Frjáls verslun - 01.07.2007, Qupperneq 38
D A G B Ó K I N
38 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
Er Símaauglýsingin snilldarbragð
eða tómt klúður?
5. september
Umtöluð
Símaauglýsing
Allt stefnir í að umtalaðasta
auglýsing ársins sé auglýsing
Símans á nýrri kynslóð farsíma
þar sem gert er grín að síð-
ustu kvöldmáltíðinni. Jón Gnarr
er höfundur auglýsingarinnar
og hefur Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, gagnrýnt auglýs-
inguna og sagt hana smekk-
lausa. Biskupsstofa mun þrátt
fyrir það ekki kæra auglýsinguna
til siðanefndar SÍA fyrir guðlast.
Mörgum finnst auglýsingin
fyndin – en vera samt sem áður
á mörkunum. Mesta athygli
hefur vakið á meðal markaðs-
manna að Síminn skyldi taka
áhættuna á að fara svo krítíska
leið í herferð sinni að nota Jesú
og postulana við síðustu kvöld-
máltíðina.
Auglýsingin hefur fengið slíkt
umtal í fréttum að hún hefur
ekki farið fram hjá neinum, allir
hafa skoðun á henni og nýju
farsímunum sem verið er að
auglýsa.
Eftir stendur stóra spurningin.
Selur auglýsingin? Hafa ein-
hverjir líklegir kaupendur hugs-
anlega móðgast?
Bandaríkjunum en þar kom á
daginn að tekju- og efnalítið
fólk hefur fengið húsnæðislán
og því er mikil óvissa um það
hversu örugg þessi lán eru.
Seðlabankinn í Bandaríkjunum
varð að grípa inn í og dæla
fé út á markaðinn til að bæta
stöðu helstu lánafyrirtækja á
húsnæðislánamarkaði.
En þessi órói og vandi í
Bandaríkjunum hafði dómínó-
áhrif sem bylgjuðust um allan
heim og lét enga hlutabréfa-
markaði í friði. Það sem gerist
í umróti er að hræðsla grípur
um sig hjá eigendum hlutabréfa
um að það versta sé ekki að
baki og að bréfin haldi áfram að
lækka.
Allar hlutabréfavísitölur hafa
jafnað sig að einhverju leyti og
mjakast upp á við aftur. Flestir
sérfræðingar telja að atvinnu-
líf heimsins sé sterkt og „hafi
mikið sjálfstraust“ eins og núna
er í tísku að segja.
20. ágúst
Stafna á milli
kaupir Ris
Sagt var frá
því að bygg-
ingafélagið
Ris hefði
verið selt.
Kaupandi
félagsins er
Stafna á milli
ehf. Nýir eig-
endur tóku við félaginu sama
dag og tilkynnt var um kaupin.
Þorgeir Jósefsson er nýr forstjóri
þess og Engilbert Runólfsson
nýr stjórnarformaður.
Þeir Kristinn Jörundsson og
Jóhann Guðni Hlöðversson hafa
rekið Ris frá árinu 1993. Ris
hefur verið virkt á útboðsmark-
aði auk þess að byggja og selja
íbúðir í eigin reikning.
Þetta er ein umtalaðasta
frétt sumarsins – og sitt sýn-
ist hverjum. Sögusagnirnar
hafa verið magnaðar. Hvað
um það; í miðri niðursveiflu
hlutabréfa og óróa á
markaðnum ákvað stjórn
Straums-Burðaráss að selja
5,31% af eigin bréfum til
kaupanda, sem er nafnlaus
fagfjárfestir, greiðir 10,2
milljarða króna fyrir bréfin,
óskar ekki eftir því að vera
skráður eigandi bréfanna
opinberlega heldur hefur þau
í vörslu söfnunarreiknings
Landsbankans í Lúxemborg.
Umræðan hefur að mestu
snúist um gengi bréfanna,
hver sé hinn nafnlausi og
óþekkti kaupandi, sem
sagður er fagfjárfestir og
krefst engra áhrifa þótt hann
kaupi svo stóran hlut í bank-
anum.
Um miðjan júlí sl. fór
gengi bréfa í Straumi-
Burðarási í 23,5 en þegar
rússíbanaferðin hófst og
snögg lækkun varð á Íslandi
sem og hlutabréfamörkuðum
um allan heim, ákvað stjórn
Straums að selja á genginu
18,6.
Í umræðunni hafa menn
heldur ekki þreyst á að tala
um að gengi bréfanna hafi
hækkað verulega sama
dag því að í næstu tveimur
færslum á undan og á eftir
þessum viðskiptum hafi við-
skiptagengið verið 19,0 og
að þarna muni 2,1% innan
dagsins. Bent er á að þar
af leiðandi hafi hinn óþekkti
kaupandi hagnast ágætlega
þegar þennan sama dag.
Umræðunni um þessa
forvitnilega sölu Straums á
eigin bréfum er örugglega
ekki lokið. Hún er mörgum
fjárfestum enn hulin ráð-
gáta.
18. ágúst
HVER KEYPTI BRÉFIN AF STRAUMI?
Straumur. Umtalaðasta frétt
sumarsins snýst um það
hver keypti bréfin af Straumi.
31. ágúst
Finnur floginn
Hún kom
talsvert á
óvart fréttin
um að Finnur
Ingólfsson
hefði selt
hlut sinn
í Icelandair
Group og hætt
í stjórn félagsins en hann hefur
verið stjórnarformaður félagsins
frá því að þrír kjölfestufjárfestar
keyptu félagið af FL Group sl.
haust.
Finnur hættir sem stjórnar-
formaður á næsta hluthafa-
fundi. Finnur seldi 15,5% hlut í
Icelandair Group á um 4,9 millj-
arða króna og er kaupandi m.a.
fjárfestingarfélagið Máttur sem
er í eigu Karls Wernerssonar og
Einars Sveinssonar.
Kristinn
Jörundsson.
Finnur floginn frá
Icelandair Group.