Frjáls verslun - 01.11.2007, Page 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
DAGBÓK I N
Fall hlutabréfa og uppstokk
unin í FL Group hafa auðvitað
verið heitustu málin í viðskipta
lífinu undanfarið. Nóvember var
versti mánuður í kauphöllinni
frá upphafi. Ekki byrjaði des
ember heldur vel og er óhætt
að segja að markaðurinn sé
í uppnámi og er þá vægt til
orða tekið. Öll hækkun ársins á
markaðnum er gengin til baka.
Frétt fréttanna er samt
uppstokkunin hjá FL Group
þar sem Baugur og Jón Ásgeir
Jóhannesson tóku öll völd
í félaginu og komu því til
aðstoðar með því leggja eigna
safn Baugs í fasteignafélögum
inn í félagið sem nýtt hlutafé.
um er að ræða allar eignir
félagsins í fasteignafélögum.
Gengið í þessum viðskiptum
var 14,7 eða fjórðungi lægra
en gengið hafði verið í síðustu
viðskiptum, þ.e. 19,25. Þetta
hafði í för með sér að gengið
hríðféll þegar kauphöllin opn
aði morguninn eftir. sú lækkun
kom í kjölfarið á því að gengi
félagsins hafði hrapað um 7,9%
mánudaginn 3. desember.
Þá eru það auðvitað stór
tíðindi að Hannes smárason,
einhver sókndjarfasti forstjóri
viðskiptalífsins, sé hættur
sem forstjóri félagsins. Það
hefði þótt óhugsandi fyrir einu
ári. Jón sigurðsson, aðstoðar
forstjóri FL Group, tók við for
stjórastarfinu.
uppstokkunin á FL Group
var kynnt til sögunnar á blaða
mannafundi síðdegis 4. des
ember og kom fram að eigið
fé félagsins yrði aukið um 64
milljarða og færi í 180 milljarða
króna. Þar af kæmi Baugur
með um 54 milljarða króna en
fagfjárfestar 10 milljarða. Eftir
þessi viðskipti yrði Baugur
Group stærsti hluthafinn í FL
Group og færi eignarhluturinn
úr 17,7% í rösk 38% í fyrsta
áfanga hlutafjáraukningarinnar
en á næsta ári yrði hlutur
Baugs minnkaður niður í
35,9%.
Við þetta tækifæri sagði Jón
Ásgeir Jóhannesson, stjórnar
formaður FL Group, að félagið
væri að draga úr markaðs
áhættu og „verja eiginfjárgrunn
inn“. síðan sagði Jón Ásgeir:
„Menn munu ganga hægt um
gleðinnar dyr í nýjum fjárfest
ingum, heldur velja þær mjög
vandlega í framtíðinni.“
En lítum á þessi viðskipti
tæknilega. Þau eru frekar flókin
og um margs konar viðskipti er
að ræða. En heildarmyndin er
skýr, Baugur setur öll fasteigna
félög sín inn í FL Group til að
styrkja það félag.
FL Group byrjaði á að kaupa
eignasafn Baugs í fasteignafé
5. desember
Jón Ásgeir Jóhannesson:
VIð eruM að Verja eIgInfjárgrunnInn í fl group
Hannes Smárason,
fráfarandi forstjóri
FL-Group, Jón Ásgeir
Jóhannesson,
stjórnarformaður
og Jón Sigurðs-
son, nýr forstjóri,
sátu fyrir svörum á
blaðamannafundi
4. desember.