Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 01.02.2014, Blaðsíða 15
LÆKNAblaðið 2014/100 79 er sjaldan notuð í Bandaríkjunum en nýleg rannsókn sýndi lítinn mun á þessum tveimur meðferðum.67 Á Íslandi er yfirleitt beitt lengri geislameðferð samhliða krabbameinslyfjameðferð fyrir skurðaðgerð. Við greiningu og val á meðferð er mikilvægt að staðsetja enda- þarmsæxli nákvæmlega með tilliti til endaþarmshringvöðva og grindarbotnsvöðva. Endaþarmi er skipt í þrjá hluta, neðri (0-5 cm), mið (6-10 cm) og efri hluta (11-15 cm). Fjarlægð frá endaþarms opi eða tenntu línu endaþarmsgangs (dentate line) er mæld með stífri endaþarmsspeglun (rigid proctoscope) þar sem mæliskekkja getur verið við sveigjanlega speglun. Nákvæm staðbundin stigun er afar mikilvæg. Við stigun er notuð ómskoðun á endaþarmi um holsjá (endorectal ultrasound) eða segulómun. Með segulómun er að hægt að meta hringlægar skurðbrúnir (circumferential resection margin, CRM). Allt að 20% sjúklinga með neikvæða eitla við ómskoðun (T3N0-stig) reynast hafa eitlameinvörp við aðgerð.68 Ef endaþarmsæxli er lágt eða ífarandi í hringvöðvana þarf að fjarlægja endaþarminn og útbúa varanlega þarmarauf eða stóma (gagngert brottnám, abdominoperineal resection, APR). Mælt er með 2 cm neðri mörkum hið minnsta, en oft er hægt að þyrma enda- þarmsvöðvunum í mið- og lágum æxlum að því gefnu að 1 cm neðri mörk náist.69 Með bættri skurðtækni og geislameðferð má lækka tíðni gagngers brottnáms úr 60% í 27%.70 Smækkun æxlis (downstaging) með geislalyfjameðferð fyrir aðgerð getur í stöku til- fellum hlíft endaþarmsvöðvum og þar með komist hjá varanlegri þarmarauf. Starfshæfni mjög lágrar tengingar (coloanal anastomos- is) getur verið léleg og varanleg þarmarauf því betri kostur, sér- staklega hjá öldruðum og þeim sem þjást af hægðaleka. Vegna eðlis gagngers brottnáms má íhuga staðbundið brott- nám staðbundins endaþarmsæxlis á lágu stigi, annaðhvort með hefðbundnu brottnámi um endaþarm (transanal excision) eða með TEM-smásjártækni (Transanal Endoscopic Microsurgery). Síðar- nefnda aðferðin var þróuð í Þýskalandi snemma á 9. áratugnum og er einkum notuð til að fjarlægja æxli sem eru ofarlega í enda- þarmi.71 Við val á meðferð – staðbundið brottnám eða gagngert – er afar mikilvægt að gera sér grein fyrir líkum á eitlameinvörpum og þar með horfum. Tíðni eitlameinvarpa eykst mjög með stigi frumæxlis og skýrir ávinning þess að fjarlægja garnahengi og eitla. Tíðni eitlameinvarpa er 9% við T1-æxli, 25% við T2 og 45% við T3-æxli.72 T1-æxli vaxa í gegnum vöðvalag slímunnar (muscul- aris mucosa) inn í undirslímu (submucosa). T1-æxli má flokka eftir dýpt í undirslímu (submucosa, sm) í sm1-3 (einfaldast að skipta undirslímu í þriðjunga). Eitlameinvörp eru algengari með hærra sm-stigi. Líkur á endurkomu krabbameina eru samhljóma þessum tölum. Þegar tölum er stillt upp á móti lífsgæðum, aukakvillum og dánartíðni eftir gagngert brottnám munu sumir sjúklingar kjósa staðbundna aðgerð. Tis (in situ) og T1 eru oftast fjarlægð með stað- bundinni aðgerð en mikilvægt er að gera sér grein fyrir að eitla- íferð finnst í 6-11% tilvika. Fyrir T1-æxli með ýga þætti (aggressive features) eins og illa þroskað æxli, blóð- eða sogæðaíferð, eða æxli með slímkirtilsþætti (mucinous features) má íhuga stoðmeðferð eftir staðbundna aðgerð eða framkvæma gagngert brottnám. T2- æxli án eitlameinvarpa sem eru staðsett í hæfilegri fjarlægð (>5 cm) frá hringvöðva eru oftast fjarlægð með endaþarmsbrottnámi eingöngu. T2-æxli sem fjarlægð eru með staðbundinni aðgerð ein- göngu (yfirleitt