Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 102

Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 1 0 The Ghost Writer, nýjasta kvikmynd Romans Polanski fyrrum forsætisrÁð- herra Breta Á hÁlum ís Þegar Roman Polanski var handtekinn í Sviss í fyrra fyrir glæp sem hann framdi í Bandaríkjunum fyrir rúmum 30 árum, var hann nánast búinn að leggja síðustu hönd á nýjustu kvikmynd sína, The Ghost Writer, sem gerð er eftir skáldsögu Roberts Harris, The Ghost. Harris, sem hefur unnið með Polanski meira og minna síðustu þrjú árin, fyrst að gerð Pompei eftir sögu hans, kvikmynd sem sett var til hliðar vegna kostnaðar, og síðan að The Ghost Writer, hefur verið einn helsti talsmaður þess að Polanski þurfi ekki að svara til saka í Bandaríkjunum og var samvinna þeirra mikil og góð að sögn Harris sem hefur heimsótt Polanski þar sem hann dvelur í stofufangelsi á eigin sveitasetri í Sviss. Harris segir Polanski vera í góðu jafnvægi en hafi óneitanlega áhyggjur af framtíðinni. Helsta röksemdin fyrir því að hætta við að ákæra Polanski fyrir glæpinn, sem er samræði við þrettán ára gamla stúlku, er aldur hans, en Polanski verður verður 77 ára í ágúst. Á meðan athyglisjúkur saksóknari í Los Angeles, sem vill vera miðpunktur fjölmiðlafársins í kringum handtökuna, neitar að verða við beiðnum fjölmargra þekktra einstaklinga innan og utan kvikmyndageirans er ekkert annað í stöðunni en að Polanski verði fluttur í járnum til Bandaríkjanna. Það verður samt ekki gert fyrr en eftir að The Ghost Writer hefur verið frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín um miðjan febrúar þar sem hún keppir um Gullbjörninn. Sjálfur verður Polanski fjarverandi en gera má ráð fyrir því að fjölmargir vinir hans verði á hátíðinni með enn eitt ákallið honum til handa. Ævisaga sem þolir ekki dagsins ljós Í The Ghost Writer segir frá rithöfundi (aldrei nafngreindur), sem hefur haft það að atvinnu að skrifa ævisögur þekktra einstaklinga sem síðan senda ævisöguna frá sér undir eigin nafni. Hann fær freistandi tilboð um að skrifa ævisögu fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Adam Langs, sem hefur fallið í ónáð vegna spillingar og er hann fluttur á eyjuna Martha’s Vineyard við austurströnd Bandaríkjanna. Rithöfundurinn flýgur þangað í vetrarkuldann. Daginn eftir komu hans er Lang ákærður í blaðagrein, af fyrrverandi ráðherra í stjórn hans, um að hafa ólöglega afhent Bandaríkjastjórn meinta hryðjuverkamenn sem síðar voru pyntaðir. Blaðagreinin hefur þau áhrif að flokkur blaða- og fréttamanna þyrpist til eyjarinnar þar sem forsætisráðherrann dvelur ásamt eiginkonu sinni, Ruth og einkaritaranum Ameliu, sem hefur verið hjákona hans í mörg ár. Rithöfundurinn veit að hann er ekki sá fyrsti sem er falið þetta verkefni og hefur verið sagt að fyrirrennari hans, sem var pólitískur félagi Langs, hafi látist í slysi. Hann fær samt ekki aðgang að því sem sá hafði skrifað, kemst þó í glósur hans og eftir lestur þeirra grunar hann að slysið sé yfirvarp og hann hafi verið drepinn þegar hann komst að því að Lang hafi verið á mála hjá bandarísku leyniþjónustunni á sama Kvik myndir TEXTI: HILMAR KARLSSON Glaðbeittur forsætisráðherra (Pierce Brosnan) yfirgefur Downing Street 10 í síðasta sinn. Eiginkonan (Olivia Williams) er ekki jafnbrosmild. Roman Polanski og Ewan McGregor við tökur á The Ghost Writer.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.