Frjáls verslun - 01.01.2010, Blaðsíða 99
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 99
ustu verðlaun sem fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu geta fengið. Þau verðlaun voru fyrir
„Hvataferð ársins“ eða Exceptional Motiva-
tional Travel Program.
Marín segir að Practical hafi fundið fyrir
miklum meðbyr í kjölfar verðlaunanna og
erlendum fyrirspurnum fjölgað til muna.
Marín var alltaf staðráðin í að stofna
eigið fyrirtæki. Það var samt ekki fyrr en
hún var að ljúka fjögurra ára háskólanámi
í Ástralíu sem hún ákvað hvers konar fyr-
irtæki hún ætlaði að setja á fót. Henni
fannst vanta fyrirtæki á markaðinn sem
tæki að sér að skipuleggja markvissa starfs-
daga fyrir vinnustaði, þar sem fróðleik og
skemmtun væri blandað saman svo úr yrði
öflugur dagur sem skilaði sér í bættum
afköstum og aukinni starfsánægju.
Hún stofnaði því Practical, sem sérhæfir
sig í að hanna starfsdaga, hvataferðir og
hvers kyns viðburði fyrir innlend og erlend
fyrirtæki.
Bára Magnúsdóttir fékk
Þakkarviðurkenninguna
Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Jazz-
ballettskóla Báru, JSB, fékk Þakkarviður-
kenningu FKA 2010. Bára Magnúsdóttir er
óumdeildur brautryðjandi á sviði danslistar
og heilsuræktar á Íslandi. Fimm ára hóf hún
nám í Ballettskóla Þjóðleikhússins.
Fimmtán ára hélt Bára í dansnám til
London og útskrifaðist með glæsibrag úr
hinum virta listaskóla Art Educational.
Þegar heim kom byrjaði hún að kenna
ballett hjá Sigríði Ármann. Fljótlega fór hún
að kenna í eigin nafni jazzballett á Íslandi.
Bára hefur setið í stjórn Danskennara-
félags Íslands og í áratug var hún forseti
Dansráðs Íslands. Hún hefur rekið eigið
fyrirtæki í áratugi og skipta nemendurnir
tugþúsundum. Á hverju ári stendur JSB
fyrir glæsilegum nemendasýningum í Borg-
arleikhúsinu þar sem 600-700 nemendur
stíga á svið og dansa af hjartans list. Bára
er hvergi nærri hætt. Hún er enn að kenna
og er nýbúin að fjárfesta í stóru húsnæði í
grennd við höfuðstöðvarnar í Lágmúla.
Stiki hlaut Gæfusporið
Svana Helen Björnsdóttir, rafmagns-
verkfræðingur og framkvæmdastjóri Stika,
tók við Gæfusporinu fyrir hönd fyrirtækis
síns. Gæfusporið er veitt því fyrirtæki sem
skarað hefur fram úr við að virkja kraft
kvenna innan sinna raða.
Stiki býður upp á heildarlausnir í upplýs-
ingaöryggismálum; framleiðir hugbúnað til
að meta gæði starfsemi og þjónustu, áhættu
í rekstri, greina verkferli og bæta verklag.
Viðskiptavinir fyrirtækisins hér heima
eru aðallega opinberir aðilar og stærri
fyrirtæki. Stiki vinnur líka að alls kyns
lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki;
lausnum sem gera þau samkeppnishæfari,
skilvirkari og öruggari.
Stiki er í eigu þriggja aðila; Svönu
Helenar Björnsdóttur, Bjarna Þórs
Björnssonar, stærðfræðings og tæknilegs
framkvæmdastjóra félagsins, og
Nýsköpunarsjóðs.
Af fimm framkvæmdastjórum
fyrirtækisins eru fjórar konur. Ekki síst
er þetta athygli vert þar sem framboð
er mun minna af konum en körlum í
tæknigeiranum.
Að sögn Svönu er það hinsvegar ekki
yfirlýst stefna félagsins að ráða konur
umfram karla. Þau telji sig einfaldlega hafa
ráðið hæfasta fólkið hverju sinni.
Svana er formaður Samtaka
sprotafyrirtækja.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra afhenti Vilborgu Einarsdóttur,
framkvæmdastjóra Mentors, FKA viðurkenninguna.
Fjölmenni var í Perlunni þegar FKA hélt þar sína árlegu veislu
og afhenti fernar viðurkenningar; FKA viðurkenninguna,
Þakkarverðlaunin, Hvatningarverðlaunin og Gæfusporið.
FKA viðurKenninGAr
Margrét
Kristmannsdóttir,
fyrrverandi formaður
FKA, Birna Einarsdóttir,
bankastjóri
Íslandsbanka, og Lilja
Mósesdóttir þingmaður.
Marín Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri
Practical, flytur
þakkarræðu
sína. Nokkrir af
starfsmönnum
hennar á sviðinu.