Frjáls verslun - 01.01.2010, Qupperneq 81
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 81
Fundir og ráðsteFnur
eftirminnilegur fundur
Fjöldinn allur af þjóðarleiðtogum
Helga Jónsdóttir. „Eftir á finnst mér þetta einn af merkilegri fundum sem ég hef sótt erlendis bæði vegna þess að umfjöllunarefnið var svo
verðugt og líka vegna þess að það voru leiðtogar þjóða heims sem um það fjölluðu.“
Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð,
þá skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fór
ásamt Steingrími heitnum Hermannssyni,
fyrrverandi forsætisráðherra, á
þjóðarleiðtogafund í New York árið 1990 þar
sem barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
var festur í sessi og aðgerðaáætlun á
grundvelli hans var undirrituð. Fjallað
var meðal annars um leiðir til að draga
úr ungbarnadauða og bæta aðstæður
mæðra á meðgöngu, baráttuna gegn
vannæringu og ólæsi og aðgang að vatni og
grundvallarheilbrigðisþjónustu.
„Fundurinn var haldinn í fundarsal
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New
York. Þar voru saman komnir fulltrúar 159
þjóða, þar af 71 þjóðarleiðtogi til að ræða
það sem mikilvægast er af öllu – hvernig
bæta mætti aðstæður og framtíðarhorfur
barna. Þessi þjóðarleiðtogafundur er talinn
hafa verið mikið hreyfiafl í þágu barna.
Aðrir alþjóðlegir leiðtogafundir eins og um
umhverfismál í Rio de Janeiro 1992 og um
félagsleg viðfangsefni í Kaupmannahöfn
1995 sækja fyrirmynd í þennan fund.
Mér fannst afar merkilegt að heyra alla
þessa þjóðarleiðtoga tala um aðstæður
barna heima fyrir og gera mér grein fyrir
því hversu mismunandi þær eru og hversu
mikið forskot þau börn hafa sem fæðast
í okkar heimshluta. Sumum mæltist
ákaflega vel,“ segir Helga og nefnir
sérstaklega Vaclav Havel, fyrrverandi forseta
Tékklands, sem talaði um aðstæður barna
í kommúnistaríkinu Tékkóslóvakíu og Julius
Nyerere, forseta Tanzaníu, sem fjallaði með
eftirminnilegum hætti um þær aðstæður
sem börn fæðast inn í víða í þróunarríkjum.
„Svo fannst mér þau Margaret Thatcher og
Steingrímur Hermannsson, sem bæði töluðu
blaðlaust, gera ákaflega vel grein fyrir sínu
máli þótt sjónarhóll þeirra væri ólíkur.
Eftir á finnst mér þetta einn af
merkilegri fundum sem ég hef sótt erlendis
bæði vegna þess að umfjöllunarefnið var
svo verðugt og líka vegna þess að það voru
leiðtogar þjóða heims sem um það
fjölluðu.“