Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 34
98 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á málþingi um nýjungar í augnlækn-
ingum sem haldið var á nýafstöðnum
Læknadögum var fjallað um ýmsar nýjar
aðferðir við augnskurðlækningar, ný lyf
og greiningartæki sem komið hafa fram
á síðustu árum og valdið straumhvörfum
í meðhöndlun ýmissa augnsjúkdóma.
María Soffía Gottfreðsdóttir augnlæknir
og sérfræðingur í glákuskurðlækningum
hafði umsjón með málþinginu og fjallaði
sjálf um greiningu og meðferð gláku-
sjúkdóma.
Minnstu íhlutir sem græddir
eru í mannslíkamann
María Soffía fjallaði í erindi sínu um
greiningu og einkenni gláku og nýjungar
í meðferð og skurðaðgerðum. „Þar hafa
orðið mjög miklar framfarir á undanförn-
um árum og glákan hefur farið úr fyrsta
sæti í þriðja sem algengasti blinduvaldur á
Íslandi langt frameftir síðustu öld, og var
blinda algengari á Íslandi en í nokkru öðru
Evrópulandi. Það er umtalsverður árangur
í sjálfu sér. Reikna má með að um 5000
manns séu með gláku á Íslandi en blindir
af völdum gláku eru einungis um 4% sam-
kvæmt skráningu Þjónustu- og þekkingar-
miðstöðvar fyrir blinda og sjónskerta. Í
Reykjavíkuraugnrannsókninni frá 1998
sem Friðbert Jónasson prófessor stóð fyrir,
kom í ljós að um 10% glákusjúklinga höfðu
ekki fengið greiningu og meðferð. Í svip-
uðum rannsóknum í nágrannalöndunum
er þessi tala mun hærri, jafnvel 50-60%.
Glákan er þögull sjúkdómur sem gefur
yfirleitt engin einkenni fyrr en á lokastigi,
sjúklingurinn tekur ekki eftir því hvernig
sjón hrakar, þar sem sjónsviðið þrengist
hægt og bítandi, en skýrleikinn tapast
jafnvel ekki fyrr en með algerri blindu.
Sjúklingur getur því verið með fulla sjón
á sjónprófi með sjónsvið sem er ekki nema
10 gráður. Gláka getur endað með algerri
blindu ef ekkert er að gert. Gláka er sjúk-
dómur í sjóntauginni (optic neuropathy),
orsakir eru ekki að fullu þekktar en hár
augnþrýstingur er einn aðaláhættuþáttur
gláku. Meðferð og aðgerðir beinast að
því að draga úr augnþrýstingi. Með réttri
meðferð er hægt að hægja verulega á fram-
gangi sjúkdómsins.“
María segir skimun við gláku sérlega
mikilvæga vegna þess hversu lúmsk þróun
sjúkdómsins er, og góð grundvallarþekk-
ing heimilislækna á gláku sé mikilvæg.
„Lyfjameðferð er mun betri í dag en áður
var og aukaverkanir af nýjum lyfjum
minni. Einnig þarf að gefa lyfin sjaldnar,
til dæmis komu prostaglatínanalógar á
markað rétt fyrir síðustu aldamót en þá
þarf einungis að gefa einu sinni á sólar-
hring og aukaverkanir eru fátíðar. Það er
mikill munur frá fyrri lyfjum sem dreypa
þurfti mörgum sinnum á sólarhring og
höfðu meiri aukaverkanir. Lyfin lækka
augnþrýstinginn og hægja á framgangi
glákunnar.“
Skurðaðgerðir við gláku
Hár augnþrýstingur stafar af óeðlilegu
útflæði á augnvökvanum í síuvef augans.
Aðgerðir til lækkunar augnþrýstings
beinast að því að auka útflæði og þar segir
María að miklar framfarir hafi orðið á
undanförnum árum.
„Í auganu er líffæri, corpus ciliaris, sem
framleiðir augnvökvann. Augnvökvinn
fer ákveðna leið, í gegnum augnsíuna
(trabecular meshwork) og inn í ákveðinn
gang – Schlemm ś canal og þaðan út og í
blóðrásina. Við gláku verður ákveðin fyrir-
staða í síunni, sem stafar meðal annars af
upphleðslu á eggjahvítuefnum og vefja-
skemmdum. Þannig myndast fyrirstaða í
síunni og vökvinn safnast upp í auganu.
Glákulyfjunum er ætlað að minnka vökva-
framleiðsluna eða auka útflæði hans með
því að hafa áhrif á síuna. Í dag er verið að
þróa ný lyf sem miklar vonir eru bundnar
við og er ætlað að hafa áhrif á og vernda
taugavef sjóntaugarinnar (neuroprotection)
en þau eru ekki komin á markað ennþá.“
Mestu framfarirnar á allra síðustu
árum, að sögn Maríu, hafa þó orðið í
skurðaðgerðum við gláku. „Í dag gerum
við ýmsar aðgerðir við gláku, þar sem
sjúkdómurinn er á ýmsum stigum og
einnig eru nokkrir flokkar gláku sem kalla
á sérstakar aðgerðir. Fyrir 5 árum byrjaði
ég að gera aðgerð sem kallast canaloplasty,
þar sem síuvefurinn í auganu er einangr-
aður og síðan er ljósleiðaraþráður þræddur
inn í síuganginn, Schlemm ś canal, 360
gráður. Þetta er gert til að opna ganginn
að nýju en eitt af einkennum gláku er að
þessi gangur fellur saman og lokast. Þetta
er hátæknileg aðgerð, enda er ljósleiðarinn
ekki nema 250 míkrón í þvermál. Með
þessu er eðlilegt gegnumstreymi vökva í
auganu endurreist en í fyrri hefðbundnum
aðgerðum er gert dren framhjá síunni eða
sett inn shunt. Þessi aðgerð hefur skilað
mjög góðum árangri.
Önnur mjög spennandi nýjung sem
farið er að gera í Bandaríkjunum og ég
vonast til að geta tekið upp á hér Land-
spítala innan skamms, er að setja örlítið
Fjölmargar nýjungar
á sviði augnlækninga
Rætt við Maríu Soffíu Gottfreðsdóttur
sérfræðing í glákuskurðlækningum