Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
DAGBÓK I N
Það eru ekki mörg fyrirtæki
sem hafa það á ferilskrá sinni
að hafa bylt borgarstjórnum.
umtalaðasta fyrirtæki landsins
þennan mánuðinn, reykjavik
Energy Invest (rEI), dótturfélag
Orkuveitu reykjavíkur, er hins
vegar eitt þeirra.
Miðvikudaginn 3. október
hófst mikið moldviðri þegar
tilkynnt var um sameiningu
reykjavík Energy Invest og
Geysis Green Energy undir
merkjum hins fyrrnefnda
fyrirtækis (rEI). Þeirri
atburðarás sem þá fór í
gang lyktaði með því að
samstarf sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks brast.
Fulltrúi Framsóknarflokks,
Björn Ingi Hrafnsson, gekk
út úr samstarfinu og myndaði
nýjan meirihluta með
samfylkingu, Vinstri grænum
og Óháðum. sjálfstæðismenn
misstu því borgina. Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson hætti sem
borgarstjóri en Dagur B.
Eggertsson tók við.
En lítum betur á málið. Í
hinu nýja sameinaða fyrirtæki
rEI voru helstu hluthafar
þessir: Orkuveita reykjavíkur
(35,5%), FL Group (27,0%),
Atorka (20,0%), Glitnir
(7,0%) og aðrir (11,3%) en
á meðal þeirra voru Bjarni
Ármannsson, stjórnarformaður
rEI, Guðmundur Þóroddsson,
forstjóri rEI, Jón Diðrik
Jónsson, sérstakur ráðgjafi rEI,
og ýmsir starfsmenn sem áttu
að fá kaupréttarhluti.
Bjarni Ármannsson hafði í
upphafi sem stjórnarformaður
fengið að kaupa 7% hlut í
reykjavik Energy Invest af
Orkuveitunni þannig að borgin
átti um 93% hlut í fyrirtækinu
þegar ákveðið var að sameina
það við Geysi Green Energy.
Þegar samstarf sjálfstæðis
flokks og Framsóknarflokks
hófst í borginni í fyrravor varð
Guðlaugur Þór Þórðarson
stjórnarformaður Orkuveitu
reykjavíkur. undir hans
stjórn var ákveðið að stofna
dótturfélagið reykjavik
Energy Invest og átti það að
halda utan um eignarhluti
Orkuveitunnar í ýmsum
verkefnum en þó fyrst og
fremst að skoða ýmsa kosti
tengda útrás í orkugeiranum.
Fengu sjálfstæðismenn
Bjarna Ármannsson sem
stjórnarformann í fyrirtækinu.
til að gera langa sögu
stutta þá varð allt vitlaust
í borgarstjórnarflokki sjálf
stæðisflokksins þegar tilkynnt
var um sameininguna við Geysi
Green Energy hinn 3. október
og að útvaldir starfsmenn ættu
kost á að kaupa stærri hlut
en aðir. Varð þetta til þess að
sex borgarfulltrúar flokksins
funduðu á laun og gættu þess
að hafa foringja sinn Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóra ekki
með á þeim fundum.
sjálfstæðismenn sögðu
þetta: 1) Orkuveitan á ekki
að eiga hlut í fyrirtæki sem
stendur í áhættusamri útrás
og fjárfestingum erlendis.
2) Það er ekki eðlilegt að
blanda saman opinberum
rekstri og einkarekstri
í slíkum verkefnum. 3)
Ekki er rétt að Orkuveitan
standi að gerð sérstakra
kaupréttarsamninga við útvalda
starfsmenn rEI. 4) Orkuveitan
á að sinna orkumálum á
höfuðborgarsvæðinu en ekki
að vera með glýju í augum og
leika áhættufjárfesta sem telja
sig geta tvö til þrefaldað virði
fyrirtækisins á næstu árum.
Fulltrúi Framsóknar
flokksins, Björn Ingri
Hrafnsson, setti það á oddinn
að Orkuveitan ætti áfram
35,5% hlut sinn í hinu nýja
sameinaða fyrirtæki rEI og
tæki áhættu á að hluturinn
tvö til þrefaldaðist í verði.
sjálfstæðisflokkurinn vildi að
þessi hlutur yrði seldur strax,
eða að minnsta kosti settur í
söluferli strax.
um þetta urðu ekki sættir.
Borgarstjórninni var bylt af
Birni Inga Hrafnssyni. Biti
Orkuveitunnar í reykjavik
Energy Invest reyndist of stór
biti eftir allt saman. Vika er
langur tími í pólitík.
3. október til 11. október
reyKjaVíK energy InVest
ByltI BorgarstjórnInnI Moldviðrið í kringum Reykjavik Energy Invest varð til þess að borgarstjórninni var bylt og nýr meirihluti í borginni er tekinn við.