Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2007, Page 62

Frjáls verslun - 01.07.2007, Page 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7 T R Y G G V I Þ Ó R H E R B E R T S S O N Í N Æ R M Y N D gekk ég út með undirritaðan samning og var búinn að ráða mig sem forstjóra Askar Capital sem er fjárfestingarbanki í meiri- hlutaeigu Milestone. Askar Capital starfar á mörgum sviðum. Í fyrsta lagi sinnir bankinn fasteignaráðgjöf, hann leitar uppi fasteignaverkefni um allan heim sem hann skipuleggur og ráðleggur með fjármögnun. Hann finnur fjárfesta til að taka þátt í verkefnunum, rekur þau í til- tekið tímabil og gefur ráð í sambandi við sölu. Við erum þegar komnir með verkefni víða og má þar nefna borgir eins og Makaó, Hong Kong, Singapúr og Dubai, auk þess sem við erum með nokkur verkefni í Austur- og Vestur-Evrópu og í Bandaríkjunum. Sam- anlagt er virði þessara verkefna 1,3 milljarðar evra eða í kringum 120 milljarða íslenskra króna. Í öðru lagi sjáum við um fjármögnun, áhættu- og skuldastýringu fyrir ýmis félög, fyrirtæki og stofnanir. Í þriðja lagi erum við með viðskipti fyrir eigið fé upp á rúma 11 milljarða króna og stundum fjárfestingar út um allar koppagrundir erlendis. Við erum einnig að vinna að uppsetningu sjóða sem við ætlum að selja inn. Askar á einnig dóttur- fyrirtæki sem heitir Avant og sérhæfir sig í bílalánum. Velta Askar Capital í skuldastýringu er um 200 milljarðar króna en um 120 millj- arðar í fasteignaeignastýringunni eins og áður segir en markmiðið er að hún nái 200 milljörðum á skömmum tíma. Í dag starfa um 60 manns hjá fyrirtækinu og við höfum ráðið 20 til viðbótar sem hefja störf um miðjan september. Við erum með starfs- menn í London og Luxemburg og erum að setja upp skrifstofur í Búkarest og Hong Kong,“ sagði Tryggvi. Þrátt fyrir að Askar Capital sé með verk- efni úti um allan heim segist Tryggvi aðallega starfa á Íslandi. „Ég hef að vísu komið á alla þá staði þar sem við erum með verkefni og suma þeirra oftar en einu sinni en ég reyni að stýra þeim héðan,“ sagði hann. Mörg áhugamál Tryggvi hefur mörg áhugamál utan vinn- unnar, hann hefur brennandi áhuga á mynd- list, hestamennsku, bílum og ferðalögum. Hann er stjórnarformaður i8 gallerís og er varamaður í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. „Satt best að segja er ég dellukarl í mér og veð stundum úr einu í annað. Myndlist hefur lengi átt hug minn en undanfarin tvö ár hef ég sótt fast fram í að sinna því áhugamáli og við hjónin leyft okkur að kaupa myndir eftir íslenska nútímalistamenn eftir að fjárráðin fóru að verða rýmri. Ég hef einnig mikinn áhuga á hestum og er með hesthús í Víðidal ásamt bræðrum mínum og fer í hestaferðir á sumrin. Mér þykir mjög gaman að ferðast og koma á nýja staði og hef býsna mikið úthald hvað það varðar. Ég á mér líka uppáhalds- staði og London á sérstakan sess í mínum huga en mér þykir ekkert mjög spennandi að koma til Kaupmannahafnar lengur enda búinn að millilenda þar mjög oft. Ef ég ætti að nefna einn stað til að fara með fjölskyld- unni og hvíla mig væri það Toscanahérað á Ítalíu þó að ég hafi hafa bara komið þar einu sinni. Ég er aftur á móti viss um að ef þú spyrðir mig að þessu á næsta ári mundi ég nefna einhvern annan stað og þá líklega Mjóafjörð. Ég átti mótorhjól þegar ég var yngri og er með létta bíladellu sem hefur ágerst með betri fjárhag því bílarnir sem ég fæ mér eru alltaf að verða betri. Ætli lokadellan verði ekki golf enda nauðsynlegt að kunna þá íþrótt þegar maður er í viðskiptum enda margir gert stóra samninga meðan á leik stendur,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson að lokum. Nafn: Tryggvi Þór Herbertsson. Fæddur: 17. janúar 1963. Maki: Sigurveig María Ingvadóttur leikskólakennari. Börn: Halldór Reynir fæddur 1990, Anna Ragnheiður fædd 1997, Mist fædd 1988 og Veigar fæddur 1993. Starf: Forstjóri Askar Capital. B . G . Þ j ó n u s t a n e h f . l S u ð u r h r a u n i 4 l S í m i : 5 3 3 5 0 0 0 l F a x : 5 3 3 5 0 0 0 1 l w w w w . b g t . i s BG er eitt af öflugustu hreingerninga- fyrirtækjum landsins. Á hverjum degi ræstum við tugi þúsunda fermetra að alls kyns húsnæði. Viðskiptavinir okkar eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, verslanir, tryggingafélög, stofnanir, húsfélög ofl. Hafðu samband í dag og við munum senda þér kynningarfulltrúa strax á staðinn til að gera þér fast verðtilboð að kostnaðar- og skuldbindingalausu. Heildarlausnir Málið er einfalt. Við sjáum um þig… Umhverfishreinsun Hreingerningar Ræstingar Fjölskyldan komin saman. Tryggvi Þór Herbertsson og Sigurveig María Ingvadóttir með börnum. Frá vinstri: Mist, Sigurveig María, Anna Ragnheiður, Tryggvi Þór og Halldór Reynir. Á myndina vantar Veigar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.