Frjáls verslun - 01.07.2007, Side 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Á NordicaSpa er lögð höfuðáhersla á gæði og persónulega þjónustu.
Starfsfólkið kappkostar að gera
vel við alla sína viðskiptavini og
tryggja vellíðan þeirra. Hver og
einn fær einstaklingsþjónustu og
ráðgjöf við hæfi.
Ragnheiður Birgisdóttir er
framkvæmdastjóri NordicaSpa.
Hún segir að viðskiptavinir
NordicaSpa fái gott aðhald í
ræktinni og leiðsögn hjá þjálfara
í tækjasalnum í hvert sinn sem
komið er í heilsuræktina:
„Þjálfararnir okkar aðstoða
viðskiptavini við æfingar – stilla
tækin og leiðbeina samkvæmt
persónulegri æfingaáætlun við-
komandi gests auk þess að aðstoða
einnig við teygjur ef þess er óskað
en það er einmitt sérstaða sem
NordicaSpa hefur umfram aðrar
heilsuræktir.
Í upphafi eru viðskiptavinir
NordicaSpa „heilsufarsmældir“,
þ.e. þjálfarinn gerir stöðumat og
setur upp æfingakerfi. Heilsufa-
rsmælingin felur í sér blóðþrýst-
ings-, fituprósentu- og þyngdar-
mælingu. Þá fer fram næringar-
ráðgjöf og þjálfararnir hafa síðan
vakandi auga með gestunum og
fylgja æfingaáætlunum þeirra vel
eftir. Á fjögurra til átta vikna
fresti er æfingaáætlunin síðan
endurskoðuð. Viðskiptavinum
gefst líka kostur á reglulegum
mælingum þess á milli til að
fylgjast með árangrinum.
NordicaSpa býður einnig upp
á fjölbreytta hóptíma svo allir
ættu að geta fundið sér hreyfingu
og þjálfun við hæfi. Við erum t.d.
með skemmtilega tíma frá Les
Mills, fjölbreytta brennslutíma,
jóga, qi gong og margt fleira.
Einnig bjóðum við upp á nám-
skeið í Rope Yoga og höfum verið
með nokkur Pilates námskeið í
gegnum árin. Á boðstólum eru
líka sérstök átaksnámskeið fyrir
bæði karla og konur en þau hafa
verið sérlega vinsæl og þátttak-
endur verið að ná mjög góðum
árangri. Í því prógrammi leggjum
við áherslu á púlsþjálfun sem
gerir fólki kleift að fylgjast með
púlsinum og hitaeiningabrennsl-
unni í hverjum tíma sem er ákaf-
lega hvetjandi.
Vikulega höfum við inni í
sal aðgengilegan prentaðan fróð-
leik og heilsusamlegar uppskriftir.
Við seljum gott úrval af fersk-
pressuðum söfum, lífræna heilsu-
drykki, prótein- og skyrdrykki
sem fólki finnst hressandi að taka
með sér heim eða í vinnuna eftir
árangursríka þjálfun.“
Heilsulindin
„Aðgangur að heilsulind Nordica-
Spa er innifalinn fyrir alla við-
skiptavini heilsuræktarinnar en
þar er boðið upp á herðanudd í
heitu pottunum alla daga, sem er
önnur skemmtileg sérstaða okkar.
Að æfingu lokinni er dásamlegt
að njóta hvíldar i heitu pottunum
í heilsulindinni og fá slakandi
herðanudd hjá nuddurunum. Þar
getur fólk látið þreytu dagsins líða
úr sér og komið endurnært út.
Í heilsulindinni eru tveir
nuddpottar, sérstök slökunarlaug
og tvær vatnsgufur með ilmi. Úti
á veröndinni er einnig heitur
pottur, sauna og sólbaðsaðstaða.
Heilsulind NordicaSpa býður
upp á fjölbreytt úrval af nudd-
meðferð og snyrtimeðferð fyrir
karla og konur. Við erum með
einstaklega góða nuddaðstöðu í
rúmgóðum herbergjum en valið
stendur um ýmsar gerðir af
nuddi, svo sem klassískt nudd,
svæðanudd, ilmolíunudd, leir-
meðferð með íslenskum hveraleir
og steinanudd, svo að eitthvað sé
nefnt. Innifalið í öllum snyrti-
og nuddmeðferðum er aðgangur
að heilsulindinni, handklæði og
sloppur.“
NordicaSpa:
Hressandi heilsulind
„Aðgangur að heilsulind
NordicaSpa er innifalinn
fyrir alla viðskiptavini
heilsuræktarinnar, en þar
er boðið upp á herðanudd í
heitu pottunum alla daga,
sem er önnur skemmtileg
sérstaða okkar.“
Að sögn Ragnheiðar
Birgisdóttur, framkvæmda-
stjóra NordicaSpa, eru tveir
nuddpottar í heilsulindinni,
sérstök slökunarlaug og
tvær vatnsgufur með ilmi.