Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 57
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 57
s t j ó r n u n
Þessi eldmóður gerir þeim það nærri ómögulegt að vera
hlutlausir og dregur úr hæfni þeirra að veita röksemdum
hins aðilans athygli.
Þátttakendur upplýsa oft ekki um allar staðreyndir málsins
heldur styðja frekar eigin röksemdir og leyna mikilvægum
upplýsingum sem samræmast ekki eigin markmiðum.
Markmið þeirra er jú að leggja fram sannfærandi mál
og sigra en ekki að ræða málin og finna bestu lausn. Ef
ágreiningur kemur upp er hann oft önugur og jafnvel
fjandsamlegur. Egóið og persónuleikar koma til skjalanna,
og ágreiningurinn er yfirleitt leystur með ákveðni og oft
eru brögð í tafli og unnið á bak við tjöldin. Undirliggjandi
hugmyndin er að úrvalslausn muni fæðast eftir baráttu
milli líkra sjónarhorna. En þessi nálgun bælir að jafnaði
nýsköpun og hvetur þátttakendur til að samþykkja ríkjandi
sjónarhornið til að forðast frekari ágreining.
umræðuleiðin vænleg til árangurs
Hópur sem leggur áherslu á umræðuleiðina á hinn bóginn
veltir vandlega fyrir sér mismunandi valkostum og vinnur
saman að því að finna bestu lausn. Þó að fólk hafi áfram
hagsmuna að gæta er markmiðið ekki að sannfæra hópinn
um að aðhyllast ákveðið sjónarhorn heldur frekar að komast
að niðurstöðu um hver sé besta leiðin. Fólk deilir upplýs-
ingum, helst svolítið hráum, til að gera þátttakendum kleift
að draga eigin ályktanir. Frekar en að bæla niður ágreining
hvetur þessi nálgun til gagnrýninnar hugsunar. Þátttak-
endum líður vel með að bera fram aðrar mögulegar lausnir
og spyrja erfiðra spurninga varðandi þá möguleika sem hafa
þegar verið bornir fram.
Umræðuleiðin setur spurningarmerki við allar tillögur og
ályktanirnar sem þær byggja á þannig að skoðanaskiptin geta
verið tilfinningarík, en þau
eru þó sjaldnast persónuleg.
Raunar eru skoðanaskiptin
almennt heilbrigð þar sem
ágreiningurinn varðar hug-
myndir og túlkun og hópmeð-
limir leysa ágreining sín á
milli með því að beita rökum.
Undirliggjandi ályktun er að
snilldarlausn muni koma í ljós
eftir að fólk hefur borið saman
styrkleika mismunandi hug-
mynda frekar en eftir einvígi
mismunandi skoðana. Þetta
þýðir að þátttakendur þurfa að nálgast mál með opnum
huga.
Umræðuleiðin leiðir að jafnaði af sér ákvarðanir af
miklum gæðum sem flýta fyrir framkvæmd ákvarðana og
innleiðingu. Þess vegna þurfa leiðtogar sem vilja bæta hæfni
skipulagsheildarinnar til að taka ákvarðanir aðeins að hafa
eitt markmið að leiðarljósi: að komast eins fljótt og hægt er
frá sannfæringaraðferðinni og yfir í alvöru umræður.
Sannfæringarleiðin Umræðuleiðin
Heildarhugmynd
ákvörðunartöku
Keppni til að sigra Sameiginleg lausn
vandamála
tilgangur umræðna Sannfæra Prófun og mat
Hlutverk þátttakenda talsmenn Gagnrýnin hugsun
Hegðunarmynstur Reyna að sannfæra aðra•
Verja eigin málstað•
Fela veikleika•
Velja rök sem henta eigin •
málflutningi
Hæðni og meðvituð •
rangtúlkun
Fylgja leiðtoganum og •
standa með eigin hópi.
Kynna yfirvegað •
sjónarhorn
Vera opinn fyrir öðrum •
möguleikum
Samþykkja uppbyggilega •
gagnrýni
Spyrja spurninga og vilja •
skilja sjónarhorn
Rökræða og •
skoðanaskipti
Viðurkenna staðreyndir•
Skoðanir minnihlutans Vísað á bug eða dregið úr. Mikils metnar og kallað eftir.
Niðurstaða Sumir sigra, aðrir tapa. Sameiginleg ábyrgð og
enginn tapar eða sigrar.
rannsóknir undanfarinna ára
gefa sterklega til kynna að
margir leiðtogar standi sig
beinlínis illa þegar kemur að
ákvörðunartöku. Ástæðan
fyrir því er að þeir meðhöndla
ákvörðunartöku sem stakan
atburð eða einangrað val.