með reynslu frá því fyrir bilun, einhver reyndur sem var með í biluninni eða einhver reynslulaus og saklaus af allri bilun? „Ég ætla ekki að búa til lista yfir hugsanlega umsækjendur. Það er ekki mitt mál en nýtt bankaráð fær sjálfsagt svona álitamál að fást við,“ segir Ásmundur. Átök sjaldan leiðinleg „Vinnudagarnir hafa verið langir og vinnuvikurnar þéttbókaðar þann tíma sem ég hef verið í bankanum,“ segir Ásmundur, sem verður 65 ára í vor. „Átök finnast mér sjaldan leiðinleg þótt þau geti verið lýjandi. En ég mæti alltaf jafn áhugasamur á hverjum degi og vonast eftir að gera betur í dag en í gær.“ Hvað tekur við í vor veit Ásmundur ekkert um. „Ég ætla að hætta að vinna til að hætta að vinna,“ segir hann og minnir á að best sé að búa sig undir starfslok á meðan menn búa enn yfir óskertri starfsorku. „Það þarf framtak, úthald og dugnað til að geta sest í helgan stein,“ segir Ásmundur. „Ég tel að ég ráði enn við það verkefni.“ „Ég hef aldrei unnið til þess eins að safna efni í eftirmæli og hef engin áform um að skrifa endurminningar mínar.“ Samskiptabún aður Polycom fjarfu ndarbúnaður og fundarsímar · Cisco og AVAY A IP lausnir · Plantronics sím a- og tölvubú naður Rekstrarvörur Blek og tóner · Pappír · Ýmsar nauðsynj avörur fyrir tölvuumhverfið Tölvubúnaður ThinkPad fartö lvur · IdeaPad fartölvur · Lenovo borðtö lvur · Lenovo s kjáir · IBM kassalausn ir Hugbúnaður IBM hugbúna ður · Microso ft hugbúnaðu r · Symantec og Trend Micro ö ryggislausnir · VMware lausn ir fyrir sýndar vélar Prentbúnaður Canon prents miðju- og skri fstofulausnir · Lexmark pren tarar · Heidelb erg prentsmiðjula usnir Netþjóna- og tæknibúnaðu r IBM System X , Z, P, i · IBM BladeCenter · IBM System S torage · Vara aflgjafar, kælibúnaður og rekkar fr á APC Nýherji hf. Sími 569 7700 www.netverslun.is betri lausnir Nýherji er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni. Félagið býður tæknibúnað og lausnir frá heimsþekktum framleiðendum og sérfræðiþekkingu sem byggð er á áralangri reynslu. Markmið Nýherja er að veita trausta og örugga þjónustu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.