vegna þess að sjúklingur hafnar gagngeru brott- námi) ætti að meðhöndla með viðbótar lyfja- og geislameðferð.73 Sjúkling með T3-æxli eða líkleg eitlameinvörp ber að meðhöndla með lyfja- og geislameðferð og svo aðgerð. Gefin er annaðhvort stutt (25 Gy í 5 meðferðum) eða löng (50,4 Gy) geislameðferð. Gert er lágt fremra endaþarmshögg (low anterior resection) eða gagn- gert brottnám endaþarms (abdominoperineal resection). Sýnt hefur verið fram á óyggjandi ávinning þess að framkvæma endaþarms- brottnám með fósturfræðilega legu endaþarms í huga með svokall- aðri TME-aðferð (total mesorectal excision).74 Sú aðferð tryggir að allt endaþarmshengið (mesorectum) sé fjarlægt að mesorectal fasciu („The Holy Plane“) og þar með allir fráveitandi eitlar endaþarms.75 Habr-Gama og félagar hafa á eftirtektarverðan hátt ýtt við hefð- um í meðferð á endaþarmskrabbameini. Sjúklingum sem svöruðu fullkomlega (sýndu engin klínísk merki um æxlisvöxt (complete clinical responders, cCR) eftir lyfja- og geislameðferð) var fylgt eftir með ströngu eftirliti. Fimm ára lifun og lifun án sjúkdóms var betri hjá þeim miðað við hópinn sem ekki svaraði fullkomlega og gekkst undir skurðaðgerð.76 Aðrir hafa sýnt fram á svipaðan árangur af geislalyfjameðferð án skurðaðgerðar og mætti því hugleiða þessa nálgun í völdum tilfellum.77 Lyfjameðferð eftir skurðaðgerð þar sem geislalyfjameðferð var beitt fyrir er gjarnan notuð, þó svo engar slembirannsóknir hafi verið gerðar sem sýna óyggjandi fram á bætta lifun. Nýleg samanburðarrannsókn á 21 rannsókn bar saman horfur hjá sjúk- lingum sem fengu eða fengu ekki lyfjameðferð. Niðurstöður sýndu bætta lifun með 5-FU lyfjameðferð en í einungis einni rannsókn höfðu sjúklingar fengið geislameðferð fyrir aðgerð og því er óljóst hversu mikið lyfjameðferð eftir aðgerð bætir við hjá sjúklingum sem fengu geislalyfjameðferð.78 Engu að síður er sjúklingum með stig II/III sjúkdóm oft boðin lyfjameðferð í 6 mánuði eftir aðgerð þar sem niðurstöður viðbótarkrabbameinslyfjameðferðar í ristil- krabbameini eru yfirfærðar á endaþarmskrabbamein.54 Klínískar leiðbeiningar í Bandaríkjunum (NCCN) og leiðbeiningar samtaka evrópskra krabbameinslyflækna (ESMO) mæla með lyfjameðferð fyrir alla á stigi II-III.31,50 Ef sjúklingur sem talinn var hafa ristil- krabbamein reynist við aðgerð vera með endaþarmskrabbamein (æxli staðsett fyrir neðan lífhimnu; peritoneal reflection), er gjarnan beitt svokallaðri samlokuaðferð eftir aðgerð. Gefin er lyfjameðferð með 5-FU/LV (eða capecitabíni) eða FOLFOX er gefin í tvo mánuði, svo 5-FU/capecitabín með geislameðferð í 5-6 vikur og svo aftur lyfjameðferð í tvo mánuði.79 Meðferð útbreidds sjúkdóms Útbreitt krabbamein í ristli eða endaþarmi er í flestum tilfellum ólæknandi sjúkdómur og er meðferð yfirleitt með krabbameins- lyfjum. Ef meinvörp eru fá og bundin við lifur eða lungu, er stundum hægt að fjarlægja þau ásamt gjöf krabbameinslyfjameð- ferðar. Einnig getur þurft að fjarlægja frumæxli í ristli valdi þau verulegum þrengingum eða blæðingum. Stoðnet eru áhrifarík, hafa tiltölulegar litlar aukaverkanir og ísetning þeirra krefst alla jafna ekki innlagnar.80 Ekki hefur verið sýnt fram á ávinning af því að fjarlægja frumæxli í einkennalausum sjúklingum og eru áhrif slíkrar aðgerðar á lifun umdeild.81-83 Umtalsverðar breytingar hafa orðið á meðferð útbreidds krabbameins í ristli og endaþarmi á síðasta áratug með tilkomu nýrra lyfja.84 Meðferð er jafnan líknandi og miðar að því að auka Y F i R l i T S G R E i n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.