Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
r e k s t u r
Ofvirkur frá fæðingu
Einar fæddist á Selfossi 18. mars 1972 og segist hafa verið ofvirkur frá
því hann var barn. ,,Ég hef alltaf haft áhuga á tónlist en aldrei verið
í hljómsveit en ég hef aftur á móti samið lög fyrir hljómsveitir og
söngvara eins og Skítamóral, Á móti sól, Jóhönnu Guðrúnu, Björgvin
Halldórsson, Nylon og Garðar Thór Cortes. Svo samdi ég lagið Birta,
sem vann forkeppnina á Íslandi fyrir Eurovision árið 2001. Í fram-
haldi af því þurfti ég að kljást við útvarpsráð vegna þess að textinn við
lagið varð að vera á íslensku. Fyrir þann slag uppskar ég þrjár myndir
af mér í Morgunblaðinu eftir Sigmund og enn í dag tel ég það vera
toppinn á ferlinum. Ég tók líka þátt í að breyta tónleikageiranum í
faglegra umhverfi og var tiltölulega stórtækur í tónleikahaldi á fyrsta
áratug þessarar aldar.“
Einar var á sínum tíma kallaður umboðsmaður Íslands og rak
umboðsfyrirtækið Consert. Eftir að hann flutti til London seldi Einar
Senu fyrirtækið og einbeitti sér að framgangi Nylon og Garðari Cor-
tes. Árið 2008 flutti hann svo aftur heim og keypti hús í Reykjanesbæ
þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum.
Lagði bæjarstjórann í einelti
,,Á meðan við vorum að leita að húsinu skall kreppan á, Geir bað
Guð að blessa Ísland og allt breyttist. Þrátt fyrir það kom ekki annað
til greina en að setjast að í Reykjanesbæ. Það sem réð því vali var að
það er vel staðið að málefnum fjölskyldufólks þar. Þegar ég kom heim
var ég alveg búinn að fá nóg af músíkumhverfinu, í bili að minnsta
kosti, og langaði að fara að gera eitthvað allt annað. Ég kom auga á
víkingaskip úti í á Fitjunum og lagði bæjarstjórann í einelti þar til
hann leyfði mér að hjálpa til við að klára plönin sem voru í gangi
um að reisa Víkingaheima í Reykjanesbæ, sem var mjög skemmtilegt
verkefni og lærdómsríkt.
Offiseraklúbburinn
,,Eftir það opnaðist tækifæri til að opna Offiseraklúbbinn uppi á
Velli og mér þótti hugmyndin um að endurvekja þennan fornfræga
stað spennandi. Veitingabransinn sem slíkur heillar mig ekki en akk-
úrat þessi klúbbur heillaði mig. Hugmyndin hjá mér var að koma
staðnum aftur í rekstur annaðhvort fyrir mig eða einhvern annan
enda hafði staðurinn yfir sér einhvern sjarma. Ég kom aldrei þangað
sjálfur meðan hann var rekinn af hernum en hafði heyrt sögur um
hann og að Rúnar Júlíusson, Björgvin Halldórsson og fleiri hefðu
skemmt þar. Þegar ég kom þangað fyrst þótti mér staðurinn mjög
sjarmerandi á sinn sérstæða hátt og bjóða upp á marga möguleika.
Ég fór því í að gera hann upp í sem upprunalegastri mynd. Í mínum
huga á Offiseraklúbburinn ekki að vera fyllirísstaður heldur fremur
staður tengdur sögutengdri ferðaþjónustu með áherslu á stríðsárin.
Mig langar til að búa til veitingastað ekki ósvipaðan Skíðaskálanum í
Hveradölum þar sem tekið er á móti hópum eftir pöntun og hægt er
að skoða minjar sem tengjast veru varnarliðsins hér á landi.
Reksturinn gengur ágætlega eins og er en er í þróun og ég veit ekki
enn hvernig þetta ævintýri endar. Ástandið í landinu er þannig í dag
að maður verður að fara gætilega og passa sig á að flana ekki að
neinu,“ segir Einar Bárðarson að lokum.
Í mínum huga á
Offiseraklúbburinn
ekki að vera
fyllirísstaður heldur
staður tengdur
sögutengdri
ferðaþjónustu með
áherslu á stríðsárin.
Einar Bárðarson ásamt nokkrum starfsmönnum Kanans.