Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 100

Frjáls verslun - 01.01.2010, Page 100
Bílar Súkkulaðisætur TEXTI OG LJÓSMYND: PÁLL STEFÁNSSON Prins Póló hefur verið vinsælasta súkku- laðið á Íslandi í áratugi. Nú er komin á markað fimmta kynslóðin af Volkswagen Polo – og byrjar vel; var kosinn bíll ársins í Evrópu 2010 á haustmánuðum. Fyrstur Volkswagenbíla í langan tíma. Mun þessi fallegi smábíll ná viðlíka vinsældum og Prins Póló súkkulaðið? Það var fyrir 35 árum sem Volkswagen ákvað að gefa Volkswagen Golf lítinn bróður, þ.e. minni og sparneytnari bíl. Poloinn var reyndar ekki alveg nýr, heldur var þetta Audi 50 í ódýrari útgáfu. Audi kom á markað ári fyrr eða 1974. Fimmta kynslóðin af Poloinum er orðin fullorðin. Rýmið er gott og aksturseig- inleikarnir til fyrirmyndar. Allur frágangur er eins og best verður á kosið, og þó það hljómi undarlega; stjórntæki eru öll á réttum stað. Að innan minnir hann óneitanlega á Golfinn og Passatinn. Ekki leiðum að líkjast. Það er hugsað fyrir öllu, jafnvel þegar hurðunum er lokað kemur hárrétt hljóð. Farangursrýmið er 280 lítrar sem mjög gott fyrir ekki stærri bíl. Plássið er tæpir þúsund lítrar með aftursætin niðurfelld. Poloinn er smíðaður á fjórum stöðum, Navarra á Spáni, Chakan á Indlandi, Port Elizabeth í Suður Afríku, og Puebla í Mexíkó. Fimmta kynslóðin verður seld í Norður Ameríku, fyrst allra Polo bifreiða. Vélarnar sem í boði eru sex í byrjun, frá 1,3 lítra, 60 hestafla, og upp í 1,6 lítra túrbó dísil, sem er 90 hestöfl. Síðar á þessu ári mun síðan koma á markaðinn GTi útgáfa af bílnum, tæplega tvöhundruð hestar. Eins kemur spennandi systurbíll sem notar sömu botnplötu, Audi A1. Páll Stefánsson reynsluekur nýrri, fimmtu kynslóð af Volkswagen Polo. Þetta er bíll ársins í flokki smábíla. 100 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.