Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 49

Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 49
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 49 n æ r M y n d A F ó l A F i r A g n A r i g r Í M s s y n i Óli Björn er ekki eins viss og Jón Baldvin um að Ólafur Ragnar hafi látið eigin vinsældir ráða niðurstöðunni um höfnun á Icesave- lögunum. „Ég var viss um að hann myndi skrifa undir og hélt að hann fylgdi þar flokkslínum,“ segir Óli Björn. „Þannig myndi hann halda í sitt gamla fylgi. Hann virðist hins vegar hafa ákveðið að taka mikla áhættu hvað varðar hann sjálfan og embættið. Svo er að sjá hverju það skilar.“ vandinn hjá þjóðinni Jón Baldvin segir að undirrót alls vandans sé hjá þjóðinni. Hún búi við mjög veikan pólitískan kúltúr og stjórnmálaforystan hefur komið málum í óleysanlegan hnút og til dæmis ekki tekið af öll tvímæli um valdsvið forseta. „Það er mjög erfitt að stjórna þjóð í kreppu þegar óvissa er um hvar valdið liggur,“ segir Jón Baldvin. „Lýðskrumarar eru búnir að telja fólki trú um að óvinur sé í hverju horni og að allt sé öðrum að kenna. Við skellum skuldinni á aðra og þeir sem eru að reyna að greiða úr málum sitja undir brigslyrðum um landráð og föðurlandssvik. Þetta sýnir hvað hinn pólitíski kúltúr er veikur.“ verður að breyta Óli Björn er á því að stjórnarská verði fyrr eða síðar breytt og skýrt kveðið á um völd forseta og málskotsrétt. „Það er auðvitað ekki hægt að búa til lengdar við óvissu um forsetavaldið,“ segir Óli Björn. „Hvergi í þingræðisríki hefur forseti tekið sér völd eins og Ólafur Ragnar. Fyrr eða síðar verðum við að skera úr um hvort hér gildi þingræðisreglan en þá má hugsa sér að einhver málskotsréttur verði annaðhvort hjá þjóðinni eða hjá þinginu. Hitt gengur ekki að mál séu sett í þjóðaratkvæði eftir duttlungum eins manns eða í netkosningu. Þessu verður að koma fyrir með formlegum hætti.“ Óli Björn hefur enga trú á að stjórnarskrá verði breytt þannig að forseti fái völd og stjórni ríkinu að bandarískri fyrirmynd. Fyrir því sé enginn vilji. „Breyting yfir í forsetaræði myndi ganga frá núverandi flokka- kerfi,“ segir Óli Björn. „Það kæmi upp tveggja flokka kerfi og ég er ekki viss um að núverandi stjórnmálamenn vilji það. Þess í stað verður að treysta þingræðið og taka af öll tvímæli um að valdið er hjá þinginu.“ „Það er ekki hægt að blanda þessum tveimur stjórnkerfum saman. Það verður að velja annað og hafna hinu,“ segir Óli Björn. „Þetta held ég að fólk bæði til hægri og vinstri hljóti að sjá þótt síðasta ákvörðun forsetans njóti vinsælda bæði til hægri og vinstri.“ Aðalutanríkisráðherra Forsetinn hefur síðustu vikur ekki bara farið inn á valdsvið sem áður var einungis talið hjá þinginu, hann hefur og tekið sér verkefni sem áður tilheyrðu ráðherrum. Ólafur Ragnar hefur túlkað sjónarmið „Íslendinga“ í erlendum fjölmiðlum. Þetta er annars verkefni ríkisstjórnar og utanríkisþjónustu. „Mér hefur fundist framganga Ólafs Ragnars í erlendum fjölmiðlum mögnuð,“ segir Óli Björn. „Hann er vel máli farinn á enska tungu og skeleggur en þetta er valdsvið forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Össur Skarphéðinsson er bara töskuberinn sem sagði upp. Ólafur Ragnar hefur sjáanlega ekkert samráð við ríkisstjórnina um hvað hann segir og gerir í öðrum löndum. Hann túlkar hagsmuni landsmanna sjálfur.“ Jón Baldvin segir að enginn fyrri forseta hafi farið inn á svið utanríkismála með þessum hætti. „Ég fór með Vigdísi Finnbogadóttur á fund Bills Clinton í Hvíta húsinu,“ segir Jón Baldvin. „Þegar Clinton fór að tala um varnarmál vísaði hún strax á utanríkisráðherrann.“ Betri á ensku Ólafur Ragnar hefur verið gagnrýndur fyrir að fara frjálslega með sannleikann í viðtölum við erlenda fjölmiðla. Þar er sérstaklega bent á að í viðtali við BBC mátti skilja sem þjóðaratkvæðagreiðslur væru daglegt brauð á Íslandi. „Lykilatriði fyrir alla vel heppnaða stjórnmálamenn er að sveigja framhjá veikum punktum,“ segir Óli Björn. „Ég hef hvergi séð hann fara með rangt mál en hann hefur skautað létt yfir sumt. Mér finnst hann reyndar betri á ensku en íslensku. Setningarnar verða eins og markvissari á enskunni.“ Jón Baldvin tekur undir það að Ólafur Ragnar hafi komið fyrir sem sterkur stjórnmálamaður í erlendum fjölmiðlum. „Honum hefur hins vegar láðst að segja frá því að eiginlega er forseti Íslands ekki helsti valdamaður í landinu,“ segir Jón Baldvin. „Þetta er smámisskilningur, sem hann hefur ekki leiðrétt, og nú heldur fólk um allan heim að forsetaembættið á Íslandi sé valdaembætti.“ „Maðurinn er tækifærissinni. Hann var formaður í sósíalistaflokki án þess að vera sósíalisti. Hann er til alls líklegur.“ Jón Baldvin Hannibalsson. „Enginn forseti Íslands hefur fyrr komið fram með þessum hætti og orðið miðdepill athygli erlendis sem stjórnmálaleiðtogi á Íslandi.“ Óli Björn Kárason. „nú fæ ég ekki betur séð en að maðurinn sé kominn heim aftur. Það er vel.“ Ögmundur Jónasson.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.