Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 22

Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 boðið á fasanaveiðar hér þar sem Bretarnir mæta í því sem mér finnst vera algjör trúðsbúningur, ullarjökkum og hnébuxum. Ég mætti bara í íslenskum skíðabuxum og það var í lagi í það skiptið en mér var gefið til kynna að næst yrði ég að mæta eins og þeir. Mér var þetta til mesta ama en ég ákvað að láta undan. Þetta er í eina skiptið sem fötin hafa skipt máli!“ Útrásin hefur ekki náð hámarki Nú hefur alþjóðlegt viðskiptalíf tekið dýfu nýlega – fer ekki að sneiðast um tækifærin hér í Bretlandi þar sem bankarnir eru orðnir varfærnari, vextir hafa hækkað og væntanlega erfiðara að fá lán til að yfirtaka fyrirtæki en áður? „Ég verð ekki var við þetta. Ég held að útrásin haldi áfram, kannski menn hægi eitthvað á sér sem er allt í lagi. Menn hafa gert mikið undanfarin ár og auðvitað oft tekið áhættu, til dæmis þegar við keyptum Big Food Group fyrir rúmum þremur árum. Þá var fyr- irtækið einskis metið en nú er bara Iceland, sem var hluti af BFG, metið á 100 milljarða króna. Þar höfum við búið til mikið úr litlu og erum löngu búnir að fá þá fjárfestingu til baka. Svona tækifæri fær maður ekki heima heldur verður að fara til útlanda – þau verður maður að sækja út. Það sem hefur hjálpað er hins vegar þekking að heiman – Baugur hefur til dæmis gríðarlega þekkingu á verslunarrekstri og sú reynsla nýtist hér.“ Og þú hefur engar áhyggjur af að hlutabréfa- verð hér sé of hátt og að það rýri fjárfestingartækifærin? „Þetta er ekki þannig í mínu hagkerfi! Við höfum reiknað með að það gætu komið dýfur eins og hefur gerst. Við hjá Fons erum íhaldsamir, höfum ekki spilað mikið á hlutamarkaðnum og óróleikinn kemur okkur ekki á óvart. Ég álít að krónan sé alltof hátt skráð og það er bara spurning hvernig og hvenær það snýst við, hvort lendingin verði hörð eða mjúk. Hagkerfið heima er hins vegar sterkt. Við Íslendingar erum 300 þúsund, hér eru 60 milljónir. Með því að spila rétt er enn nóg af tækifærum hér. Við sem stöndum í útrásinni erum frekar ungir, margir okkar eiga bestu ár ævinnar eftir. Íslenska útrásin hefur skapað gríðarlega reynslu og þekkingu, mikill mannauður felst í útrásinni og enn eru miklir möguleikar. Útrásin hefur alls ekki náð hámarki held ég.“ Þú hefur verið orðaður við kaup á knattspyrnuliði hér, Newcastle, en vilt ekkert láta hafa eftir þér um það mál. Eru knattspyrnulið góð fjárfesting? „Já, já, ég held þau geti vel verið góð fjárfesting. Ég væri alveg til í að kaupa fótboltalið ef ég gæti. Auðvitað ekki hvaða félag sem er. Ég er veikur fyrir Þrótti en stefni ekki að því að eiga hann, vildi heldur deila honum með öðrum. Newcastle er auðvitað æðislegt félag.“ Það er dálítið skrautlegt lið sem hefur laðast að því að kaupa fótboltafélög hér í Bretlandi. Eru þetta einhverjar sérstakar mann- gerðir sem fara út í slík viðskipti? „Geggjaðar manngerðir! Nei, í alvöru – ég held ekki. Það fylgir þessu spenna, það er gaman að þessu fyrir þá sem hafa áhuga á fótbolta. Ég er með ársmiða hjá Chelsea og fer eins oft og ég get.“ Eru þetta einhverjir strákadraumar sem koma fram í því að vilja kaupa fótboltalið? „Það væri auðvitað frábært ef einhver íslensk viðskiptakona keypti fót- boltalið! Strákadraumar: athyglisverður punktur. Kannski að svo sé.“ Nú eiga Íslendingar þegar fótboltafélag hér. Horfið þið íslensku fjárfestarnir á hvað hinir eru að gera, er einhver metingur í gangi? „Nei, það held ég ekki. Það hefur engin áhrif á mig hvað aðrir gera.“ Iceland algjört ævintýri Þú nefndir að þú hefðir átt hlut að kaupunum á Big Food Group og Iceland fyrir rúmum þremur árum. Hvernig hefur sá rekstur þróast? „Iceland hefur verið algjört ævintýri frá fyrsta degi. Við vorum svo heppnir að fá Malcolm Walker, fyrrum fram- kvæmdastjóra Iceland, til liðs við okkur. Við fengum hann til að leggja á ráðin með okkur og réðum svo hann og hans lið til að taka við rekstrinum. Þetta var mjög dramatískt því Walker hafði áður hrökklast frá fyrirtækinu og mátti ekki koma þar inn fyrir dyr fyrr en á miðnætti þegar kaupin voru orðin að veruleika svo það má segja að við höfum gert byltingu þarna. Í samvinnu við hann hefur fyrirtækinu algjörlega verið snúið við. Við höfðum alltaf trú á fyrirtækinu. Núna þurfum við ekki að sjá eftir kaupunum eins og þeir sem þorðu ekki að vera með okkur í þessu. Eftir tólf mánuði gátum við greitt 100 prósent arð, alla fjárfest- inguna sem við höfðum lagt í fyrirtækið. Við endurfjármögnuðum félagið og gátum greitt okkur arð nú í ársbyrjun. Hér í Bretlandi er þetta meðalstórt fyrirtæki en það er auðvitað stórt á íslenskan mælikvarða og það rennir stoðum undir íslenskt athafnalíf.“ Þú hefur nefnt í viðtali að þú vildir láta íslenska framleiðendur njóta góðs af Iceland – eru einhverjar íslenskar vörur seldar þar? „Ég hreinlega veit það ekki. Við erum auðvitað alltaf boðnir og búnir að aðstoða íslenska framleiðendur við að komast á markað hér en menn þurfa auðvitað að standa sig varðandi verð og gæði. Þessi mál fara í sinn farveg innan fyrirtækisins, við getum ekki skipað mönnum þar fyrir hvar og hvað þeir kaupa.“ Þú nefndir líka að það mætti ræða hvort nafninu yrði breytt – það fer ögn í taugarnar á ýmsum að „Iceland“ skuli vera vörumerki hér. Hefur eitthvað gerst í því? „Fyrirtækið átti vörumerkið „Iceland“ í Evrópu. Íslensk stjórnvöld vildu ræða það og við gáfum það eftir en héldum nafninu hér.“ Jón Ásgeir er eldklár, það stenst enginn honum snúning. Ef hann væri skákmaður væri hann með mörg þúsund fleiri elo-stig en aðrir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.