Frjáls verslun - 01.07.2007, Page 30
D A G B Ó K I N
30 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
Hér kemur auðvitað eitt af
málum sumarsins í íslensku
viðskiptalífi; yfirtöku Novators
á Actavis sem samþykkt var
seinni partinn í júní. Um var að
ræða stærstu yfirtöku félags á
Íslandi og nam andvirði Actavis
um 303 milljörðum króna í yfir-
tökunni.
Talsverður skjálfti var vegna
þessa máls. Novator, félag
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
bauð í allt hlutafé Actavis í
maí – en því var hafnað. En
Björgólfur Thor var fyrir tilboðið
langstærsti hluthafinn í Actavis,
með um 38,5% hlut, og hafði
gegnt þar stjórnarformennsku
í um sjö ár og byggt fyrirtækið
upp ásamt fleirum.
Eftir að hafa hafnað tilboði
Novators í maí ákvað stjórn
Actavis hins vegar að mæla
með nýju tilboði frá Novator í
júní. Samkvæmt því tilboði var
markaðsvirði Actavis yfir 303
milljarðar króna.
Langflestir spurðu sig að
því hvers vegna Björgólfur
Thor hefði áhuga á að eign-
ast Actavis að fullu og afskrá
félagið þar af leiðandi sjálfkrafa
úr Kauphöllinni. „Var hann
með eitthvert ofurtilboð í fyr-
irtækið frá öðru lyfjafyrirtæki
uppi í erminni?“ spurðu menn.
Þessum pælingum svaraði
Björgólfur býsna snyrtilega í
nýja tilboði Novators en þar
setti hann inn ákvæði um að ef
Novator myndi selja 10% eða
meira af hlut sínum í Actavis
innan 12 mánaða eftir gild-
istíma tilboðsins fengju þeir
hluthafar sem samþykktu til-
boðið aukagreiðslu.
Þegar málið kom fyrst upp
í maí hafði Björgólfur Thor lýst
því yfir að Actavis yrði fram-
vegis áhættusæknara og því
vildi hann gefa almennum fjár-
festum tækifæri til útgöngu
áður en að slíkum breytingum
kæmi:
Í tilkynningu frá Novator um
miðjan maí var kveðið nokkuð
skýrt á um þetta:
„Á síðustu misserum hafa
átt sér stað miklar sviptingar í
lyfjageiranum. Samþjöppun er
hröð, barátta um leiðandi stöðu
á lykilmörkuðum afar hörð og
verðsamkeppni fer sífellt vax-
andi.
Í slíku umhverfi telur Novator
mikilvægt fyrir árangursríka
framtíðaruppbyggingu Actavis
að afskrá félagið af markaði
svo það búi ekki lengur við
þær ríku kröfur og skyldur, sem
lagðar eru á skráð félög, þ.m.t.
um upplýsingagjöf. Novator
mun því óska eftir afskráningu
félagsins úr OMX kauphöllinni
eins fljótt og auðið er.
Novator hefur í hyggju að
fjármagna umtalsverðan hluta
kaupverðs með lánsfé og
því ljóst að Actavis verður á
samstæðugrundvelli verulega
skuldsett að yfirtökunni lok-
inni.
Novator mun beita sér fyrir
enn aukinni áhættusækni í
rekstri félagsins, fækka í stjórn
þess og birta aðeins á opin-
berum vettvangi þær upplýs-
ingar sem almennt er krafist af
óskráðum félögum. Það er mat
Novators að sú aukna áhætta,
sem fylgir slíkri skuldsetningu
og stefnu, sé ekki heppileg fyrir
almenna fjárfesta og því rétt að
gefa öðrum fjárfestum tækifæri
til útgöngu áður en að slíkum
breytingum kemur.“
23. júní
Markaðsvirði
Actavis
303 milljarðar
SINDRI Sindrason, stjórnar-
maður í Actavis, kynnti þá
ákvörðun stjórnarinnar að
mæla með því að hluthafar
samþykktu nýtt tilboð frá
Novator.
Tilboð Novators, sem stjórn
Actavis ákvað að mæla með,
hljóðaði upp á 90,2 krónur á
hlut. Fyrra tilboðið hljóðaði upp
á 85 krónur á hlut.
Stjórnin taldi það tilboð
hvorki endurspegla raunveru-
Björgólfur Thor Björgólfsson: Hefur gert tugþúsundir Íslendinga ríka
með undraverðum árangri Actavis á undanförnum árum.
23. júní – 17. júlí
NOVATOR YFIRTEKUR ACTAVIS:
STÆRSTA YFIRTAKA Á ÍSLANDI