Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
n æ r m y n d a f Ó l a f i r a g n a r i g r í m s s y n i
grænir en fjarri því allir. Það er gríðarleg andstaða við Icesave-lögin
innan Vinstri grænna.“
Kominn heim
Óli Björn telur einnig að andstöðuhópurinn innan VG hafi líka verið
lítið hrifinn af Ólafi Ragnari sem forseta. Hann nefnir mann eins og
Ögmund Jónasson sem dæmi um fyrrum gagnrýnanda forsetans, sem
snerist til fylgis við hann.
Ögmundur staðfestir þetta: „Ólafi Ragnari hefur skrikað illilega
fótur á undanförnum árum á hinu pólitíska bananahýði eins og ég
gagnrýndi hann margoft opinberlega fyrir,“ segir Ögmundur.
„Þetta gerði hann með með dekri sínu og daðri við svokallað
hefðarfólk og útrásarvíkinga, sem hann um skeið lagðist út með. Nú
fæ ég ekki betur séð en að maðurinn sé kominn heim aftur. Það er
vel.“
Hégómlegur
Óli Björn segir að hégómleiki sé helsti veikleiki Ólafs Ragnars.
,,Hann lét glepjast til að taka þátt í öllum þessum glamúr sem
fylgdi útrásarvíkingunum. Þetta var afleiðing af hégómaskap,“ segir
Óli Björn og varð til þess að mörgum gömlum fylgismönnum mis-
líkaði við forseta sinn.
„Þetta breytti í sjálfu sér engu um að margir hægrimenn hafa alltaf
haft nánast óbeit á manninum. Það er gamalt og kemur verkum hans
sem forseta ekkert við,“ segir Óli Björn.
„Það nýja var að síðasta árið hafði mikill meirihluti landsmanna
snúið við honum baki. Það var erfið staða sem hann braut upp með
því að synja Icesave-lögunum staðfestingar,“ segir Óli Björn.
farþegi hjá þotuliðinu
Jón Baldvin hefur ekki heldur mikið fallegt að segja um forsetann á
tímum útrásarinnar.
„Eftir hrun sat hann uppi með að vera veislustjóri útrásarinnar
og þar vísa ég í áramótaskaupið,“ segir Jón Baldvin. „Hinn gamli
forystumaður Alþýðubandalagsins var orðinn farþegi hjá þotuliðinu
og hann hjálpaði útrásarvíkingunum pólitískt í þeim löndum þar
sem pólitíska hjálp þarf til að komast áfram. Það er í löndum Austur-
Evrópu, Indlandi og Kína. Og forsetafrúin hafði samböndin hjá ríka
og fína fólkinu í Lundúnum.“
Jón Baldvin telur engan vafa á að synjun forseta á undirskrift
hafi verið lausn á vinsældavanda. „Hann fann að hann varð að grípa
til aðgerða,“ segir Jón Baldvin. „Ég hef alltaf litið á Ólaf Ragnar
sem tækifærissinna. Vegur og velferð Ólafs Ragnars Grímssonar er
markmið Ólafs Ragnars. Að þessu leyti er hann líkur Davíð Oddssyni
enda gátu þeir aldrei unnið saman.“