Frjáls verslun - 01.07.2007, Qupperneq 43
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 43
sömu hendi og að fyrirtæki sem væru í markaðsráðandi stöðu í
óskyldum rekstri mættu ekki reka fjölmiðil.
Í síðara fjölmiðlafrumvarpinu, sem lagt var fram eftir að
forseti Íslands neitaði að staðfesta lögin, var málum miðlað og
lagt til að enginn einn aðili eða tengdir aðilar gætu átt meira
en 25% hlut í fjölmiðlum sem náð hefðu tiltekinni útbreiðslu.
Sofnaði það frumvarp síðan í nefnd og að því er virtist var þegj-
andi samkomulag um þau endalok.
Útgáfufélögin DV og Birtíngur
Dagblaðið-Vísir – útgáfufélag ehf. tók við útgáfu DV, sem þá
var helgarblað, skömmu fyrir síðustu áramót með kaupsamn-
ingi við 365 miðla sem er dótturfélag 365 hf.
Hjálmur ehf. (sem er alfarið í eigu Baugs) átti þá 49% í
félaginu, 365 miðlar 40% og Sigurjón M. Egilsson, nýr rit-
stjóri, og Janus Sigurjónsson 11%.
Fyrr á þessu ári var DV endurreist sem dagblað og í júní sl.
seldu 365 miðlar 40% hlut sinn til Hjálms ehf. og á Hjálmur
þar með um 90% í DV eftir þau viðskipti. Hjálmur á jafnframt
88% hlutafjár í útgáfufélaginu Birtíngi, eftir að hafa keypt
28% hlut Sigurðar G. Guðjónssonar á vormánuðum. Elín G.
Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri á 7% og fáeinir til viðbótar
minni hluti.
Í júlímánuði var rekstur DV og Birtíngs sameinaður að
mestu. Útgefandi DV heitir nú DV - útgáfufélag eftir nafn-
breytingu. Birtíngur gefur út níu tímarit, þau eru Nýtt líf,
Mannlíf, Vikan, Séð og heyrt, Gestgjafinn, Hús og híbýli,
Ísafold, Sagan öll og Golfblaðið. Einnig munu félögin reka vef-
inn www.dv.is í sameiningu.
Áætluð sameiginleg velta Birtíngs og DV á þessu ári er á
bilinu 1.300 til 1.400 milljónir króna.
Stjórnarformaður Birtíngs, DV – útgáfufélags og Hjálms er
Hreinn Loftsson.
Árvakur hf.
Ýmsar breytingar hafa orðið hjá Árvakri að undanförnu og er
hann að þróast í þá átt að verða eignarhaldsfélag um marg-
þætta starfsemi á fjölmiðlamarkaði. Árvakur gefur nú út Morg-
unblaðið og Blaðið og starfrækir fréttavefinn www.mbl.is.
Félagið keypti 50% hlut í Ári og degi ehf. árið 2005 og síðari
helmingshlutinn í vor af Karli Garðarssyni, Sigurði G. Guð-
jónssyni og Steini Kára Ragnarssyni. Ár og dagur er enn til sem
félag en starfsemi Blaðsins hefur verið færð til Árvakurs.
Auk rekstrar fjölmiðlanna þriggja starfrækir Árvakur dreifi-
kerfi og á jafnframt nýtt dótturfélag, Landsprent ehf., sem á
og rekur prentsmiðju félagsins, en það prentar nær öll dagblöð
á Íslandi, að Fréttablaðinu undanskildu, auk fjölda blaða sem
koma út reglulega og óreglulega.
Árvakur hefur verið í eigu nokkurra samstíga fjölskyldna
um áratugaskeið og hófust breytingar á hluthafahópnum fyrir
alvöru fyrir rúmum tveimur árum er fjölskylda Haraldar Sveins-
sonar og Johnson hf. seldu liðlega fjórðung í útgáfufélaginu,
annars vegar til Straums – fjárfestingabanka og hins vegar til
Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Við eigendaskiptin varð Johnson að
MGM ehf. Í mars 2005 gerði Íslandsbanki tilboð í hlut Har-
aldar Sveinssonar, meðal annars fyrir hönd Bakkavararbræðra,
en aðrir hluthafar í Árvakri nýttu sér forkaupsrétt á bréfum í
félaginu og lýsti þáverandi framkvæmdastjóri Morgunblaðsins,
Hallgrímur Geirsson, tilboðinu sem tilraun til „óvinveittrar
yfirtöku“ á fundi með starfsmönnum.
Ólafsfell ehf., félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, keypti
8% hlut í Árvakri af Lynghaga ehf., félagi í eigu Ingileifar Hall-
grímsdóttur, fyrir tæpu ári síðan, en Ólafsfell átti þá 82% hlut
í Eddu – útgáfu hf. sem nú hefur verið seldur.
Í apríl síðastliðnum keypti Ólafsfell jafnframt FSV Media
ehf., sem var í jafnri eigu Straums-Burðaráss – fjárfestinga-
banka hf., Útgáfufélagsins Valtýs ehf. og Forsíðu ehf. Eina eign
F J Ö L M I Ð L A R
VIÐSKIPTAVELDIN
EIGA STÆRSTU
MIÐLANA
ÁRVAKUR
Feðgarnir Björgólfur
Guðmundsson og
Björgólfur Thor
Björgólfsson.
Fjölmiðlaveldi þeirra er
Árvakur sem gefur út
Morgunblaðið og Blaðið.