Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 87
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 87
Fundir og ráðsteFnur
unum og skapa tengsl. „Í tengslum við ráðstefnuna verður keppni í
kynningum á viðskiptahugmyndum og haldnar margvíslegar mál-
stofur þar sem fjallað verður um frumkvöðlastarfsemi og sjálfbærni
frá efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum vinkli.“
Hrifust af krafti og jákvæðni
Aðalsteinn segir að forsvarsmenn MIT hafi kynnt sér vel HR og
starfsemi hans áður en þeir völdu hann til samtarfs. Þeir hafi hrifist
af þeim krafti og jákvæðni sem einkennir skólann. „MIT fannst
spennandi að vinna með HR sem er frumkvöðlaskóli.“
Auk Robins Chase halda m.a. erindi á ráðstefnunni þau Alf Bjør-
seth, stofnandi Renewable Energy Corporation, Nader Darehshori,
fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin útgáfurisans og stofnandi
Cambian Learning og Ken Morse, stofnandi MIT Entrepreneurship
Center, en hann hefur komið hundruðum sprotafyrirtækja á legg.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna á slóðinni: http://
www.mitgsw.org. Þátttökugjald fyrir íslensk fyrirtæki er 48.000
krónur. Inni í ráðstefnugjaldinu er matur, hátíðarkvöldverður og
atburðir sem eru skipulagðir til þess að þátttakendur kynnist og
myndi tengslanet.
Aðalsteinn Leifsson, lektor og forstöðumaður MBA-námsins í Háskólanum
í Reykjavík. ,,Meginþemað í ár er hvernig yfirvinna megi efnahags-
kreppuna með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýtanlegri orku.“
mBa-námið í hr tíu ára
Áhersla lögð á
persónulega færni
nemenda
mBa-námið í háskólanum í reykjavík fagnar
tíu ára afmæli sínu í ár en hr var fyrsti skólinn
hér á landi sem setti slíkt nám á laggirnar. um
fjögur hundruð nemendur hafa brautskráðst
með mBa-gráðu á þessum tíma.
aðalsteinn leifsson, lektor og
forstöðumaður mBa-námsins, segir að
námið sé alþjóðlegt, kennslan fari fram
á ensku og að fjölmargir kennarar séu
erlendir prófessorar frá viðskiptaháskólum
sem raði sér í efstu sætin í alþjóðlegum
samanburðarkönnunum. má þar nefna skóla
á borð við london Business school, iEsE,
insead, richard ivey, Boston university og
Babson college.
aðalsteinn segir að í náminu sé áhersla
lögð á þrjú atriði. í fyrsta lagi framúrskarandi
fagþekkingu, í öðru lagi færni til að stunda
viðskipti í alþjóðlegu umhverfi og í þriðja
lagi sé markviss rækt lögð við persónulega
eiginleika sem hafi úrslitaáhrif á gengi
stjórnenda.
kannanir hafi sýnt að þeir sem ráði til sín
einstaklinga með mBa-gráðu leggi mikla
áherslu á samskiptahæfni þeirra, leikni til að
ná árangri í teymisvinnu, persónuleg gildi,
heiðarleika og getu til að greina vandamál.
til að þroska þá eiginleika meðal mBa-nema
hafi verið ákveðið að taka upp svokallað
pd-prógram (personal development) við
námið.
kjarninn í því prógrammi felist í meðvitaðri
og persónulegri vinnu nemenda þar sem
stefnt er að auknum sjálfsskilningi. „við erum
með sérstaka kennara sem halda utan um
þennan þátt mBa-námsins,“ segir aðalsteinn.
markmiðið er að nemandinn hafi skýrari sýn
en áður á það að hverju skuli stefnt í starfi og
einkalífi, hvaða styrk viðkomandi búi yfir til að
komast í þá átt og hvaða hindranir þurfi að
yfirstíga svo skrefin séu tekin með farsælum
hætti.