Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 103

Frjáls verslun - 01.01.2010, Side 103
The Ghost Writer, nýjasta kvikmynd Romans Polanski fyrrum forsætisrÁð- herra Breta Á hÁlum ís tíma og hann var forsætisráðherra Bretlands. Fleiri leyndarmál líta dagsins ljós þegar grafið er dýpra, leyndarmál sem ekki eru Lang í hag og gera það að verkum að rithöfundurinn fer að óttast um líf sitt. Í hlutverki rithöfundarins er Ewan McGregor og í hlutverki Adam Langs er Pierce Brosnan. Olivia Williams leikur eiginkonuna Ruth og Kim Cattrall er í hlutverki einkaritarans, Ameliu. Aðrir leikarar eru meðal annars Timothy Hutton, Eli Wallach, James Belushi og Tom Wilkinson. Glæsilegur ferill Margir vilja meina að fyrirmyndin að Adam Lang sé Tony Blair. Robert Harris, sem er fyrrverandi pólitískur ritstjóri The Observer og síðar pólitískur pislahöfundur hjá The Times, þekkir vel feril Blairs og ekki ólíklegt að hann notfæri sér kynni sín af honum í persónusköpuninni þó að sjálf atburðarásin sé hreinn skáldskapur. Þess má geta að Robert Harris skrifaði ritdóm í The Sunday Times um bókina Meltdown Iceland, How the Global Financial Crisis Bankrupted an Entire Country og var ekki mjög vinsamlegur í okkar garð. Roman Polanski á glæsilegan feril að baki sem kvikmyndaleikstjóri og hefur varla stigið feilspor þó svo að ekki hafi allar kvikmyndir hans náð vinsældum. Polanski var afkastamikill meðan hann bjó í Póllandi en hægði á sér eftir að hann flutti frá austri til vesturs og hefur leikstýrt 17 kvikmyndum frá árinu 1965. Ekki eru margir þrillerar á afrekaskrá hans og ef það eru einhverjar myndir Polanskis sem helst má líkja The Ghost Writer við þá eru það Chinatown (1974) og Frantic (1988). Þess má svo að lokum geta að þar sem handtökuskipun á Polanski hefur verið í gildi í Bandaríkjunum frá því hann flúði undan dómi 1978, þá var ekki hægt að kvikmynda á söguslóðum og var eyjan Sylt staðgengill Martha’s Vineyard, en hún er í Norðursjónum, nálægt landamærum Danmerkur og Þýskalands. KVIKMYNDAFRÉTTIR F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 9 103 Árekstur risanna Sam Worthington, aðalleikarinn í risamynd James Camerons, Avatar, ætti ekki að þurfa að kvíða framtíðinni og hefur úr mörgum tilboðum að velja þessa dagana. Áður en Avatar var frumsýnd var hann búinn að leika annað aðalhlutverk í enn einni risamyndinni, Clash of the Titans, sem frumsýnd verður í lok mars og er endurgerð kvikmyndar með sama nafni frá árinu 1981. Myndin er byggð á grískri þjóðsögu og fetar Worthington í fótspor Harry Hamlins í hlutverki Perseusar, sem er fæddur guð en alinn upp sem maður. Hann fær það verkefni að stöðva Hades (Ralph Fiennes) sem vill öðlast styrk Seifs (Liams Neesons) svo hann geti skapað helvíti á jörð. Leikstjóri endurgerðarinnar, sem er víst mikið breytt sögulega séð frá fyrri myndinni, er Louis Leterrier, franskur leikstjóri sem getið hefur sér gott orð í Hollywood og leikstýrði síðast The Incredible Hulk. Sam Worthington í hlutverki sínu í Clash of the Titans. Járnmaður 2 Robert Downey jr. stendur sig vel sem nútíma Sherlock Holmes í samnefndri kvikmynd. Hann stóð sig einnig vel í hlutverki milljarðamæringsins Tony Stark sem breytist í ofurhetjuna Járnmanninn og er búinn að leika í Iron Man 2, sem frumsýnd verður í lok apríl um allan heim. Framundan er síðan framhald af Sherlock Holmes þannig að Downey jr., sem aldrei hefur notið jafnmikilla vinsælda og nú, má passa sig á að festast ekki í framhaldsmyndum. Eins og við er að búast berst Járnmaðurinn gegn valdamiklum óvinum en þarf einnig að koma í veg fyrir þann orðróm sem farinn er að breiðast út að Tony Stark sé Járnmaðurinn. Mótleikarar Downeys jr. í Iron Man 2 eru Scarlett Johansson, Paul Bettany, Samuel L. Jackson, Mickey Rourke, Gwyneth Paltrow og Sam Rockwell. Á milli Iron Man 2 og Sherlock Holmes 2 slakar Downey jr. á í gamanmyndinni Due Date þar sem hann leikur verðandi föður sem á í vandræðum með að komast heim áður en eiginkona fæðir. Slepptu mér aldrei Hin unga breska leikkona Carey Mulligan hefur heldur betur slegið í gegn síðustu misserin. Hún hefur sankað að sér verðlaunum og tilnefningum fyrir leik sinn í An Education auk þess sem hún var tilnefnd í fyrra sem besta sviðsleikkonan (Drama Desk Award) fyrir leik sinn í Mávinum eftir Tsjekov á Broadway. Síðar á þessu ári eru væntanlegar þrjár spennandi kvikmyndir sem hún leikur eitt aðalhlutverkanna í, Wall Street: Money Never Sleeps, framhaldsmynd sem lengi hefur verið beðið eftir, Brighton Rock, sem gerð er eftir skáldsögu Grahams Greene og Never Let Me Go, sem gerð er eftir margverðlaunaðri skáldsögu Kazuos Izhiguro, sem hefur komið út í íslenskri þýðingu (Slepptu mér aldrei). Í þeirri mynd er hún í hlutverki Kathy sem rifjar upp atburði sem gerðust þegar hún var í heimavistarskóla. Mótleikarar hennar eru Keira Knightley og Andrew Garfield. Carey Mulligan og Keira Knightley í hlutverkum sínum í Never Let Me Go. Pierce Brosnan í hlutverki fyrrum forsætis- ráðherra Bretlands og Ewan McGregor í hlutverki ævisöguritarans.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.