Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 42
106 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Læknadagar hafa skapað sér traustan sess meðal íslenskra lækna og eru vel sóttir af stórum hluta stéttarinnar. Hróður þessa umfangsmikla þings fer æ víðar og sí- menntunarhlutverk þess er viðurkennt af alþjóðlegum stofnunum. Dagskráin var fjölbreytt og vönduð og almenn ánægja með hvernig til tókst í ár sem endranær. Ekki verður tíundað allt er fjallað var um á þeim mikla fjölda málþinga og vinnubúða er féllu undir dagskrána að þessu sinni, enda hvert og eitt verðugt efni í sérstaka umfjöllun. Segja má að málefni lækna hafi verið í nokkrum brennidepli frá ýmsum sjónar- hornum, en fjallað var um kjaramál lækna, heilsufar, samskipti milli ólíkra greina læknisfræðinnar, skaðsemi lækninga, kulnun í starfi, öryggi heilbrigðisþjónust- unnar og fleira mætti nefna af svipuðum toga. Voru viðmælendur Læknablaðsins sammála um að þetta sýndi vitund lækna- stéttarinnar um ábyrgð sína og mikilvægi þess að gæta að eigin heilsu ekki síður en skjólstæðinganna. Kjaramál í brennidepli Á málþingi er samninganefnd Lækna- félags Íslands efndi til, voru kynntar áherslur nefndarinnar í næstu kjaravið- ræðum, til hvaða aðgerða læknar geta gripið ef samningaviðræður sigla í strand og launaþróun læknastéttarinnar á Íslandi í samanburði við nágrannalöndin. „Það var breið samstaða um það á fundinum að kjör lækna væru orðin alltof bág og að það hefði sigið á ógæfuhliðina mörg undanfarin ár,“ sagði Þorbjörn Jónsson formaður LÍ. „Samanburður við Norðurlöndin er orðinn okkur mjög óhag- stæður, bæði varðandi launataxtana sjálfa en líka varðandi vinnutíma og vaktir.“ Margir fundarmenn minntust á hversu skammarlega lág laun nýútskrifaðra lækna væru að teknu tilliti til námslengdar og ábyrgðar í starfi. Sérstök áhersla var í máli manna lögð á hækkun grunnlauna. „Þá er rétt að minnast á launamun kynjanna en hann er ennþá til staðar. Við vitum ekki nákvæmlega af hverju hann stafar en það mál þarf að kanna. Það er auðvitað ekki ásættanlegt að launakjör ákvarðist að einhverju leyti af kynferði,“ sagði Þorbjörn. Læknadagar 2014 Fræðandi, upplýsandi og skemmtilegir Þórarinn Ingólfsson, Jörundur Kristinsson, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Arna Guðmundsdóttir og Magni Jónsson voru hæstánægð með Læknadagana. Geir Gunnlaugsson landlæknir og Þórður Harðarson prófessor og yfirlæknir hlýða á fyrirlestur á málþinginu Góð og örugg heilbrigðisþjónusta. Benedikt Sveinsson fór á kostum á málþingi um líðan og heilsu lækna og bætti svo enn um betur sem veislustjóri á árshátíð LR en þá var hann með hatt. ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.