Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 101
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 101
Á dauða mínum Átti ég von
Nú er hann allur, SAAB 9-5, eftir 13 ár í framleiðslu.
Á næstunni kemur nýr SAAB 9-5, byggður á botnplötu
bíls ársins í Evrópu í fyrra, Opel Insignia. Þetta verður
fyrsti nýi SAAB bíllinn sem kemur eftir að hollenski
sportbílaframleiðandinn Spyker keypti SAAB af GM. Hann
verður bæði framhjóla- og fjórhjóladrifinn. Þrír nýir bílar
koma síðan á næstu átján mánuðum, 9-5 hlaðbakur, 9-4X
jepplingur, og síðan 9-3 sem á að verða lúxus-smábíll.
Vélarnar í 9-5 verða af fimm gerðum; tvær dísel, 160 og
190 hestafla og síðan 180, 220 og 300 hestafla fjögurra
strokka túrbóbensínvélar. Útlitið er nútímalegt og umfram
allt: sænskt.
Bíll Ársins fyrir westan
Ford Fusion Hybrid var kosinn bíll ársins í Ameríku árið 2010.
Í úrslitum voru tvær Volkswagen-bifreiðar, GTI og Volkswagen
Golf TDi, auk Buick LaCrosse, Chevrolet Equinox og Subaru
Outback. Ford Fusion Hybrid er fólksbíll í millistærð sem er sá
sparneytnasti í sínum flokki vestur í Ameríku. Eyðslan er um
6 lítrar á hundraðið, í langkeyrslu, jafnvel þótt hann sé með
öfluga 175 hestafla bensínvél, sem aðalhreyfil. Fyrir þá sem
sækjast eftir enn meira afli er hægt að fá Ford Fusion Hybrid
Sport, með 3,5 lítra V6 og tæplega 270 hrossum. Það eru 49
helstu bílablaðamenn Ameríku sem kjósa bíl ársins.
Þriggja strokka tryllitæki
Toyota Avanza er mest seldi bílinn í Indónesíu. Hann
er smíðaður í höfuðborg Indónesíu, Jakarta. Avanza
er smár fjölnotabíll, rúmlega fjögurra metra langur og
hábyggður. Hæðin er einn og sjötíu. Það eru þrjár vélar
í boði. Fyrst er það eins lítra, þriggja strokka vél sem
skilar um 60 hestöflum. Síðan 1,3 og 1,5 lítra vél sem
er 85 hestöfl. Þegar stærsta vélin er pöntuð kemur bíll-
inn með ABS-bremsum. Toyota Avanza er hinn fullkomni
þriðjaheimsbíll. Lítill, einfaldur, sparneytinn og ódýr.
Eitthvað fyrir okkur?
Bílar