Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 16
80 LÆKNAblaðið 2014/100 ævilengd og viðhalda lífsgæðum sjúklings. Ef lyfjameðferð er ekki gefin er meðallifun um 7 mánuðir.85 Með tilkomu nýrra lyfja síðastliðin 10-15 ár hefur meðallifun meðhöndlaðra sjúklinga aukist úr 10-12 mánuðum í 20-24 mánuði og 5 ára lifun farið úr 1% upp í 10%.86 Yfirleitt er beitt fjöllyfja- meðferð þar sem 5-FU/LV eða capecitebín eru gefin, annaðhvort með oxaliplatíni (FOLFOX, CAPOX) eða írínótecani (FOLFIRI) og eru þær jafnvirkar sem fyrsta meðferð (sjá mynd 2).87 Þegar æxli hættir að svara annaðhvort FOLFOX eða FOLFIRI er skipt yfir í hina meðferðina en slík nálgun getur bætt lifun umtalsvert.88 Í 50- 60% tilfella smækkar æxlið (objective response) við fyrstu meðferð. Í um 20-30% stendur æxlisstærð í stað (stable disease) en í 20% tilfella svarar æxlið ekki fyrstu lyfjameðferð (progressive disease). Svörun endist að miðgildi í 10-14 mánuði á fyrstu meðferð (first line). Á annarri meðferð (second line) má búast við smækkun á æxlum í 5-15% tilfella og svörun stendur að miðgildi í 2-6 mánuði.89 Flestir álíta að best lifun náist með nær samfelldri krabbameinslyfjameð- ferð uns ástand sjúklings leyfir ekki frekari meðferð, sjúklingur ákveður að þiggja ekki frekari meðferð eða meðferðarúrræði eru uppurin. Oft er beitt stífri upphafsmeðferð í 4-6 mánuði en síðar skipt yfir í viðhaldsmeðferð með færri lyfjum sem alla jafna þolast betur. Þegar æxlisvaxtar gætir á ný er meðferðin hert aftur og öðrum lyfjum beitt.90,91 Meðferðarhlé skyldi forðast þar sem slík hlé eru talin geta leitt til styttri lifunar. Á síðari árum hefur nýjum lyfjum verið beitt sem vinna gegn ákveðnum þáttum í vaxtarferli æxlanna (marksækin meðferð). Stökkbreytingar í KRAS-geninu koma fyrir í 40% æxla og spá fyrir um svörun við EGFR-hemla meðferð92,93 þar sem æxli með stökk- breytingar eru ónæm gagnvart þessari meðferð. Stökkbreytingar í BRAF-geninu koma fyrir í 5-10% æxla á stigi IV og spá fyrir um verri horfur, en virðast ekki spá fyrir um svörun við EGFR- eða VEGF-hemla meðferð.94 Lyf gegn epidermal growth factor-viðtækinu (EGFR), cetuximab og panitumumab, hafa bætt lifun sjúklinga ef þeim er bætt við hefðbundna krabbameinslyfjameðferð en hafa einnig virkni ein og sér.93,95,96 Þessi lyf minnka æxli í 10-20% tilfella og lengja lif- un um 6-8 vikur hjá sjúklingum sem hafa hætt að svara öðrum meðferðum.96,97 Cetuximab virðist einnig geta endurvakið næmi æxla fyrir írínótecani.98 Því er þessum EGFR-hömlum oft beitt sem þriðju meðferð (mynd 3). Annar lyfjaflokkur sem hefur bætt horfur lítillega eru lyf sem beinast að VEGF-viðtakanum (vascular endothelial growth factor, VEGF). Tvö slík lyf eru á markaði, beva- cizumab og aflibercept.99-101 Þó þessi umræddu nýju lyf séu hjálp- leg verður að geta þess að viðbótarávinningur með lengri lifun er minniháttar, yfirleitt 6-8 vikur, og þessi lyf eru mjög dýr og óljóst hvort meðferðin svarar kostnaði.102 Nýjasta lyfið sem kom á markað í Bandaríkjunum haustið 2012 heitir regorafenib og er tý- rósínkínasahemill sem er gefið í töfluformi og virðist hafa nokkra virkni í tilfellum þar sem öll fyrri meðferð hefur hætt að virka og lengir lifun að jafnaði um 6 vikur umfram lyfleysu.103 Staðsetning meinvarpa getur spáð fyrir um lifun. Sjúklingar með meinvörp í lífhimnu hafa styttri lifun miðað við sjúklinga með meinvörp í lifur eða lungum.104 Þörf er á betri meðferðarúr- ræðum fyrir lífhimnumeinvörp. Skurðaðgerðum þar sem allur æxlisvöxtur er fjarlægður og hitaðri lausn krabbameinslyfja hellt inn í kviðarhol (hyperthermic intraperitoneal chemotherapy, HIPEC) hefur verið beitt ef æxlin eru bundin við lífhimnu. Þessa meðferð má íhuga í völdum tilfellum, einkum ef um er að ræða hæggengari æxli.105,106 Almennt ástand sjúklings, mælt með færnikvarða ECOG (ECOG Performance status, tafla III), spáir þó best fyrir um lifun. Meðallifun sjúklinga með PS 2 reyndist 8,5 mánuðir en 17,3 mán- uðir hjá sjúklingum með PS 0-1 þegar þessum tveimur hópum var gefin lyfjameðferð.107 Það ber að íhuga hvort gefa eigi sjúklingum með PS 2 lyfjameðferð. Undantekning frá því væri ef lélegur PS er tengdur krabbameininu en þá getur meðhöndlun krabbameinsins bætt PS og horfur.107 Meðferð meinvarpa sem bundin eru við lifur Þriðjungur sjúklinga sem greinist með sjúkdóm á stigi IV hefur eingöngu meinvörp í lifur. Eins geta lifrarmeinvörp greinst við endurkomu sjúkdóms. Ef hægt er að fjarlægja meinvörp með aðgerð er 5 ára lifun allt að 45%. Þetta er betri árangur en af Tafla III. ECOG-færnikvarðinn til mats á getu sjúklinga. 0 Engar hömlur á færni 1 Fær um létta vinnu, hömlur á erfiðisvinnu 2 Sjálfbjarga en ófær um að vinna. Á fótum meira en 50% af vökutíma 3 Þarfnast hjálpar við athafnir daglegs lífs. Bundinn við rúm eða stól meira en 50% af vökutíma 4 Algerlega ósjálfbjarga, rúmfastur 5 Látinn ECoG: Eastern Co-operative oncology Group Skammstafanir: BSM = besta stuðningsmeðferð; *5-Fu eða forlyfið capecitabine; **Hugleiða má viðhaldsmeðferð með 5-Fu með marksækinni meðferð ef sjúkdómsbyrði er lítil og ef æxli hafa svarað (minnkað eða haldist stöðug) eftir 4-6 mánuði á meðferð; ***Einungis ef æxli er án stökkbreytingar í KRAS. Mynd 2. Meðhöndlun sjúklinga með útbreitt ristil- eða endaþarmskrabbamein. Mynd 3. Tölvusneiðmynd af kvið sem sýnir lifrarmeinvörp fyrir og eftir tveggja mánaða meðferð með írínótecan og panitumumab, gefið sem þriðja (third line) meðferð í sjúklingi með æxli án stökkbreytingar í KRAS. Y F i R l i T S G R E i n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.