Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 81

Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 81
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 81 Fundir og ráðsteFnur eftirminnilegur fundur Fjöldinn allur af þjóðarleiðtogum Helga Jónsdóttir. „Eftir á finnst mér þetta einn af merkilegri fundum sem ég hef sótt erlendis bæði vegna þess að umfjöllunarefnið var svo verðugt og líka vegna þess að það voru leiðtogar þjóða heims sem um það fjölluðu.“ Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, þá skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fór ásamt Steingrími heitnum Hermannssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, á þjóðarleiðtogafund í New York árið 1990 þar sem barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var festur í sessi og aðgerðaáætlun á grundvelli hans var undirrituð. Fjallað var meðal annars um leiðir til að draga úr ungbarnadauða og bæta aðstæður mæðra á meðgöngu, baráttuna gegn vannæringu og ólæsi og aðgang að vatni og grundvallarheilbrigðisþjónustu. „Fundurinn var haldinn í fundarsal öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar voru saman komnir fulltrúar 159 þjóða, þar af 71 þjóðarleiðtogi til að ræða það sem mikilvægast er af öllu – hvernig bæta mætti aðstæður og framtíðarhorfur barna. Þessi þjóðarleiðtogafundur er talinn hafa verið mikið hreyfiafl í þágu barna. Aðrir alþjóðlegir leiðtogafundir eins og um umhverfismál í Rio de Janeiro 1992 og um félagsleg viðfangsefni í Kaupmannahöfn 1995 sækja fyrirmynd í þennan fund. Mér fannst afar merkilegt að heyra alla þessa þjóðarleiðtoga tala um aðstæður barna heima fyrir og gera mér grein fyrir því hversu mismunandi þær eru og hversu mikið forskot þau börn hafa sem fæðast í okkar heimshluta. Sumum mæltist ákaflega vel,“ segir Helga og nefnir sérstaklega Vaclav Havel, fyrrverandi forseta Tékklands, sem talaði um aðstæður barna í kommúnistaríkinu Tékkóslóvakíu og Julius Nyerere, forseta Tanzaníu, sem fjallaði með eftirminnilegum hætti um þær aðstæður sem börn fæðast inn í víða í þróunarríkjum. „Svo fannst mér þau Margaret Thatcher og Steingrímur Hermannsson, sem bæði töluðu blaðlaust, gera ákaflega vel grein fyrir sínu máli þótt sjónarhóll þeirra væri ólíkur. Eftir á finnst mér þetta einn af merkilegri fundum sem ég hef sótt erlendis bæði vegna þess að umfjöllunarefnið var svo verðugt og líka vegna þess að það voru leiðtogar þjóða heims sem um það fjölluðu.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.